Morgunblaðið - 31.12.2019, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 31.12.2019, Qupperneq 15
Hafnarfjörður Dýrðarljómi ríkti yfir Fríkirkjunni í Hafnarfirði er ljósmyndari átti þar leið um kringum hátíðirnar. Skammdegissólin kastaði fallegri birtu á kirkjuna og húsin í kring. Árni Sæberg 15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 2019 Hvað sem hverjum finnst um val á manni ársins hjá fréttatímaritinu Times er það staðreynd að þróun loftslags- mála er að mati mjög margra stærsta ógn okkar samtíma. Greta Thunberg er ekki ein um að hafa lýst yfir neyðar- ástandi. Það hefur Evrópu- þingið gert, breska þingið og fleiri, til að undirstrika alvöru málsins. En hversu megnugar eru þessar yfirlýsingar ef orðum fylgja ekki athafnir – og hvað þarf til? Höfum tvo áratugi Ísland hefur ekki látið sitt eftir liggja í um- fjöllun um loftslagsmál. Allt frá jarðarför ís- lenska jökulsins Oks sem vakti heimsathygli til aðgerðaáætlunar ríkisstjórnarinnar í loftslags- málum ásamt metnaðarfullum skrefum ein- stakra fyrirtækja og sveitarfélaga er ljóst að þessi mál eru varanlega komin á dagskrá. Enda þörf á. Íslendingar menga mest allra í Evrópu á hvern einstakling og ef horft er einungis til heimilanna hefur losun á hvern einstakling frá íslenskum heimilum verið meiri en hjá hinum Norðurlandaþjóðunum frá árinu 2008. Mark- mið ríkisstjórnarinnar um að Ísland verði kolefnishlutlaust eftir 20 ár er því metnaðar- fullt og þýðir að minnka þarf losun um 17 tonn á hvern einstakling miðað við mælingar frá árinu 2016. Til að ná þessu markmiði þarf almenningur að fylkja sér af alvöru að baki aðgerðaáætlun ríkisins sem og tryggja getu og samtakamátt fyrirtækjanna í landinu – en án stuðnings þeirra er markmiðið dauðadæmt. Viljinn er lofsverður, en ekki allt sem þarf. Flestir virðast sammála um markmiðin, en til að þeim megi ná og leiða aðgerðaáætl- unina til árangurs er nauðsynlegt að tryggja nægjanlegt fjármagn. En hvaðan á það að koma? Tvær leiðir til að tryggja fjármagn Ein leið er að leggja á kolefnis- skatta. Þá kostar meira að menga. En ef slíkir skattar eiga að ná þeirri fjárhæð sem til þarf mun verð á vörum hækka upp úr öllu valdi: bensínlítrinn myndi hækka um u.þ.b. 700% m.v. verðlag dagsins í dag og flug fram og til baka til New York myndi hækka um u.þ.b. 400 þúsund, svo dæmi séu tekin. Viðbrögð við slíkum aðgerðum sáust hvað skýrast í Frakklandi í fyrra þegar dísil- lítrinn hækkaði um 16% og hundruð þúsunda mótmæltu og ógnuðu valdastóli forsetans. Kol- efnisskattar mega ekki verða aukaálögur – ívilnanir verða að koma á móti. Önnur leið sem er líklegri til árangurs er að horfa til fjármálageirans. Þrátt fyrir að fjármálageirinn hafi e.t.v. ekki haft jákvæð- ustu ímyndina eftir hrun þurfum við að átta okkur á því að enginn geiri er betur í stakk bú- inn til að styðja við fjármögnun aðgerða í lofts- lagsmálum. Með alþjóðlegum tengingum í gegnum kauphallir heimsins flyst fjármagn á milli landa og heimsálfa á hraða ljóssins. Það er þetta fjármagn sem laða þarf til réttra að- gerða og lausna til að stemma stigu við þróun loftslagsmála. Fjárfestingasjóðir taka græna beygju Til allrar hamingju er sú þróun nú þegar hafin. Víða um heim hafa fjárfestingasjóðir tekið forystu í grænum fjárfestingum. Stjórn- endur þeirra hafa reiknað saman langtíma- ávöxtun af fjárfestingum og áhættu af þeim til lengri tíma og komist að því að skynsamlegast sé að fjárfesta í því sem ekki skaðar umhverfið eða ýtir undir loftslagsvá. Einn stærsti fjár- festingarsjóður heims, norski olíusjóðurinn, losaði t.a.m. um fjárfestingar sínar í olíufé- lögum fyrir um 13 milljarða dollara á síðasta ári. Stefna sjóðsins er orðin sú að til að mæta væntingum um langtímaávöxtun sé ekki skyn- samlegt að fjárfesta í kolavinnslu eða olíufé- lögum. Í staðinn hefur sjóðurinn fjárfest í auknum mæli í endurnýjanlegri orku. Ekki verður vart við þrýsting í þessa átt, enn sem komið er, í íslensku fjármálaumhverfi þó svo aðeins verði þess vart í umræðunni. Okkar langstærstu sjóðir, lífeyrissjóðirnir, sem eiga meira en 4.800 milljarða króna, ættu að vera undir gífurlegum þrýstingi um að fjár- festa á ábyrgan hátt að þessu leyti, sér- staklega þar sem þeir þurfa í auknum mæli að fjárfesta erlendis. Jafnframt eiga lífeyrissjóð- irnir samanlagt, beint og óbeint, rúmlega helming allra hlutabréfa í landinu. Tryggja þarf að lífeyriseign íslenskra launþega sé ekki varið í fyrirtæki sem eru á áhættulista vegna loftslagsvárinnar. Ekki bara „hak í boxið“ Þótt fjármálafyrirtæki gegni lykilhlutverki er ekki þar með sagt að við sem einstaklingar eða fyrirtækin séu stikkfrí – enda hafi margir hafið metnaðarfulla vegferð í átt að kolefnis- hlutleysi. Dæmi um fyrirtæki sem er leiðandi og til fyrirmyndar í loftslagsaðgerðum er Landsvirkjun. Fyrirtækið hefur gefið út græn skuldabréf og tekið sambankalán þar sem vextir lánsins eru beintengdir sjálfbærnimark- miðum sem félagið hefur sett sér. Þess utan eru verkefni innan Landsvirkjunar til að minnka losun og er þar hreinsivirki í Kröflu upp á tæpan milljarð króna nýlegt dæmi um langtímahugsun og aðgerðir til að sporna við auknum kostnaði og áhættu í framtíðarlosun. Öll fyrirtæki þurfa á markvissan hátt að stýra áhættu til framtíðar í gegnum endurhugsun á virðiskeðju og nýsköpun. Þau sem ekki gera það munu, eins og fyrrverandi seðla- bankastjóri Bretlands orðaði það: „fara á hausinn“. Koma þarf ógnvænlegri þróun loftslagsmála inn í kjarna allrar fjárhagslegrar ákvarðana- töku og byggja hana á yfirgripsmikilli og sam- þættri þekkingu og upplýsingagjöf. Bankar, tryggingafélög og eignastýringar og þeirra eftirlitsaðilar þurfa að hafa skilning á og getu til að stjórna þeirri fjárhagslegu áhættu sem fylgir loftslagsbreytingum. Grænar fjárfestingaákvarðanir eru ekki bara „hak í boxið“ heldur eru þær grænt ljós á hagstæða ávöxtun og áhrifamiklar breytingar til fram- tíðar. Þessar áherslur eru m.a. inntak Viðskiptaþings sem haldið verður 13. febrúar næstkomandi. Eftir Ástu Sigríði Fjeldsted » Grænar fjárfestinga- ákvarðanir eru ekki bara „hak í boxið“ heldur eru þær grænt ljós á hagstæða ávöxtun og áhrifamiklar breytingar til framtíðar. Ásta Sigríður Fjeldsted Höfundur er verkfræðingur og framkvæmda- stjóri Viðskiptaráðs Íslands. Á grænu ljósi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.