Morgunblaðið - 31.12.2019, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 31.12.2019, Qupperneq 35
HANDBOLTI Kristján Jónsson kris@mbl.is Guðjón Valur Sigurðsson, landsliðs- fyrirliði í handknattleik, fluttist bú- ferlum á árinu sem er að líða. Guð- jón færði sig ásamt fjölskyldu sinni til Frakklands frá Þýskalandi en hann gekk í raðir París Saint- Germain í sumar. Guðjón er orðinn þrautreyndur í atvinnumennskunni en hann náði fertugsaldri á árinu. Kippir hann sér því ekki mikið upp við að leika með einu besta liði heims og miklum kempum eins og Mikkel Hansen og Nikola Karabatic. Hefur svo sem verið samherji þeirra áður hjá öðrum félagsliðum. Guðjón sagðist kunna „alveg ágætlega“ við sig í Frakklandi þegar Morgunblaðið tók hann tali á lands- liðsæfingu á dögunum. Landsliðs- mennirnir eru smám saman að tín- ast til landsins til að undirbúa sig fyrir Evrópumótið í janúar en Ísland mun leika í Malmö í Svíþjóð. Alex- ander Petersson, fyrrverandi sam- herji Guðjóns hjá Rhein-Neckar Löwen, gefur nú aftur kost á sér í fyrsta skipti í þrjú ár. Urðu fagn- aðarfundir þegar Alexander mætti á æfinguna, nánast beint úr flugi. Vel tekið á því Guðjón hefur gert garðinn frægan í Þýskalandi, Danmörku og á Spáni á sínum atvinnumannsferli og reynir nú fyrir sér í Frakklandi. Hefur því víðtækan og yfirgripsmikinn saman- burð en ekki státa margir leikmenn af því að hafa spilað fyrir stórliðin Kiel, Barcelona, RN Löwen og París SG að ógleymdu AG Kaupmanna- höfn, liðinu sem sálaðist meðan á Ól- ympíuleikunum 2012 stóð. Guðjón er spurður hvort menn nálgist hand- boltaíþróttina á mismunandi hátt eftir löndum? „Erfitt er að segja til um það á heildina litið. Ég hef verið hjá liðum í mismunandi gæðaflokki í þessum löndum. Margt er frábrugðið á milli liða en þarf ekki endilega að snúast um í hvaða löndum þau eru. Við er- um til dæmis með spænskan þjálfara og allra þjóða kvikindi í liðinu. Ég vil því ekki meina að frönsk nálgun skipti öllu máli í þessu. Vissulega leggja Frakkarnir mikið upp úr styrktarþjálfun og við erum með tvo styrktarþjálfara. Vel er tekið á því en ég tel að gæði og metnaður leik- manna og félagsins hafi einnig mikið að segja í þeim efnum.“ Niðurstaðan í Meistaradeild- inni ekki alltaf fyrirsjáanleg Miklar kröfur eru gerðar til Par- ísarliðsins og ekki er farið í felur með það markmið félagsins að vinna Meistaradeild Evrópu. Það hefur liðinu aldrei tekist. „Já já. Það er engin spurning um það að náð er í okkur til þess að vinna Meistaradeildina. Við eigum, og verðum, að vinna frönsku deild- ina. Lagt er upp með það. Að feng- inni reynslu síðustu ára gera menn sér grein fyrir því að það er í langt í frá sjálfsagt að vinna Meistaradeild- ina. Í þeirri keppni hafa oft orðið óvænt úrslit á síðustu árum og menn hafa áttað sig á því. Sú krafa er samt sem áður gerð til okkar að vinna alla leiki sem við spilum. Eftir þessa tvo leiki sem við höfum tapað hefur maður alveg fundið fyrir því að þá tekur ekki við húrrandi gleði. En það er svo sem ekkert öðruvísi en víða annars staðar. Ég hef hvergi verið þar sem menn hafa verið ánægðir yfir því að tapa leik og þannig er það bara,“ sagði Guðjón og kann vel við sig í slíku umhverfi. „Já já, ég er bara mjög þakklátur fyrir að fá að spila með þessu liði og í þessum gæðaflokki.“ Heimaleikir landsliðsins skipa sérstakan sess Sá sem þetta skrifar hefur ekki upplifað að sjá Parísarliðið spila á heimavelli sínum, Stade Pierre de Coubertin, í heimsborginni. Þegar notast er við sjónvarpið eða tölvu til að fylgjast með heimaleikjum liðsins í Meistaradeildinni virðist manni sem stemningin sé ósvikin. Stuðn- ingsmenn, sem taka að sér að halda uppi stuðinu, syngja og tralla. Hér má skjóta því inn í að liðið spilar einnig í annarri keppnishöll, Halle Georges Carpentier. „Þegar stuðningsmannaklúbbur fótboltans mætir þá eru svaka læti og þá er mjög gaman á leikjunum. Jú, það er skemmtilegt að spila heimaleikina með PSG en það þarf nokkuð til að maður hrífist eftir að hafa spilað með Kiel, Barcelona og Rhein-Neckar Löwen. Maður hefur því spilað fyrir troðfullu húsi með þessum liðum og spilað mikilvæga leiki. Þá var alltaf hörkustemning. Stemningin er fín á leikjum París en ekki endilega meiri en annars staðar. Svo hef ég auðvitað spilað mikilvæga leiki í Laugardalshöllinni og það er alltaf uppáhaldsstaðurinn. Kannski er maður eitthvað róm- antískur hvað Laugardalshöllina varðar en það er bara þannig,“ út- skýrði Guðjón. Föðurbetrungur í frönskunni Frakkar eru ekki beinlínis frægir fyrir áhuga sinn á því að tala ensku meira en nauðsyn krefur. Íslenskt íþróttafólk í Frakklandi hefur gjarn- an þurft að taka frönskuna föstum tökum til að komast betur inn í hlut- ina hjá sínum félagsliðum. Hvernig hefur Guðjón tæklað frönskuna? „Lítið og illa. Það verður að segjast alveg eins og er. Ég mætti vera miklu betri þar. Þar er mikið verk að vinna,“ svaraði Guðjón heiðarlega. „Ég er betri í frönsku,“ skýtur sonur Guðjóns inn í sem hefur velt því fyrir sér um nokkra stund hversu lengi faðir hans nennir að ræða við þennan forvitna blaða- mann. Guðjón hlær að athugasemd- inni en tekur heils hugar undir full- yrðinguna. „Jason er miklu betri en pabbi hans í frönsku. Hann má eiga það,“ sagði Guðjón Valur Sigurðsson. Með fullt hús í deildinni Hið firnasterka lið PSG er í efsta sæti frönsku 1. deildarinnar. Hefur liðið unnið alla þrettán leiki sína og er með sex stiga forskot á Nantes. Liðið er í 3. sæti í A-riðli Meistara- deildarinnar á eftir Barcelona og Pick Szeged. Hefur PSG unnið átta leiki í keppninni til þessa en tapað tveimur. Er liðið tveimur stigum á eftir Barcelona. Leikmannahópur PSG er geysi- lega sterkur. Áður hefur verið minnst á Karabatic og Hansen en sá síðarnefndi missti nokkuð úr vegna höfuðáverka. Með liðinu leika einnig Sander Sagosen, Luc Abalo, Nedim Remili, Viran Morros og Kamil Syprzak svo einhverjir séu nefndir. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Félagar Alexander Petersson og Guðjón Valur Sigurðsson eru saman í íslenska landsliðinu á nýjan leik í undirbúningnum fyrir EM. Voru sóttir til að vinna Meistaradeildina  Guðjón Valur Sigurðsson þakklátur fyrir að fá að spila í hæsta gæðaflokki  Stóra markmiðið er skýrt hjá Parísarliðinu en ekki gengið að því sem gefnu ÍÞRÓTTIR 35 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 2019 Þegar íþróttamaður ársins 2019 var útnefndur í Hörpu síð- asta laugardagskvöld vantaði fastagest í salinn. Vilhjálmur Einarsson sem fyrstur allra og oftast allra hefur verið valinn íþróttamaður ársins af Samtökum íþróttafrétta- manna hefur sjaldan eða aldrei látið sig vanta í þetta árlega hóf. Daginn eftir kom skýringin. Vilhjálmur lést á laugardaginn, 85 ára að aldri, og segja má að það hafi verið táknrænt að hann skyldi kveðja á þessum degi. Ég er of ungur til að hafa náð að fylgjast með þessum mikla af- reksmanni enda lagði hann keppnisskóna á hilluna aðeins 28 ára gamall árið 1962, þegar ég var tveggja ára. En sem ungum áhugamanni um íþróttir þótti mér strax merkilegt að þessi goðsögn skyldi hafa fæðst á sama sveitabæ og ég austur á fjörðum, rúmum aldarfjórðungi fyrr. Afrek Vilhjálms eru öllum kunn. Silfurverðlaunin í þrístökki á ÓL í Melbourne 1956 eru hans stóra arfleifð enda braut hann þar blað í íslenskri íþróttasögu. Og hugsið ykkur að Íslands- metið í þrístökki sem hann setti 7. ágúst árið 1960 (sjö dögum áður en ég fæddist) stendur enn og mun eflaust gera það langt fram eftir 21. öldinni. Vilhjálmur stökk 16,70 metra og sá sem er í öðru sæti á íslensku afrekaskránni stökk 15,29 metra nítján árum síðar. Tæplega hálfum öðrum metra styttra. Hugsið ykkur, að þrátt fyrir allar þær framfarir sem hafa orð- ið á þeim tæpum 60 árum sem liðin eru frá þessu afreki Vil- hjálms hefði hann náð 8. sæti á síðustu Ólympíuleikum með metstökkinu á Melavellinum sumarið 1960. Sú staðreynd segir meira en mörg orð um afreksmanninn Vil- hjálm Einarsson. Minning hans mun lifa á meðan fjallað verður um íþróttir á Íslandi. BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Ögmundur Krist- insson, landsliðs- markvörður í fótbolta, hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við gríska A- deildarfélagið Larissa. Samningur Ögmundar við Larissa átti að renna út eftir leik- tíðina. Ögmundur gekk til liðs við Larissa frá Excelsior í Hollandi í fyrra og gerði þá tveggja ára samn- ing. Íslendingurinn hefur leikið vel með Larissa og var hann útnefndur leikmaður ársins hjá félaginu á síð- ustu leiktíð. Hann hefur leikið alla sextán deildarleiki Larissa á leik- tíðinni og fengið á sig 22 mörk. Hann hefur þrisvar sinnum haldið hreinu, varið eitt víti og í tvígang verið valinn í lið umferðarinnar. Ögmundur hefur leikið 15 A- landsleiki fyrir Ísland, síðast gegn Katar í nóvember 2017. Verður áfram í Grikklandi Ögmundur Kristinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.