Morgunblaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 5
Ljósmyndir/Björn Árnason
Hunangs chili-kartöflur
400 g litlar kartöflur (ef þær eru ekki til er hægt að skera stórar í bita)
60 ml sojasósa
100 ml hunang
1 msk. chili-flögur
Skerið kartöflurnar í báta og veltið þeim upp úr olíu. Setjið í eldfast mót og bak-
ið í 25 mínútur við 180 °C. Takið kartöflurnar úr ofninum. Hitið pönnu með olíu á
og steikið kartöflurnar. Bætið sojasósunni og hunanginu út á og leyfið þessu að
karamellast utan um kartöflurnar. Slökkvið undir pönnunni og bætið svo chili-
flögunum út á.
FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2019 MORGUNBLAÐIÐ 5
Hvítsúkkulaðiostakakan
680 g rjómaostur
75 g sykur
150 g hvítt súkkulaði
320 ml rjómi
Bræðið hvíta súkkulaðið. Þeytið
rjómaostinn og sykurinn saman.
Hellið hvíta súkkulaðinu saman við.
Blandið svo varlega saman hvít-
súkkulaðiblöndunni og þeytta rjóm-
anum. Passið að hafa allt hráefnið
vel kalt og geymið í kæli þangað til
þið setjið trifle-ið svo saman.
Karamellu-brownie
250 g smjör, mjúkt
250 g sykur
4 egg
65 g kakó
175 g hveiti
3 rúllur Rolo-nammi, skerið
hverja karamellu í tvennt
Þeytið smjör og sykur mjög vel
saman í hrærivél. Bætið eggjunum,
einu í einu, út í og blandið vel sam-
an. Bætið svo kakóinu og hveitinu
saman við og loks Rolo-inu eða
þeirri karamellu sem þið kjósið
(Dumley er líka fínt). Bakið við
170°C í 25 mínútur. Kælið kökuna.
Annað sem þarf í trifle-ið er:
Karamellusósa
Piparkökur
Fullt af berjum
Brjótið nokkrar piparkökur og setjið
í botninn á skálinni sem þið viljið
bera þetta fram í. Setjið svo helm-
inginn af hvítsúkkulaðiostakökunni
þar ofan á og sléttið vel úr. Setjið
svo helling af berjum þar ofan á og
karamellusósu. Raðið piparkökum í
kantinn á skálinni. Skerið brownie-
kökuna í bita og raðið þeim ofan á
berin. Setjið svo aftur ber þar ofan
á. Hvítsúkkulaðiostakakan fer svo
þar ofan á og það er efsta lagið.
Skreytið svo með piparkökum,
brownie-bitum, Rolo og berjum.
Það er gott að gera trifle-ið fyrr um
daginn og leyfa því að linast dálítið
upp en skreyta bara rétt áður en þið
berið þetta fram.
Truflað trifle með piparkökum, karamellu-
brownie og hvítsúkkulaðiostaköku
Balsamrauðkál
1 haus rauðkál
2 rauð epli
2 laukar
8 negulnaglar
1 kanilstöng
2 anísstjörnur
100 g smjör
50 g púðursykur
100 ml balsamikedik
100 ml vatn
150 g berjasulta
Skerið rauðkálið, eplin og
laukana gróft. Setjið í pott
með smjörinu og krydd-
unum og steikið vel sam-
an. Bætið púðursykrinum
út í og svo balsamikedik-
inu og vatninu. Sjóðið við
vægan hita í svona 50
mínútur. Bætið svo sult-
unni út í og sjóðið áfram í
smástund.