Morgunblaðið - 05.12.2019, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2019
Veisludrottningin Berglind Hreiðars, sem gaf
okkur einmitt góðu jólaráðin hér framar í
þessu blaði, er hér mætt með kryddköku
sem hún hefur sett í ægifagran jólabúning.
Kakan er einföld og á flestra færi.
Kökubotnar
3 bréf Toro-kryddkökumix
3 egg
6 dl vatn
300 g brætt smjör
1 pk. Royal-vanillubúðingur
2 tsk. kanill
1. Hitið ofninn í 170°C.
2. Hrærið saman egg, vatn og brætt smjör.
3. Bætið kökuduftinu saman við ásamt kanil
og skafið niður á milli þar til blandan er
slétt og fín.
4. Að lokum fer Royal-búðingsduftið saman
við og aftur er blandað vel.
5. Úðið 3x20 cm form með matarolíu og
skiptið deiginu niður á milli formanna.
6. Bakið í um 30 mínútur eða þar til prjónn
kemur hreinn út.
7. Kælið botnana vel og skerið þá ofan af
þeim með kökuskera til að hafa þá alla
jafna og slétta.
Krem
200 g smjör við stofuhita
150 g rjómaostur við stofuhita
250 g Mascarpone-ostur við stofuhita
750 g flórsykur
2 msk. mjólk
2 tsk. vanilludropar
¼ tsk. salt
1. Þeytið saman smjör, rjómaost og Masc-
arpone-ost þar til létt og ljóst.
2. Setjið flórsykurinn saman við í nokkrum
skömmtum ásamt mjólk, vanilludropum
og salti.
3. Hrærið þar til slétt og fallegt krem hefur
myndast.
4. Smyrjið um 1 cm þykku lagi á milli botn-
anna og á toppinn og rétt þekið hlið-
arnar með kremi svo sjáist vel í botnana
í gegn.
5. Skreytið og kælið þar til bera á kökuna
fram.
Skraut
120 ml vatn
100 g sykur + 200 g til að rúlla upp
úr (samtals 300 g)
7 stilkar ferskt rósmarín
50-70 g fersk trönuber
1. Hitið saman sykur og vatn að suðu og
hrærið þar til sykurinn er uppleystur, tak-
ið þá af hellunni.
2. Dýfið rósmaríngreinum í sykurlöginn,
hristið hann aðeins af og leggið þær á
bökunarpappír í um 15 mínútur.
3. Því næst má setja trönuberin í pottinn og
setjið lok/viskastykki yfir og leyfið þeim
að liggja í pottinum í um 15 mínútur.
4. Takið trönuberin upp úr, hristið eins mik-
ið af sykurleginum af þeim og þið getið
og leggið á bökunarpappír í um 30 mín-
útur.
5. Á meðan trönuberin hvíla má setja 200 g
af sykri í grunna og víða skál og rúlla
rósmaríngreinunum upp úr sykrinum og
setja á nýjan hreinan bökunarpappír til
þess að leyfa þeim að þorna.
6. Þegar trönuberin hafa fengið að þorna í
um 30 mínútur má einnig velta þeim upp
úr sykrinum og færa yfir á nýjan
bökunarpappír til að þorna.
7. Það ætti að duga að leyfa þessu að
liggja í 15-30 mínútur og síðan nota til
þess að skreyta kökuna eftir hentug-
leika.
Kryddkaka í jólabúningi
Jólabakstur
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Berglind Sigmarsdóttir, höfundur metsölu-
bókanna Heilsuréttir fjölskyldunnar og eig-
andi GOTT í Vestmannaeyjum, deilir hér upp-
skrift að rúllutertu sem hún segist bjóða upp á
í hádeginu á aðfangadag. Þá komi stór-
fjölskyldan saman í aðfangadagskaffi eða
dögurð og hefur sú hefð haldist í mörg ár.
Berglind segist afskaplega hrifin af þessari
hefð þar sem hún dragi aðeins úr spennu
barnanna og brjóti daginn skemmtilega upp
með samverustund áður en sjálf hátíðin hefst.
Jólarúlluterta
3 egg
2 dl sykur
1 dl hveiti
1 tsk. lyftiduft
2 msk. rauður matarlitur
½ dl kartöflumjöl
1. Hitið ofn í 250°C, yfir- og undirhita.
2. Hrærið egg og sykur mjög vel saman.
3. Blandið á aðra skál saman hveiti, kart-
öflumjöli og lyftidufti. Sigtið þessi þurrefni
saman við smátt og smátt og hrærið með
sleikju.
4. Bætið matarlitnum varlega saman við.
5. Setjið smjörpappír ofan í ofnskúffu, gott að
setja smá olíu undir svo pappírinn límist
niður. Smyrjið svo pappírinn með því að
setja olíu í pappír og bera létt á hann.
6. Hellið deiginu í skúffuna og jafnið út.
7. Fylgist vel með ofninum því kakan þarf
bara 4-5 mín. Takið hana þá út. Breiðið
viskastykki á borðið og stráið hveiti eða
flórsykri yfir það.
8. Hvolfið kökunni á viskastykkið og dragið
bökunarpappír af. Rúllið kökunni upp með
viskastykkinu og setjið inn í ísskáp á með-
an þið gerið kremið.
Ég gerði hvítsúkkulaðismjörkrem á tertuna.
Persónulega finnst mér það í sætara lagi
og spurning hvort hefðbundið smjörkrem
væri betra. Læt hér hvort tveggja fylgja.
Hefðbundið smjörkrem
200 g smjör (við stofuhita)
5 dl flórsykur
1 eggjarauða
2 tsk. vanilludropar
matarlitur ef fólk vill
Setjið smjör, eggjarauðu, flórsykur og van-
illudropa í hrærivélarskál og hrærið vel. Bætið
við örfáum dropum af matarlit þar til réttum lit
er náð.
Hvítsúkkulaðismjörkrem
300 g smjör (við stofuhita)
450 g flórsykur
1 msk. vanilla
3 msk. rjómi
200 g hvítt súkkulaði – brætt yfir vatns-
baði
1. Hrærið smjörið þar til vel mjúkt. Bætið þá
flórsykrinum saman við. Bætið rjóma við
og þeytið vel.
2. Bræðið hvíta súkkulaðið þar til alveg
kekkjalaust og takið af hita.
3. Bætið súkkulaði smám saman út í ásamt
vanillu.
4. Þeytið þar til kekkjalaust og mjúkt.
Peruterturúlla
Í þessa nota ég sama grunn í rúlluna og áður
en set vatn í staðinn fyrir matarlit.
Krem
50 g suðusúkkulaði (brætt yfir vatns-
baði)
3 eggjarauður
1 msk. flórsykur
¼ l rjómi
1 dós perur
1. Þeytið rjómann og setjið til hliðar.
2. Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði og setjið
til hliðar til að kæla aðeins.
3. Þeytið eggjarauður og flórsykur vel í annarri
skál.
4. Blandið súkkulaði saman við, hellið út í í
smá bunu meðan þið hrærið.
5. Blandið saman við rjóma með sleikju. Þeg-
ar blandað, skiptið þá kreminu í tvær skálar
6. Skerið þrjá peruhelminga í litla bita og bæt-
ið út í aðra skálina, ath. að geyma safann.
7. Hellið aðeins af safanum yfir botninn.
8. Setjið kremið með perunum í á botninn og
rúllið.
9. Setjið kremið úr hinni skálinni á rúlluna og
skreytið með þeyttum rjóma, perum eða
því sem þið viljið.
Jólarúlluterta að hætti Berglindar Sigmars
Ljósmynd/Berglind Sigmarsdóttir