Morgunblaðið - 05.12.2019, Side 19
FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2019 MORGUNBLAÐIÐ 19
Eftirréttir eins og
á bestu veitingastöðum
Fyrir ís
og ístertur
Fyrir
Creme Brulée
Berglind Guðmundsdóttir á þessa uppskrift sem er
sneisafull af alls kyns sælgæti sem saman myndar
eina bragðbestu köku sem bökuð hefur verið.
75 g döðlur, steinlausar
50 g marsipan
50 g púðursykur
50 g möndlur
50 g kókosmjöl
100 g haframjöl
1 tsk. engiferkrydd
1 tsk. kanill
½ tsk. sjávarsalt
½ tsk. lyftiduft
100 g smjör, brætt
400 g karamellusósa *
75 g dökkt súkkulaði
25 g hvítt súkkulaði
Látið döðlur og marsipan í matvinnsluvél og blandið
saman. Bætið púðursykri, möndlum, kókosmjöli,
haframjöli, engifer, kanil, salti og lyftidufti saman við og
setjið matvinnsluvélina á hæstu stillingu þar til möndl-
urnar eru smátt saxaðar. Bræðið smjörið og hrærið vel
saman við.
Setjið smjörpappír á 15x30 cm form og látið deigið í
og þrýstið niður. Látið í 180 °C heitan ofn og bakið í 10
mínútur.
Takið úr ofni og hellið karamellunni yfir og bakið í ofni í
12 mínútur eða þar til karamellan er farin að brúnast.
Takið úr ofni.
Hitið dökka súkkulaðið yfir vatnsbaði og dreifið yfir
kökuna. Bræðið hvíta súkkulaðið og notið til að skreyta
með fíngerðum línum.
Kælið kökuna og skerið svo í litla bita.
Ég gerði karamellusósu með því að bræða 100g af
smjöri og bæta 100 g af púðursykri saman við. Þegar
þetta er bráðnað bæti ég hálfri dós af niðursoðinni mjólk
sem fæst orðið í flestum matvöruverslunum. Læt þetta
malla við vægan hita í nokkrar mínútur þar til þetta er
orðið að karamellu. Rosalega góð. En einnig er hægt að
kaupa þykka karamellu í matvöruverslunum, t.d. með
sjávarsalti.
Morgunblaðið/Eggert
Konfektkaka með karamellu
Fyrrverandi Bocuse d’Or-keppand-
inn og landsliðskokkurinn Bjarni
Siguróli Jakobsson er þessa dag-
ana á fullu við að sinna veisluþjón-
ustunni Nomy sem hann rekur
ásamt félögum sínum. Hann gaf
sér þó tíma til að gefa okkur þessa
keppnisuppskrift að súkkulaðimús.
Mjólkursúkkulaðimús með
estragon sýrópi, vanilluís,
íslenskum aðalbláberjum,
skógarsúrum frá Ártanga
og kristölluðum
kakóbaunum
Mjólkursúkkulaðimús
150 g rjómi 1
25 g glúkósasýróp
25 g hunang
375 g 33% mjólkursúkkulaði
400 g rjómi 2
1. Bræðið súkkulaðið í örbylgjuofni
eða yfir vatnsbaði.
2. Sjóðið rjóma 1, hunang og glúk-
ósasýróp saman og hellið í
skömmtum yfir súkkulaðið og
vinnið saman með sleif.
3. Bætið restinni af rjómanum
saman við og kælið í a.m.k. 3
klst.
4. Þeytið músina varlega uns hún
er orðin eins og léttþeyttur rjómi.
Estragon síróp
1 búnt estragon
hunang
Setjið hunang og búnt af fersku
estragoni í blandara og maukið
saman, sigtið í gegnum fínt sigti.
Kristallaðar kakóbaunir
200 ml sykur
50 ml vatn
150 g kakóbaunir
Ristið kakóbaunirnar í ofni á 150
gráður í 10 mínútur
Á meðan setjið þið sykur og vatn
saman í pott og sjóðið á háum hita
uns sykurlögurinn þykknar mjög,
við viljum fá sírópið í 140 gráður.
Best er að nota nákvæman kjarn-
hitamæli.
Setjið kakóbaunirnar í mat-
vinnsluvél og maukið, hellið 140
gráðu heitu sírópinu í mjórri bunu
út í.
Þegar allt sýrópið er búið ætti
blandan að vera nokkuð þurrt duft.
Færið yfir á bökunarpappír og látið
kólna.
Annað
rjómaís að eigin vali
íslensk aðalbláber
skógarsúrur frá Ártanga
marengstoppar
Sprautið súkkulaðimúsinni í skál
og búið til holu með bakinu á
skeiðinni. Fyllið holuna með aðal-
bláberjum og rjómaís, puntið með
skógarsúrunum og marengstopp-
um. Hellið smá af estragonsýróp-
inu til hliðar við músina og sáldrið
svo kakóbaunaduftinu yfir réttinn.
Morgunblaðið/Eggert
Súkkulaðimús
Bjarna Siguróla
Morgunblaðið/Hari
Ris a la mande
7 dl mjólk
100 g hrísgrjón – grautargrjón
1 vanillustöng Magdagaskar
3 dl rjómi
50 g flórsykur
Sjóðið hrísgrjónin í mjólkinni ásamt vanillustönginni, á miðlungs-
hita, og hrærið vel í á meðan, svo að mjólkin brenni ekki við. Soðið í
30-40 mínútur eða þar til grjónin eru orðin mjúk undir tönn. Hrís-
grjónin eru þá kæld.
Rjóminn er þeyttur og flórsykri blandað saman við. Síðan er
rjómablöndunni velt út í hrísgrjónin.
Speculoos-karamellusósu frá Joe&Seph’s hellt ylvolgri yfir
ásamt Double covered chocolate popcorn frá Joe&Seph’s.