Morgunblaðið - 31.12.2019, Síða 14

Morgunblaðið - 31.12.2019, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Um aldamótinsíðustu varmiklu tjald- að til, ekki aðeins vegna „2000- vandans“, sem allir sérfræðingar ótt- uðust mjög en reyndist enginn vera, heldur líka vegna atburða á öldinni sem áttu enga sína líka í sögunni. Kommúnisminn reis og féll svo aftur eftir að hafa orðið í það minnsta milljónatugum að fjör- tjóni. Önnur ekki síður ógeðfelld öfgastefna, nasisminn, reis enn hraðar og féll sömuleiðis hraðar og með meiri látum. Hann varð einnig milljónum að fjörtjóni þótt ekki hefði hann, þrátt fyrir Hel- förina sjálfa, verið jafn mann- skæður og hin pólitíska hel- stefnan. Tvær heimsstyrjaldir mörkuðu djúp spor í tuttugustu öldina en svo voru líka stigin jákvæð skref, eins og litla skrefið á tunglinu og margvíslegar gríðarlegar og allt að því óskiljanlegar vísinda- og tækniframfarir bera vitni um. Mannkynið lærði að fæða fleiri munna en nokkru sinni fyrr og læknaði fleiri kvilla þannig að mannfjölgun varð mikil og víðar en hér á landi braust almenn- ingur nánast úr örbirgð í alls- nægtir. En þó að óumdeilt væri að tutt- ugasta öldin hefði verið öld mik- illa umbrota og framfara var tölu- vert um það deilt um aldamótin hvenær þau væru. Flestir eru þannig gerðir að þeir vildu minn- ast aldamótanna þegar skipti úr 1999 í 2000, en aðrir bentu á að öldin væri ekki liðin fyrr en síð- asta ár hennar, árið 2000, væri liðið. Þeir voru þó fleiri sem létu sig þessar tæknilegu athuga- semdir litlu varða og fannst fara betur á að fagna nýju tölunum þó að talningin væri ef til vill ekki til fyrirmyndar og kynni að valda falli á stærðfræðiprófum. Hið sama er uppi nú, þegar fjölmiðlar víða um heim fjalla með ótíma- bærum hætti um atburði annars áratugar 21. aldarinnar. Þetta bráðlæti er auðvitað ekki til fyrir- myndar en verður þó vonandi ekki til að setja tugakerfið í upp- nám. Kína hefur verið mjög vaxandi það sem af er þessari öld og mun án efa setja enn meira mark sitt á hana eftir því sem árin líða. Meg- irðu lifa á áhugaverðum tímum, er tvíræð kveðja sem Kínverjar kasta stundum á þá sem þeir óska alls ills, enda eru áhugaverðir tímar sjaldnast þeir bestu. Flest- ir þrífast betur og eru hamingju- samari þegar ekkert stórkostlega fréttnæmt gerist og vonandi verður þessi öld ekki eins áhuga- verð í þessum skilningi og sú tuttugasta. Fyrir einni öld höfðu tuttugustu aldar menn þegar háð eina heimsstyrjöld og horft upp á kommúnismann taka völdin í Moskvu, en ekkert af þeirri stærðargráðu hefur enn gerst á þessari öld. Þó hefur ýmislegt „áhugavert“ gerst það sem af er öldinni og á þeim áratug sem nú er að líða. Lánsfjárkreppan sem gekk yfir Bandaríkin og Evr- ópu fyrir rúmum áratug skók fjár- málakerfin og hafði gríðarleg áhrif með falli stæðilegra fjár- málastofnana og björgunar- aðgerðum til að hindra fall fjölda þeirra. Og hér féllu bankar með miklum látum og djúpstæðum af- leiðingum. En þó að höggið hafi verið meira hér en á evrusvæðinu hafa afleiðingarnar verið alvar- legri þar enda sér ekki fyrir end- ann á þeim enn. Þess vegna má segja að evran, þó að hún sé að- eins rúmlega tveggja áratuga gömul, hafi verið að tapa trú- verðugleika allan þennan áratug. Á sama tímabili hefur íslenska krónan staðfest hve þýðingar- miklu hlutverki hún gegnir fyrir íslenskan efnahag. Ekki aðeins vegna evrunnar heldur einnig vegna vaxandi óánægju almennings með skort á lýðræði innan sambandsins og fjarlægu en allt of valdamiklu embættismannakerfi hefur Evr- ópusambandið veikst á þessum áratug. Óánægjan kom skýrast fram í ákvörðun Breta um að ganga úr sambandinu og líkur eru á að útgangan muni veikja sambandið enn frekar enda hafa ráðamenn í Brussel þvælst fyrir henni sem mest þeir hafa mátt, og rúmlega það. Þó að áratugurinn hafi hér á landi byrjað brösuglega með vinstri stjórn sem lagði sig fram um að ýta undir átök þegar þörf var á hinu gagnstæða, þá hefur ræst verulega úr. Efnahagur hins opinbera og þjóðarinnar í heild hefur lagast verulega og sjaldan eða aldrei verið betri. Kaup- máttur landsmanna og velmegun á flesta mælikvarða hefur batnað mjög og stöndum við í þeim efn- um framar flestum þjóðum sem við berum okkur saman við. Þetta er ánægjuefni þó að full- ur sigur sé að sjálfsögðu ekki unninn. Og áhyggjuefnin eru einnig fyrir hendi. Eitt er sam- skiptin við Evrópusambandið í gegnum EES-samninginn, en þar þurfa Íslendingar að gæta hags- muna sinna með mun ákveðnari hætti en gert hefur verið. Þetta er hægt þrátt fyrir utanaðkom- andi þrýsting, eins og sást vel í Icesave-málinu fyrr á þessum áratug. Margir segjast sammála því að ESB hafi seilst of langt inn í íslenska löggjöf í gegnum EES- samninginn, en þegar á hólminn er komið hafa þau orð iðulega reynst haldlítil. Þetta þarf að breytast. Ísland verður að gæta að stöðu sinni gagnvart öðrum ríkjum til að verja sjálfstæði sitt og fullveldi. Aðeins þannig er hægt að tryggja að auðlindir Íslands verði áfram undirstaða þeirrar velmegunar sem lands- menn njóta nú og fer vonandi enn vaxandi á næsta ári og áratug. Gleðilegt ár! Sumir telja að ára- tugurinn sé á enda, aðrir telja að þeir kunni ekki að telja} Áramót Á rið 2019 var mjög lærdómsríkt ár. Við gengum inn í árið með það veganesti að ráðherrar nota sendiherrastöður sem pólitíska skiptimynt sjálfum sér til fram- dráttar, eins og fram kom í Klaustursupptök- unum. Ég myndi segja að árið 2019 hafi verið árið sem byrjað var að svipta hulunni af um- fangi spillingar í íslensku samfélagi því þó hrunið og Panamaskjölin hafi áður gefið okkur innsýn í spillingarheiminn þá sýndu mál ársins 2019 hversu víðtæk spillingin og svindlið er. Frá því sjónarhorni er virkilega merkilegt að geta sagt að hrunið og Panamaskjölin hafi í raun verið bara toppurinn á ísjakanum, vegna þess hversu stór mál það eru. Það væri í raun nákvæmara að tala um svindl en spillingu. Ísjakinn sem liggur undir yfirborðinu er nefnilega að mestu samansettur úr svindli. Svindli sem lýsir sér í því sem Procar gerði, hvað Samherji gerði og ástæðum þess að við erum á lista FATF vegna peningaþvættis. Þar inn á milli finnum við svo spilling- armola sem virðast halda þessu öllu saman. Þar finnast pólitísk afskipti af skipun dómara í Landsrétt, ríkislög- reglustjóri sem ýjar að því að hann viti af spillingu sem þurfi að upplýsa um ef hann þyrfti að víkja úr starfi og svo samtryggingin sem reis upp í vörn gegn gagnsæi og rök- studdum grun. Dæmin sýna ítrekað svindl og spillingu en dæmin sjálf sýna líka brestina í þeim varnarhjúp sem áður stóð af sér allar atlögur. Ísjakinn strandaði árið 2019 og nú fjarar undan honum á sama tíma og hann bráðnar. Á næsta ári verður að passa að jakinn komist ekki aftur á flot. Til þess að ná að brjóta ísinn þá þarf til að byrja með að taka spillingarmál og svindl alvarlega. Það þurfa að vera afleiðingar og það þarf að vera gegnsæi. Það er til dæmis sorglegt að sjá meira gerast í Samherjamálinu í Namibíu en á Íslandi. Því næst þarf að fara í grundvallaraðgerðir varð- andi réttindamál uppljóstara, gagnsæi fyrir- tækja og ábyrgð stjórnenda og ráðamanna. Það þarf að tryggja opið aðgengi að eigna- tengslum og raunverulegum eigendum, mun víðtækari vernd uppljóstrara en er að finna í því frumvarpi sem ráðherra hefur lagt fram á Alþingi og síðast en ekki síst að þingið klári af- greiðslu á nýrri stjórnarskrá því í henni er að finna góðan grunn til að byggja á í þessum málum. Það verður ekki auðvelt að brjóta varnarhjúpinn því kerfið ver sig með kjafti og klóm. Vörnin er að skjóta sendiboðann fyrir að dirfast að nota orðin „rökstuddur“ og „grunur“ í þeirri röð þrátt fyrir fullt af rökum og aug- ljósan grun. Vörnin er að hanna ásýnd breytinga þannig að ekkert breytist í raun og veru, að gera þolendur að ger- endum og gerendur að þolendum. Að þau grunuðu rann- saki sjálf sig. Hvítþvottur og bón, allt á einum stað. Björn Leví Gunnarsson Pistill Toppurinn á ísjakanum Höfundur er þingmaður Pírata bjornlevi@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Stjórnvöld hafa ekkert að-hafst á þessu ári til aðstemmu stigu við fyrir-sjáanlegri mengun af völd- um flugelda sem skotið er upp nú um áramótin. Þetta er þvert á fyrirheit sem Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra gaf í kjölfar loft- mengunarinnar miklu á höfuð- borgarsvæðinu um áramótin 2017- 2018. Í viðtali við Morgunblaðið í apríl 2018 sagði ráðherrann mengunina áhyggjuefni og ekki ásættanlega. „Við verðum vitanlega að bregðast við,“ sagði hann. Árið 2018 voru þessi mál nokkrum sinnum til umfjöllunar hér í blaðinu, sérstaklega í desember. Tilraunir til að ná tali af umhverfisráðherra og bera undir hann fyrirheitin báru ekki árangur. Rétt fyrir jól kom svo tilkynning frá ráðuneytinu um að Umhverfisstofnun hefði verið falið að auka mælingar á svifryki í kring- um áramótin. Þá væri henni falið að miðla upplýsingum um skaðsemi flugelda til almennings og hags- munaaðila. Loks yrði skipaður starfshópur með fulltrúum frá þrem- ur ráðuneytinum og ætti hann að safna upplýsingum um mengun af völdum flugelda og gera tillögur um aðgerðir til lengri tíma. Starfshóp- urinn átti að skila af sér fyrir 15. febrúar á þessu ári sem er að kveðja. Fyrirkomulagið óbreytt Í starfshópnum voru Sigurbjörg Sæmundsdóttir, deildarstjóri í um- hverfisráðuneytinu, formaður, Jón Gunnarsson alþingismaður og Þór- ólfur Guðnason sóttvarnalæknir. Margir bundu vonir við að nú væri að komast hreyfing á þessu mál. Horfðu menn þá ekki síst til þess að opinber reglugerð um skotelda kveður á um að halda skuli fund með innflytjendum skotelda fyrir lok febrúar ár hvert ef gera á breytingar á sölu þeirra á árinu. En í mars á þessu ári upplýsti Morgunblaðið að enginn slíkur fundur hefði verið haldinn og fyrirkomulagið við sölu flugelda yrði óbreytt enn eitt árið. Nefndin hefði enn ekki lokið störf- um. Sigríður Víðis Jónsdóttir, að- stoðarmaður ráðherra, fullyrti hins vegar að tillögur nefndarinnar væru væntanlegar „fljótlega“. Þessi svör voru svo endurtekin reglulega af fulltrúum ráðuneytisins allt þetta ár án þess að nefndin lyki störfum. Í viðtali við RÚV á dögunum full- yrti einn nefndarmanna, Jón Gunn- arsson alþingismaður, að tillögur starfshópsins væru væntanlegar snemma á næsta ári. En við til- lögugerð yrði að taka tillit til bæði mengunar vegna flugeldanna og vægis þeirra í tekjuöflun björg- unarsveita. Lýðheilsusjónarmiðum yrði með öðrum orðum að setja mörk vegna þröngra peningalegra hags- muna. Fram hefur komið að tekjur björgunarsveitanna af flugeldasölu nema um 800 milljónum króna á ári og eru þetta um 60% af heildar- tekjum þeirra. Spyrja má hvort ekki sé hægt að hagræða sársaukalaust í ríkisrekstrinum um þessa upphæð og setja björgunarstarfið á föst fjár- lög, ef vilji er til þess. Fyrir ári birtu þrír háskólakenn- arar grein í Læknablaðinu þar sem bent var á að óhófleg, óstýrð notkun Íslendinga á flugeldum leiddi til al- varlegrar mengunar sem hefði áhrif á heilsu og vellíðan lungnasjúklinga, sem eru allt að 5-10% landsmanna, og væru í þeim hópi bæði börn og fullorðnir. Bentu þeir á að síðastliðin 15 áramót hefði svifryksmengun á höfuðborgarsvæðinu farið yfir heilsuverndarmörk annað hvert ár. Þeir töldu að minnka þyrfti innflutn- ing flugelda áttfalt til að hægt væri að standa við heilsuverndarmörk. Þá bentu þeir á að hægt væri að banna flugeldaauglýsingar líkt og gert er með tóbak og áfengi. Einnig mætti minnka vöruframboð og banna þá flugelda sem menga mest við jörðu. Nú nokkrum dögum fyrir jól birti Umhverfisstofnun niðurstöður mæl- inga á efnainnihaldi svifryks í Reykjavík og Kópavogi um áramótin 2018-2019. Vekur þetta seinlæti á birtingu upplýsinga óneitanlega furðu. En niðurstöðurnar eru af- dráttarlausar sem fyrr: „Veruleg aukning varð á hlutfalli ýmissa efna í svifrykinu um áramótin. Þau efni sem hækka langmest eru efni sem mætti kalla einkennisefni fyrir mengun frá flugeldum,“ segir orð- rétt. Bætt er við: „Ryk með þessa efnasamsetningu verður að teljast varasamt.“ Þá segir að flugeldar séu aldrei umhverfisvænir eða skað- lausir og því sé mikilvægt að minnka verulega magn flugelda sem skotið er upp um áramót þar sem þeim fylgir ávallt mikið svifryk. Spáð er rigningu og nokkrum vindi á höfuðborgarsvæðinu nú um áramótin. Slík veðrátta dregur blessunarlega úr flugeldameng- uninni. En stjórnvöld geta varla endalaust vikið sér undan stefnu- mótun og ákvörðunum í þessum málum. Ekkert gert vegna flugeldamengunar Morgunblaðið/Árni Sæberg Loftmengun Frá brennu í Kópavogi. Allir finna fyrir menguninni frá flug- eldum og brennum. Hávaðinn hræðir líka dýr og rusl safnast upp.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.