Morgunblaðið - 31.12.2019, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 31.12.2019, Qupperneq 37
MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 2019 GLEÐILEGT NÝTT ÁR Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is LOKAKAFLINN Í SKYWALKER SÖGUNNI FRUMSÝND 10. JANÚAR Myndlistarsýningar ársins Myndlistarrýnir Morgunblaðsins, Aldís Arnardóttir, og Einar Falur Ingólfsson, umsjónarmaður menningarefnis í blaðinu, benda á nokkrar af þeim fjölmörgu sýningum sem þau sáu á árinu og þótti vera á meðal þeirra eftirtektarverðustu. Anna Guðjónsdóttir – Hluti í stað heildar Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús. Anna breytti öllum salnum í einskonar sýn- ingarskáp sem gestir gengu inn í, umvafðir málverkum sem spegla rýmið sjálft en opn- uðu jafnframt inn í aðra og ófyrirséða heima. Auk stórra lakkmálverka og járnramma sem mynda formin málaði Anna beint á veggi. „Anna skapar afar hugvitsamlega útfærðan heim í krefjandi rými í A-salar safnsins, þar sem rýnt er í hefðir landslagsmálverksins. Hárfínt samspil sjónarhorns áhorfandans og verksins í rýminu er með því besta sem sést hefur í Hafnarhúsinu á undanförnum árum.“ Hárfínt og hríf- andi samspil William Morris – Alræði fegurðar Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir. Á vel útfærðan hátt kynntust gestir allra- handa verkum hins áhrifamikla breska hönn- uðar, skálds og listamanns Williams Morris (1834-1896). Auk þess mátti sjá listaverk eftir þekkta listamenn úr vinahópi hans. „Öll umgjörð í kringum yfirlit hönnunar- verks Willams Morris er í senn fræðandi og falleg. Það er mikill fengur að sýningu þar sem slíkum listsögulegum gersemum eru gerð vönduð skil líkt og sjá má á Kjarvals- stöðum.“ Listsögulegar gersemar Eyborg Guðmundsdóttir - Hringur, ferhyrningur, lína Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir. Sýningarstjórar: Heba Helgadóttir og Ingibjörg Sigurjónsdóttir. „Eyborg var ein fárra íslenskra listamanna sem héldu lífinu í þróun abstraktlistarinnar hér á landi á þessum tíma. Hún hafði sérstöðu í karllægum heimi myndlistarinnar og hver veit í hvaða átt verk hennar hefðu þróast hefði henni unnist aldur til að vinna lengur að sinni merku listsköpun […] Þetta er sýning sem enginn listunnandi ætti að láta framhjá sér fara og þótt biðin eftir henni hafi verið löng [var hún] sannarlega biðarinnar virði.“ Var sannarlega biðarinnar virði Guðjón Ketilsson – Teikn Listasafn Reykjanesbæjar. Sýningin var sett saman út átta verkum sem fjölluðu með einum eða öðrum hætti um tákn, táknmerkingu og „lestur“, í víðum skilningi, í þrívíðum verkum sem teikningum. „Guðjón er einstaklega hagur listamaður en beitir handverkinu ætíð á hugvitsamlegan hátt til að þjóna útfærslu hverrar hug- myndar. Á sýningunni má til að mynda sjá teiknaðar og afar persónulegar útgáfur Passíusálmanna, „ljóð“ mótuð úr trjágrein- um, skúlptúra úr húsgögnum og bókum, og mikla veggteikningu; og saman mynda verk- in heildstæðan og hrífandi táknrænan heim.“ HagleiksheimurBjarni H. Þórarinsson – Víðróf BERG Contemporary. Sýningarstjóri: Aðalheiður Valgeirsdóttir. Á sýningunni voru á annað hundrað áður ósýndra Vísirósa Bjarna en þær eru hluti af viðamiklu verkefni sem hófst árið 1987. „Í fínlegum og formföstum blýantsteikningunum hef- ur Bjarni skapað mynd- heim sem er einstakur í ís- lenskri list. Tungumálið og myndformin verða eitt og fengu þessi sérstöku verk að njóta sín sem aldrei fyrr í fallegri og markvissri framsetn- ingu í galleríinu.“ Einstakur heimur A Kassen – Móðir og barn Kling og Bang, Marshall-húsinu. Á sýningunni mátti sjá verk eftir hinn þekkta danska myndlistarhóp A Kassen. Meðlimirnir eru Christian Bretton-Meyer, Morten Steen Hebsgaard, Soren Petersen og Tommy Petersen sem stofnuðu A Kassen í Kaupmannahöfn árið 2004. „Í meðförum danska listahópsins A Kassen er hlutunum bókstaflega snúið á hvolf á írón- ískan hátt í sýningarsal Kling og Bang í Marshallhúsinu, á sýningu sem er í senn fá- ránleg, fyndin og forvitnileg.“ Snúið á hvolf Sequences IX – Í alvöru Kling og Bang, Nýlistasafnið og Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar. Sýningarstjórar Ingólfur Arnarsson og Hildigunnur Birgisdóttir. „Sequences listahátíð er dæmi um vel heppn- aðan myndlistarviðburð sem hefur verið að vaxa og dafna með hverju árinu sem líður. Á Se- quences IX - Í alvöru var tekist á við hugtakið raun-tími á opinn og leitandi hátt. Áhuga- verður og stundum óvæntur vettvangur skapaðist víðsvegar um borgina með úr- vinnslu fjölbreytts hóps listamanna sem vinna í ólíka miðla.“ Áhugavert og stundum óvænt Sigurður Árni Sigurðsson – Leiðréttingar Hverfisgallerí. „Á sýningunni var úrval fleiri tuga verka, ljós- mynda og póstkorta, sem listamaðurinn hefur „leið- rétt“ með kerfisbundnum og afar persónulegum hætti, og beitt við það ótví- ræðum teiknihæfileikum, á síðustu þremur áratugum. Leiðréttingarnar tengj- ast á margvíslegan hátt öðrum verkum Sig- urðar Árna, þar sem hann hefur tekist á við hinn tvívíða flöt, skugga og þrívíða blekk- ingu. Um leið opnast í þeim einstakir heimar, þær eru oft hlægilegar, í öðrum tilvikum ögr- andi og gagnrýnar, og vekja áhorfandann til umhugsunar.“ Meistaralegar leiðréttingar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.