Morgunblaðið - 31.12.2019, Side 36

Morgunblaðið - 31.12.2019, Side 36
36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 2019 Það er ekkert erfitt að sjáhvað laðar leikhúsfólk aðMeistaranum og Marga-rítu. Í þessari viðamiklu og viðburðaríku skáldsögu Búlgakovs er urmull skrautlegra persóna og at- vika. Ærsl og ýkjur í bland við djúpa alvöru. Svo gerist hún á skömmum tíma á þröngt og skýrt skilgreindum stað (tveimur reyndar) og að hluta til í leikhúsi. Fyrir utan bíður síðan þétt skipaður hópur aðdáenda bókarinnar. Ekki er samt allt sem sýnist, ekki frekar en í Moskvuborg þessa klukkutíma sem prófessor Woland og fylgdarlið hans fara þar um með ærslum og uppljóstrunum. Dæma lifendur og dauða gætum við sagt ef við værum í skapi til að guðlasta. Fljótlega ætti líka að renna upp fyr- ir leikgerendunum að það er snúið að þýða það sem gerir frægustu bók Búlgakovs, sem sjálfur var reyndar ekki síst leikskáld, svona heillandi yfir á mál leikhússins. Svo dæmi sé nefnt: þegar árekstrar hins hvers- daglega og þess yfirnáttúrulega eru komnir upp á svið (þar sem allt er mögulegt) þá verða galdrarnir bæði sjálfsagðir, og líka fullkomlega gegnsæir. Leikhús er nefnilega hvorki bók, sem treystir á almáttugt ímyndunarafl lesandans, né CGI- vætt kvikmyndaver þar sem allt er hægt. Þá er nokkuð snúið að miðla dýpt- inni í örlagasögunum þremur sem eru þungamiðja bókarinnar, innan um allt sjónarspilið. Meistarinn, Margaríta og þó einkum Pílatus, eru tragískar persónur, en harmur þeirra býr innra með þeim. Til að öðlast meðlíðan og skilning á sálar- stríði landstjórans í Júdeu eftir fund sinn með Jesúa Ha-Notsri þurfum við þann aðgang að hugsunum hans sem Meistarinn og Búlgakov gefa okkur. Ef ætti að koma því til skila í leiksýningu þyrfti að skera rækilega niður sviðstíma kattar og kórstjóra. Og hver vill það? Eru það ekki aðal- lega þeir sem fólkið vill sjá? Leikgerð Niklas Rådstöm leysir ekki þennan vanda og sviðsetning Hilmars Jónssonar kemur ekki nægilega til hjálpar. Rådstöm er ákaflega trúr bókinni, rekur nánast allt efni hennar í hér um bil sömu röð og þar er gert svo útkoman verð- ur bæði heldur ódramatísk og óþarf- lega löng. Þá er hann ákaflega treg- ur til að sleppa nokkru því sem glatt gæti trygga lesendur bókar Búlga- kovs. Það endar stundum í einhvers- konar málamiðlunum, þar sem tæpt er á skemmtilegu efni án þess að gefa því raunverulegt líf. Hinn óstöðvandi kór er eitt dæmi og ann- að er tilgangslaus endursögn Koro- vévs og Behemots á orðaskiptum sínum við yfirþjóninn á veitingahús- inu. Útkoman gleður engan nema innvígða aðdáendur sem nægir smjörþefur. Hilmari tekst síðan ekki að leysa þann vanda sem eðlislægar tak- markanir leiksviðsins skapa, þó gangverk sýningarinnar sé lipurt og umbreytingar fumlausar í flottri og snjallri, en kannski dálítið karakt- erlausri leikmynd Sigríðar Sunnu Reynisdóttur og glæsilegri lýsingar- umgjörð Halldórs Arnar Óskars- sonar. Spennan milli þess yfirnátt- úrulega og hins hversdagslega í þessu guðlausa harðstjórnar- og eftirlitsríki lifir ekki af ferðina upp á leiksvið þar sem allt er mögulegt og talandi köttur í yfirstærð er bara leikari í loðfeldi. Fjarvera samhengisins sem sagan er skrifuð inn í er síðan kapítuli út af fyrir sig. Við fáum aldrei tilfinningu fyrir Moskvu Stalínstímans með sinni gráu kúgun, ósýnilegu ógn, skorti, þrengslum og spillingu. Búlgakov gekk út frá meðvitund les- enda um þetta, leikgerð og sviðsetn- ing virðist líta svo á að það skipti ekki máli. Ég efast um að það sé rétt. Allavega vakti sýningin hvað eftir annað upp spurninguna: af hverju er verið að sýna mér þetta? Hvert er erindi þessa efnis við mig? Eins og fyrr sagði gerir ágrips- kennd og framvindudrifin leikgerðin aðalpersónunum og sálarkvölum þeirra enga greiða. Fyrir vikið verða Meistari Stefáns Halls Stefánssonar og Pílatus Pálma Gestssonar ekki mjög burðugar persónur þó myndugleikinn kæmist vel til skila hjá þeim síðarnefnda og Stefán fyndi bæði alvöru og skop í smá- mynd sinni af Jesúa. Um Margarítu gegnir aðeins öðru máli, bæði bók og leikgerð sýna hana aðallega í norna- ham, en annars er mynd hennar að stórum hluta í endursögn Meist- arans af ástþrungnum tíma þeirra áður en bókin um Pílatus eyðileggur allt. Birgitta Birgisdóttir skilaði undrun og gleði hinnar umbreyttu Margarítu vel. Bjarni Snæbjörnsson var skoplegur þar sem rennur upp fyrir Ívan hans Bésdomní að þó hann sé ekki geðveikur þá muni eng- inn trúa öðru en að svo sé. Sigurður Sigurjónsson var yndislega ísmeygi- legur sem Woland og hvert einasta af hinum mörgu hnyttiyrðum þess skrattakolls hitti í mark í salnum. Sýningin staðfestir líka það sem At- ómstöðin gaf vísbendingu um: það er fyllsta ástæða til að binda vonir við Ebbu Katrínu Finnsdóttur sem er myndugleikinn uppmálaður sem Korovév, hin athafnasama og köfl- ótta hægri hönd kölska og kórstjóri í hjáverkum. Oddi Júlíussyni tókst hins vegar ekki að leysa þann vanda að gera köttinn Behemoth skemmti- legan. Hið alltumlykjandi gervi Tinnu Ingimarsdóttur og búningur Evu Signýjar Berger þvældust líka fyrir, en kannski eru skemmtilegheit Behemoths líka illflytjanleg af blaði á svið eins og áður sagði. Aðrir leik- endur bregða sér í fjölmörg hlutverk og gekk það allt lipurlega. Búningar Evu Signýjar eru glæsi- legir og íburðarmiklir, ekki síst biblíumyndaraunsæið í píslarsög- unni. Ég hefði samt kosið að Rúss- land fjórða áratugarins birtist okkur jafn skýrt. Tónlist Valgeirs Sigurðarsonar hefði líka getað hjálp- að okkur betur að upplifa stund og stað. Hún hjálpaði eflaust við að skapa réttu hughrifin, en dálítið sviplaus, fyrir utan tröllslega útgáfu vínarvalsins á ballinu endalausa. Það má hafa gaman af einu og öðru í þessari stórsýningu, en ekki hvað. Engu að síður vekur nokkra furðu að þessari dálítið gamaldags leikgerð á torsviðsettri erlendri skáldsögu sé fenginn slíkur heið- urssess á leikárinu. Dómar um frumuppfærslu Dramaten benda ekki til að þar hafi verið unninn ein- hver mikilsháttar listrænn sigur heldur. Sýningin verður auðvitað sjálf að sannfæra áhorfandann um erindi sitt. Það gerir Meistarinn og Margaríta ekki svo fullnægjandi sé. Skrattinn skemmtir sér Ljósmynd/Hörður Sveinsson Ísmeygilegur Sigurður Sigurjónsson var yndislega ísmeygilegur sem Woland og hvert einasta af hinum mörgu hnyttiyrðum þess skrattakolls hitti í mark í salnum, að því er fram kemur í gagnrýni um Meistarann og Margarítu. Þjóðleikhúsið Meistarinn og Margaríta bbmnn Eftir Niklas Rådstöm, byggt á skáldsögu Mikhaíl Búlgakov. Þýðing og leikstjórn: Hilmar Jónsson. Leikmynd: Sigríður Sunna Reynisdóttir. Búningar: Eva Signý Berger. Lýsing: Halldór Örn Ósk- arsson. Tónlist: Valgeir Sigurðsson. Sviðshreyfingar: Chantelle Carey. Hljóðmynd: Valgeir Sigurðsson, Aron Örn Arnarsson og Kristinn Gauti Ein- arsson. Leikgervi: Tinna Ingimarsdóttir. Leikendur: Bjarni Snæbjörnsson, Björn Ingi Hilmarsson, Brigitta Birgisdóttir, Ebba Katrín Finnsdóttir, Edda Björg- vinsdóttir, Gunnar Smári Jóhannesson, Hákon Jóhannesson , Hildur Vala Baldursdóttir, Oddur Júlíusson, Pálmi Gestsson, Sigurður Sigurjónsson, Stef- án Hallur Stefánsson, Þórey Birgisdótt- ir og Þröstur Leó Gunnarsson. Frumsýnt á stóra sviði Þjóðleikhússins fimmtudaginn 26. desember 2019. ÞORGEIR TRYGGVASON LEIKLIST Bandaríski rokkabillísöngvarinn og gítarleikarinn Sleepy LaBeef, sem lengi hefur notið mikilla vinsælda innvígðra í heimi þeirrar tónlistar, er látinn 84 ára að aldri. LaBeef kom fyrst fram á sjónar- sviðið um miðjan sjötta áratug síð- ustu aldar þegar Sun Records- útgáfufyrirtækið gerði við hann samning, rétt eins og við jafnaldra hans Elvis Presley. LaBeef auðn- aðist þó aldrei á sínum langa ferli að senda frá sér metsöluplötu eða komast hátt á vinsældalista. Hann naut hins vegar mikillar hylli fyrir líflega og ófyrirsjáanlega tónleika sína og áratugum saman var hann á nær endalausu tónleikaferðalagi og kom fram um tvö hundruð sinnum á ári. LeBeef var fjölhæfur tónlistar- maður sem snerti á rokki, blús, suðurríkjagospel- og kántrítónlist en var fyrst og fremst kenndur við rokkabillí. Á áttunda og níunda áratugnum var hann í fararbroddi þeirra sem leiddu endurreisn þeirrar tónlistar. Í andlátsfrétt The New York Times segir að LaBeef hafi haft um 6.000 lög á takteinum. Hafi hann á tónleikum iðulega grip- ið nánast handahófskennt úr þeim stabba, svo meðleikarar hans hafi átt fullt í fangi með að fylgja honum eftir. Valið hafi farið eftir stemn- ingunni í salnum hverju sinni. Rokkabillíkappinn Sleepy LaBeef allur Ljósmynd/Wikipedia Goðsögn Sleepy LaBeef var dáður í heimi rokkabillítónlistarinnar. ICQC 2020-2022

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.