Morgunblaðið - 31.12.2019, Qupperneq 34
34 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 2019
England
B-deild:
Derby – Charlton ..................................... 2:1
Staðan:
Leeds 25 15 6 4 42:20 51
WBA 25 14 9 2 47:27 51
Fulham 25 12 6 7 39:28 42
Brentford 25 12 4 9 37:20 40
Nottingham F. 24 11 7 6 31:23 40
Sheffield Wed. 25 11 6 8 37:25 39
Preston 25 11 6 8 36:30 39
Bristol City 25 10 8 7 39:36 38
Swansea 25 10 8 7 31:30 38
Cardiff 25 9 10 6 37:34 37
Millwall 25 9 10 6 31:31 37
Hull 25 10 6 9 39:34 36
Blackburn 25 10 6 9 32:31 36
Reading 24 9 5 10 31:27 32
QPR 25 9 5 11 38:47 32
Middlesbrough 25 7 9 9 24:32 30
Derby 25 7 9 9 24:33 30
Birmingham 25 8 5 12 29:40 29
Charlton 25 7 7 11 34:36 28
Huddersfield 25 7 7 11 28:37 28
Stoke 25 6 3 16 28:40 21
Barnsley 25 4 9 12 32:47 21
Luton 25 6 3 16 31:53 21
Wigan 25 4 8 13 21:37 20
KNATTSPYRNA
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
Hið árlega Gamlárshlaup ÍR verður haldið
í 44. skipti í dag og hefst við Hörpu í
Reykjavík kl. 12. Hlaupnir eru 10 km en
auk þess er á dagskrá 3 km skemmtiskokk.
Enski boltinn á Síminn Sport
Leikir á morgun, nýársdag:
Brighton – Chelsea............................... 12.30
Burnley – Aston Villa ........................... 12.30
Southampton – Tottenham....................... 15
Newcastle – Leicester............................... 15
Watford – Wolves ...................................... 15
Manchester City – Everton................. 17.30
West Ham – Bournemouth.................. 17.30
Norwich – Crystal Palace .................... 17.30
Arsenal – Manchester United.................. 20
Í KVÖLD!
Svíþjóð
Borås – Södertälje............................... 81:62
Elvar Már Friðriksson skoraði 15 stig,
tók 2 fráköst og gaf 7 stoðsendingar á 23
mínútum hjá Borås.
NBA-deildin
Toronto – Oklahoma City .................... 97:98
Memphis – Charlotte ....................... 117:104
New Orleans – Houston................... 127:112
Denver – Sacramento ...................... 120:115
LA Lakers – Dallas ............................ 108:95
Staðan í Austurdeildinni:
Milwaukee 29/5, Miami 24/8, Boston 22/8,
Toronto 22/11, Philadelphia 23/12, Indiana
21/12, Brooklyn 16/15, Orlando 14/18, Chi-
cago 13/20, Charlotte 13/22, Detroit 12/21,
Cleveland 10/22, Washington 9/22, New
York 9/24, Atlanta 6/27.
Staðan í Vesturdeildinni:
LA Lakers 26/7, Denver 23/9, LA Clippers
23/11, Houston 22/11, Dallas 21/11, Utah
20/12, Oklahoma City 17/15, Portland 14/
19, San Antonio 13/18, Memphis 13/21,
Phoenix 12/20, Sacramento 12/21, Minne-
sota 11/20, New Orleans 11/23, Golden
State 9/25.
KÖRFUBOLTI
KRISTIANSTAD
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Elísabet Gunnarsdóttir er að hefja
sitt tólfta tímabil sem þjálfari
sænska knattspyrnuliðsins Kristi-
anstad. Félagið staðfesti í gær
hvernig þjálfarateymi þess fyrir
tímabilið 2020 yrði skipað en auk El-
ísabetar er Björn Sigurbjörnsson
áfram aðstoðarþjálfari eins og und-
anfarin ár, ásamt því að taka nú við
U19 ára liði félagsins, og þá er Krist-
ín Hólm styrktarþjálfari liðsins
þannig að Íslandstengingin er sterk.
Sif Atladóttir, eiginkona Björns,
leikur áfram með liðinu og er því að
hefja sitt tíunda tímabil en hún kom
til liðs við Kristianstad og Elísabetu
frá Saarbrücken í Þýskalandi í árs-
byrjun 2011. Svava Rós Guðmunds-
dóttir leikur einnig með Kristianstad
og er að hefja sitt annað tímabil.
Fyrsti mótsleikur Kristianstad á
árinu 2020 er gegn Kungsbacka 22.
febrúar, í bikarkeppninni, en 16-liða
úrslitin eru leikin í fjórum riðlum
þar sem sigurliðin komast í undan-
úrslit. Hin tvö liðin eru Rosengård
og Limhamn Bunkeflo, en riðla-
keppninni lýkur áður en keppni
hefst í úrvalsdeildinni í byrjun apríl.
Bikarúrslitaleikurinn í Svíþjóð er
jafnan spilaður í maímánuði.
Besti árangur Kristianstad undir
stjórn Elísabetar er fjórða sætið árið
2018 en liðið endaði í fimmta sæti
2012, 2014 og 2017. Í ár var liðið
lengi vel í hópi efstu liða en gaf eftir
síðustu vikur tímabilsins og hafnaði í
7. sæti.
Tíu íslenskir leikmenn
Elísabet hefur verið með íslenska
leikmenn í sínu liði öll árin, stundum
einn og mest fjóra í einu. Alls hafa
tíu íslenskar knattspyrnukonur leik-
ið með félaginu í úrvalsdeildinni
undir hennar stjórn á þeim ellefu
tímabilum sem hún á að baki sem
þjálfari liðsins.
Erla Steina Arnardóttir hafði
leikið með Kristianstad í tvö ár þeg-
ar Elísabet tók við. Hún lék í þrjú
tímabil hjá henni, frá 2009 til 2011,
og spilaði alla 66 deildaleikina þessi
þrjú ár og skoraði þrjú mörk. Erla
tók fram skóna árið 2016 og hljóp í
skarðið í einum leik með liðinu, sem
markvörður.
Guðný Björk Óðinsdóttir varð
samferða Elísabetu frá Val til Kristi-
anstad og lék með liðinu í sex ár, frá
2009 til 2015, en missti talsvert úr
vegna meiðsla. Hún spilaði 86 leiki í
úrvalsdeildinni og skoraði 5 mörk.
Hólmfríður Magnúsdóttir kom
um leið og Elísabet til félagsins, frá
KR, og lék með því tímabilið 2009.
Hólmfríður lék 21 leik í deildinni og
skoraði 5 mörk.
Margrét Lára Viðarsdóttir kom
til Kristianstad frá Linköping á
miðju tímabilinu 2009 og lék með lið-
inu út árið 2015. Margrét lék 101 leik
í deildinni og skoraði 39 mörk. Hún
varð markadrottning deildarinnar
2011 með 16 mörk og varð þriðja
markahæst í deildinni árið 2013 með
13 mörk.
Katrín Ómarsdóttir lék með
Kristianstad árin 2010 og 2012.
Fyrra árið, þegar hún kom frá KR,
var hún aðeins með tæplega hálft
tímabilið vegna náms í Bandaríkj-
unum. Hún spilaði 29 leiki í deildinni
og skoraði 6 mörk.
Sif Atladóttir kom til Kristian-
stad frá Saarbrücken í ársbyrjun
2011, eins og áður sagði, og spilar
enn með liðinu. Hún á að baki 163
leiki með því í úrvalsdeildinni og hef-
ur skorað 2 mörk.
Elísa Viðarsdóttir kom til
Kristianstad frá Val og lék tímabilin
2014 og 2015. Hún spilaði 41 leik af
44 í deildinni þessi tvö ár en fór síðan
aftur til Vals.
Ásgerður Stefanía Baldurs-
dóttir kom til Kristianstad í láni frá
Stjörnunni vorið 2015 og spilaði 5
leiki með liðinu áður en Íslandsmótið
hófst.
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir kom
til Kristianstad frá Stjörnunni fyrir
tímabilið 2019. Hún lék fimm leiki
um vorið og skoraði eitt mark en fór
til Þórs/KA í maí.
Svava Rós Guðmundsdóttir
kom til Kristianstad frá Röa í Nor-
egi fyrir tímabilið 2019. Hún lék 19
leiki af 22 og skoraði í þeim 3 mörk.
Tólfta árið er
fram undan
hjá Elísabetu
Hefur þjálfað Kristianstad í Svíþjóð
samfleytt frá árinu 2009
Ljósmynd/KDFF
Reynsla Elísabet Gunnarsdóttir heldur sínu striki hjá Kristianstad.
Magnus Rød, einn besti ungi hand-
boltamaður heims, verður með
Norðmönnum á EM í byrjun næsta
árs. Rød meiddist í leik með Flens-
burg á dögunum og í fyrstu var ótt-
ast að skyttan yrði ekki klár í slag-
inn fyrir Evrópumótið. Meiðslin
voru hins vegar ekki eins alvarleg
og óttast var í fyrstu. Rød sló í gegn
á HM í byrjun árs þar sem hann
skoraði 43 mörk og var næst-
markahæstur allra á mótinu er
Norðmenn náðu í silfur. Kent
Tønnesen og Bjarte Myrhol verða
hins vegar ekki með á mótinu.
Jákvæðar fréttir
fyrir Norðmenn
AFP
Noregur Skyttan Magnus Rød
verður með Norðmönnum á EM.
Heimir Hallgrímsson, fyrrverandi
landsliðsþjálfari karla í fótbolta, hef-
ur framlengt samning sinn við Al-
Arabi í Katar til ársins 2021. Heimir
mun því stýra liðinu í það minnsta út
næsta tímabil. Landsliðsfyrirliðinn
Aron Einar Gunnarsson og Birkir
Bjarnason, samherji hans í landslið-
inu, hafa leikið með Al-Arabi eftir að
Heimir tók við í desember á síðasta
ári. Liðið byrjaði mjög vel á tíma-
bilinu, en eftir að Aron meiddist í
október hefur gengið erfiðlega. Lið-
ið er í sjötta sæti katörsku úrvals-
deildarinnar.
Heimir fram-
lengdi í Katar
Ljósmynd/@alarabi_club
Katar Heimir Hallgrímsson kann
greinilega vel við sig í Katar.
Borås vann sjö-
unda leik sinn í
röð í sænsku úr-
valsdeildinni í
körfubolta í gær-
kvöld. Liðið vann
þá sannfærandi
81:62-sigur á
Södertälje á
heimavelli.
Borås er með
32 stig í toppsæti
deildarinnar eftir 19 leiki. Köping
Stars er í öðru sæti með tveimur
stigum minna, en liðið á einn leik til
góða. Liðin mætast einmitt í næstu
umferð í toppslag á föstudag.
Elvar Már Friðriksson hélt áfram
að spila vel með Borås og skoraði
hann fimmtán stig, tók tvö fráköst,
gaf sjö stoðsendingar og fiskaði
auk þess átta villur. Var hann með
nítján framlagspunkta, flesta í sínu
liði.
Elvar hefur verið einn besti leik-
maður Borås á leiktíðinni, en hann
gekk í raðir félagsins frá Njarðvík
fyrir tímabilið.
Bestur í sigri
toppliðsins
Elvar Már
Friðriksson
Sigurður Gunnarsson frá Brentford,
varnarmennirnir Ari Leifsson úr
Fylki, Daníel Leó Grétarsson úr
Aalesund og Alfons Sampsted frá
Norrköping og kantmaðurinn Hösk-
uldur Gunnlaugsson úr Breiðabliki.
Þeir Alex Þór Hauksson úr
Stjörnunni, Davíð Kristján Ólafsson
úr Aalesund, Jón Dagur Þorsteins-
son úr AGF, Aron Elís Þrándarson
úr OB, Mikael Anderson úr Midtjyll-
and, Tryggvi Hrafn Haraldsson úr
ÍA og Kristján Flóki Finnbogason
úr KR hafa leikið einn til fjóra A-
landsleiki hver.
Hólmar Örn Eyjólfsson úr Levski
Sofia, Kjartan Henry Finnbogason
úr Vejle, Samúel Kári Friðjónsson
úr Viking Stavanger og Óttar Magn-
ús Karlsson úr Víkingi R. hafa spilað
á bilinu sjö til tólf landsleiki.
Reyndu mennirnir í hópnum eru
síðan Birkir Már Sævarsson úr Val,
Kári Árnason úr Víkingi R., Emil
Hallfreðsson sem er án félags,
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Erik Hamrén, landsliðsþjálfari karla
í fótbolta, fer með fimm reynda
landsliðsmenn og sjö nýliða í Kali-
forníuferðina í janúar þar sem Ís-
land mætir Kanada 15. janúar og El
Salvador 19. janúar í vináttulands-
leikjum.
Óvæntast við liðsvalið er að í
hópnum er Oskar Tor Sverrisson, 27
ára gamall vinstri bakvörður frá
sænska úrvalsdeildarfélaginu Häc-
ken. Hann er fæddur og uppalinn í
Svíþjóð en á íslenskan föður. Hann
lék sex leiki í sænsku úrvalsdeildinni
í ár en hafði fram að því spilað í C-
deildinni með Mjällby, Landskrona,
Dalkurd og Lund, ásamt því að vera
um skeið hjá Kvik Halden í norsku
C-deildinni.
Auk Oskars eru nýliðar í hópnum
markverðirnir ungu Elías Rafn
Ólafsson frá Midtjylland og Patrik
Hannes Þór Halldórsson úr Val og
Kolbeinn Sigþórsson úr AIK en þeir
hafa spilað frá 56 og upp í 90 lands-
leiki.
Óvenju reyndur janúarhópur
Leikirnir fara fram utan lands-
leikjadaga FIFA og því fást ekki til
þeirra leikmenn sem eru á miðju
tímabili eða eru komnir vel af stað á
undirbúningstímabili hjá sínum fé-
lagsliðum. Íslenska liðið er samt það
reyndasta sem teflt hefur verið fram
í janúarleikjum í seinni tíð.
Ísland hefur mætt Kanada
þrisvar áður. Liðin hafa tvisvar gert
1:1-jafntefli, 2007 og 2015, og Ísland
vann 2:1-sigur á Kanada í Orlando
árið 2015.
El Salvador hefur aldrei áður
verið andstæðingur Íslands í neinum
aldursflokki. Þar gæti Pablo Puny-
ed, Íslandsmeistari með KR 2019,
verið á meðal mótherja íslensku leik-
mannanna.
Morgunblaðið/Eggert
Kalifornía Hannes Þór Halldórsson
og Kári Árnason verða báðir með.
Fimm þrautreyndir og sjö nýliðar
Oskar Sverrisson óvæntur nýliði í landsliðshópi Íslands fyrir Kaliforníuferðina
DAG OG Á MORGUN