Morgunblaðið - 11.12.2019, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2019FRÉTTIR
Mesta lækkun Mesta hækkun
VIKAN Á MÖRKUÐUM
AÐALMARKAÐUR ÁLVERÐ ($/tonn)
VIS
-1,54%
10,85
ICEAIR
+8,00%
8,64
S&P 500 NASDAQ
+0,84%
8.642,916
+0,68%
3.138,75
+1,13%
7.218,64
FTSE 100 NIKKEI 225
11.6.‘19 11.6.‘1910.12.‘19
1.600
80
1.751,23
Unnið í samstarfi við IFS.Hreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær.
64,4
+0,47%
23.410,19
62,29
40
2.000
10.12.‘19
BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu)
1.778,0
Ofsaveðrið sem gengið hefur yfir
landið hefur haft víðtæk áhrif á
starfsemi fjölmargra fyrirtækja og
haft í för með sér tekjutap. Rútu-
fyrirtæki þurftu að aflýsa öllum sín-
um ferðum í gær og eitthvað af ferð-
um munu falla niður í dag. Þá var
tugum flugferða og lendinga aflýst á
Keflavíkurflugvelli í gær hjá alls sjö
flugfélögum að sögn Guðjóns Helga-
sonar, upplýsingafulltrúa Isavia.
Að sögn Björns Ragnarssonar,
framkvæmdastjóra rútufyrirtækis-
ins Kynnisferða, nemur tekjutap fé-
lagsins vegna veðurofsans um 20
milljónum króna. Kynnisferðir
þurftu að aflýsa öllum dagsferðum í
gær og að hluta til í dag en fyrir-
tækið veltir um 400 milljónum á
mánuði að sögn Björns. „Maður veit
að svona gerist kannski einu sinni til
tvisvar á vetri. En maður veit ekki í
hvaða mánuði þetta gerist. Það er
því aldrei hægt að áætla fyrir þessu
nákvæmlega en við metum þetta í
heildaráætlun félagsins á milli ára,“
segir Björn.
Setur markmið ekki í uppnám
Bogi Nils Bogason, forstjóri Ice-
landair Group, segir að félagið hafi
þurft að fella niður 24 flugferðir og
fresta 15 vegna veðurs í gær en gat
ekki sett fram neina tölu um fjár-
hagslegt tjón fyrirtækisins vegna
þess. „Öryggi og hagsmunir farþega
eru að sjálfsögðu alltaf í fyrirrúmi,
en raskanir á flugi eins og þessar
hafa bæði í för með sér kostnað og
tekjutap,“ segir Bogi og nefnir að fé-
lagið greiði t.d. hótelgistingu fyrir
farþega sem eru fjarri heimili sínu,
sem eru lítill hluti þeirra farþega
sem lentu í seinkun flugs. Samtals
höfðu þessar raskanir áhrif á um
4.000 farþega. Í uppgjöri félagsins
fyrir þriðja ársfjórðung kom fram að
kostnaður vegna truflana á leiða-
kerfi hafi verið um 45 milljónir
bandaríkjadala á árinu 2018. Að
sögn Boga kemur sá kostnaður víða
fram í starfsemi félagsins en Ice-
landair tókst að minnka hann um sjö
milljónir á þriðja ársfjórðungi með
bættri stundvísi og stefnir að því að
minnka hann enn frekar, eða um
40% á árinu 2019. Að sögn Boga setti
veðrið í gær þó ekki það markmið í
uppnám. „Nei, ekki í stóru mynd-
inni. Við erum að reka flugfélag
hérna á Íslandi og gerum alltaf ráð
fyrir því að það komi einhverjir dag-
ar yfir vetrartíminn sem trufla leiða-
kerfið.“
Að mati forráðamanna ferðaþjón-
ustufyrirtækisins Tröllaferða, sem
velti 966 milljónum króna í fyrra,
veltur tekjutap fyrirtækisins á því
hversu margir munu endurbóka í
ferðir fyrirtækisins. Tekjutap fyrir-
tækisins fyrir gærdaginn yrði því
tæplega 10 milljónir króna færi svo
að enginn bókaði aðrar ferðir, sem
talið er ólíklegt. Að sögn Heimis
Hannessonar, rekstrarstjóra hjá
Tröllaferðum, geta fjárhagsleg áhrif
vegna svona slæms veðurs verið
mikil. „En það er hægt að takmarka
tekjutap ef upplýsingar liggja fyrir
um lokanir hjá Vegagerð og við-
bragðsaðilum eins tímanlega og ís-
lenskt óveður leyfir. Tekjutapið ligg-
ur fyrst og fremst í því að tekjur
hverfa en þorri kostnaðar, þ.e. laun
starfsmanna, verður eftir, og svo
auðvitað eignatjón sem getur orðið
talsvert,“ segir Heimir.
Ofsaveðrið setur víða strik
í reikning fyrirtækja
Pétur Hreinsson
peturh@mbl.is
Tekjutap einstakra fyrir-
tækja nemur allt að 20
milljónum vegna ofsa-
veðursins sem geisað
hefur á landinu.
Morgunblaðið/Eggert
Ofsaveðrið setur strik í reikning rútufyrirtækja og nemur tekjutap Kynnisferða vegna þess um 20 milljónum króna.
FJARSKIPTAMARKAÐUR
Síðan fjarskiptafélagið Sýn hf.
keypti 365 árið 2017, og þar með
mörg þúsund viðskiptavini í far-
síma, nettengingum og sjónvarps-
þjónustu, hefur orðið samdráttur í
áskriftum á öllum þremur svið-
unum. Þetta má lesa út úr tölfræði-
skýrslu Póst- og fjarskiptastofn-
unar.
Í töflu yfir fjölda áskrifta farsíma
sést til að mynda að 16.752 við-
skiptavinir fluttust yfir til Sýnar ár-
ið 2017. Jókst viðskiptavinafjöldi
Sýnar við það úr 94.491 í 112.608.
Nú hefur þessum viðskiptavinum
fækkað um fjögur þúsund, niður í
108.767.
Séu nettengingar skoðaðar sést
að 14.897 netáskriftir komu frá 365.
Þannig fjölgaði áskrifendum Sýnar
úr 34.614 í 48.734. Nú hefur þeim
fækkað um rúmlega fjögur þúsund,
niður í 44.459.
Enn meiri flótti hefur orðið úr
sjónvarpsþjónustu Sýnar. 5.914
sjónvarpsáskriftir komu til Sýnar
frá 365 og fjölgaði við það áskrif-
endum Sýnar úr 38.164 í 44.085. Nú
hefur þessi tala lækkað um nærri
fimm þúsund, og er nú 39.341.
Morgunblaðið/Hari
Talsvert hefur gefið á bátinn hjá Sýn.
Samdráttur
í áskriftum
NETVERSLUN
Samkvæmt nýbirtri neyslukönnun
Gallup hafa aldrei fleiri Íslendingar
verslað á netinu en í ár, en sam-
kvæmt könnuninni versluðu 76,8%
Íslendinga á netinu síðustu 12 mán-
uði.
Í frétt á vef Gallup segir að heilt á
litið hafi orðið vöxtur í öllum vöru-
flokkum sem mældir hafa verið síð-
ustu ár. „Þeir vöruflokkar sem eru
hvað sterkastir í netverslun hérlendis
eru gisting og miðar á viðburði, en
61,5% landsmanna sögðust hafa
keypt miða á viðburð í netverslun síð-
astliðið ár og 56,8% hafði keypt gist-
ingu,“ segir í fréttinni. Þá segir sem
dæmi að 47,7% hafi keypt föt, og
17,7% matvöru á netinu síðastliðið ár,
samkvæmt Gallup.
21% bjóða netverslun
Í frétt á vef Hagstofunnar undir
yfirskriftinni Sala og markaðssetning
fyrirtækja á netinu árið 2019, segir
að samkvæmt samevrópskri rann-
sókn á viðskiptum fyrirtækja í gegn-
um netið bjóði nú 21% íslenskra fyr-
irtækja upp á vörur og þjónustu í
gegnum vefsíður eða öpp árið 2019.
Diðrik Örn Gunnarsson, faglegur
framkvæmdastjóri MediaCom, segir
í samtali við ViðskiptaMoggann að
það sem veki mesta athygli í gögnum
Hagstofunnar, sé hve litlu munar á
Íslandi og nágrannalöndunum. „Á
meðan við erum með 21% hlutfall
verslana sem bjóða upp á netverslun,
þá eru Danir og Norðmenn með
25%.“
Diðrik segist sakna þess að sjá
meira niðurbrot í tölum Hagstof-
unnar og því geti tölurnar virst vill-
andi. „Verslun á netinu getur flokk-
ast í smávöruverslun og svo í
þjónustu eins og miðakaup eða flug-
ferðir. Þetta er dálítið ólíkt.“
Aldrei fleiri Íslending-
ar verslað á netinu
Morgunblaðið/Hari
Heimkaup er vinsæl netverslun.