Morgunblaðið - 05.12.2019, Side 9
Tveir fasanar
1 dl olía
75 g smjör
8 sneiðar serrano-skinka
timjan
salt
pipar
Fasaninn þerraður, saltaður og
pipraður. Þá er olían og smjörið
hitað í djúpri pönnu þar til byrjar
að freyða aðeins, þá er fasaninn
steiktur í olíunni/smjörinu á öllum
hliðum. Þegar hann er orðinn gull-
inbrúnn þá er hann settur í eldfast
mót ásamt öllu smjörinu. Bring-
urnar þerraðar örlítið og sýrða
rjómanum smurt yfir og 4 sneiðar
af skinku lagðar þar ofan á.
Nokkrar timjangreinar eru settar
inn í fuglinn og hann settur inn í
heitan ofn á 180°C í um það bil 45
mínútur. Tvisvar á þeim tíma er
gott að taka fasanann út og ausa
yfir hann smjörinu úr fatinu. Hann
þarf þá að hvíla í allavega 10 mín-
útur áður en hann er skorinn og
borðaður.
Sýrði rjóminn
1 dós 36% sýrður rjómi
2 hvítlauksgeirar
3 greinar timjan
salt
Öllu hrært saman. Fasani nýtur
mikilla vinsælda um heim allan og
þykir herramannsmatur. Í útliti
minnir kjötið á kjúkling en það er
að öllu leyti bragðmeira og safa-
ríkara. Það er sakir þess að fasani
er villtur fugl og alinn upp við allt
aðrar aðstæður en kjúklingur á
hænsnabúi. Þegar fasaninn á
myndinni var eldaður í höfuð-
stöðvum Árvakurs ríkti töluverð
eftirvænting enda hafa ekki allir
smakkað þetta frábæra kjöt. Var
það mál manna að þarna væri hin
fullkomna jólasteik loks fundin.
Fasani
Kjötið er tekið út úr kæli
svona 3-4 tímum fyrir
eldun svo það sé ekki
kalt þegar það fer á
pönnuna.
Kryddað með salti og
pipar. Þá er það sett á
mjög heita pönnu, og
steikt þar til góð húð
myndast á kjötinu, snúið
við og smjöri bætt á
pönnuna, gott er að setja
hvítlauk og timjan út í
smjörið líka, en ekki
nauðsynlegt. Sósan er
síðan gerð á sömu
pönnu svo ekki þrífa
hana á milli. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Krón-
hjörtur
FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2019 MORGUNBLAÐIÐ 9
Smjörsprautað
kalkúnaskip
Þennan hamborgarhrygg þarf ekki að
sjóða. En hann er settur í eldfast mót
eða ofnskúffu ásamt 5-6 dl af köldu
vatni. Settur í ofn á 160°C í 90 mín-
útur, þá tekinn út, penslaður með
gljáanum og settur aftur inn í ofn í 15
mínútur, en þá á 220°C.
Gljái
150 g púðursykur
5 msk. sætt sinnep
3 msk. appelsínumarmelaði
Brætt saman í potti og penslað yfir hrygginn, geymdu smá fyrir sós-
una.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hagkaups
hamborgar-
hryggur
1 rúlla Hagkaups-hangikjöt saltminna
2 msk. sykur
Ef á að bera hangikjötið fram heitt er það sett í pott með köldu vatni og hit-
að upp að suðu, þá er bætt 2 msk. af sykri út í vatnið og síðan soðið í 45
mínútur á hvert kg. Tekið upp úr og skorið niður í sneiðar.
Ef á að bera hangikjötið fram kalt er það sett í pott með köldu vatni og hitað
upp að suðu, þá er 2 msk. af sykri bætt út í vatnið og síðan soðið í 40 mín-
útur á hvert kg. Þá slökkt undir og hangikjötið látið kólna í soðinu.
Morgunblaðið/Hari
Hangikjöt
Morgunblaðið/Hari
Hangikjötið kom skemmtilega á óvart því það var ekki nokkur leið
að finna að það væri saltminna þannig að þessi bragarbót bitnaði
ekki á bragðgæðunum.