Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.12.2019, Side 2
Hvaða uppistand er þetta?
Þetta er á Brew Dog á Hverfisgötu en þeir hafa verið að
prófa sig áfram með uppistandskvöld. Núna á sunnudag
verður Ari Eldjárn líka með og ætlar að prófa efni fyrir ára-
mótaskopið sitt. Við verðum þarna tveir.
Ertu strax farinn að skemmta með stóru
nöfnunum?
Mér finnst þetta frábært tækifæri fyrir Ara, að fá að hita upp fyrir
mig. En að öllu gríni slepptu, þá höfum við Ari verið vinir lengi og
höfum verið að pæla í uppistandi saman. En klárlega er það heiður
fyrir mig að vera með Ara, einum fremsta grínista Íslands.
Hvernig byrjar lögfræðingur í uppistandi?
Ég byrjaði í fyrrasumar að taka þátt í „open-mic“-kvöldi í Stúd-
entakjallaranum. Það var fámennt en það er gott að byrja þannig.
Svo hef ég verið að fikra mig áfram og var meðal annars með sýningu
í haust á Rauða ljóninu, þar sem ég var með Jakobi Birgissyni. Þá var
uppselt á tvær sýningar og svo var ég á Brew Dog í byrjun nóvember.
Að hverju gerirðu grín?
Ég er 38 ára skrifstofumaður og það er mjög stutt í miðaldrakrísu. Ég
vinn sem lögmaður og er þriggja barna faðir sem býr í úthverfi. Ég fer
yfir það hvernig þetta líf er að fara með mig, hvernig líf íslensks lögmanns
er samanborið við bandarísku sjónvarpslögfræðingana sem við sjáum á
skjánum og margt fleira.
Sérðu fyrir þér að hætta í lögmennskunni?
Ég hef mjög gaman af uppistandinu en hugsa að ég hætti ekki lögmennsk-
unni alveg strax.
Morgunblaðið/Ásdís
ÁRNI HELGASON
SITUR FYRIR SVÖRUM
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.12. 2019
Jólaleyndarmál
Matarkjallarans
Tryggðu þér borð á
www.matarkjallarinn.is
Aðalstræti 2 | s. 558 0000
Ég hef mikið dálæti á karlmannsnafninu Jón. Horfumst bara í augu viðþað, Jón er eitt af okkar allra bestu og fallegustu nöfnum og góðreynsla komin á það gegnum aldirnar. Alltof langt mál yrði þó að telja
upp allar kempurnar sem bera eða borið hafa nafnið.
Jón er í raun mörg nöfn en í bókinni Nöfn Íslendinga kemur fram að nafnið
Jón sé stytting af Jóhannes eða Jóhann og líklegt sé að þróunin hafi verið
þessi: Jóhannes, Jóhann, Jóan, Jón. Í því sambandi má rifja upp að spark-
séníið sáluga Johan Cruyff hét alls ekki Johan, heldur Johannes en í Hollandi
eru Jóhannesar gjarnan gælunefndir með þessum hætti.
Ég heyrði mergjaða sögu á dögunum um fjögur sveinbörn úr sömu fjöl-
skyldunni sem voru ausin vatni við sömu athöfnina – og öll nema eitt hlutu
nafnið Jón. „Hvers vegna fær hann
ekki að heita Jón?“ gall þá í hjarta-
hreinu barni í kirkjunni. Er nema
von að spurt hafi verið. En eftir
stendur að hnokkinn sem ekki fékk
að heita Jón getur hvenær sem er
hent í endurminningar sínar undir
titlinum: „Fékk ekki að heita Jón“.
Ég ábyrgist að það yrði metsölubók.
Fræg er sagan af því hér í Hádeg-
ismóum þegar Pétur Blöndal, vinur
minn og samstarfsmaður á blaðinu
til fjölda ára, var að bíða á línunni
eftir samtali við ráðherra í ríkisstjórn Íslands. Sá hét Jón. Og heitir enn.
Meðan hann beið nýtti Pétur, sem er stundum obbolítið utan við sig, tímann
til að spjalla við einhverja konu á Facebook í tölvunni, eða hvað þeir heita
þessir samkvæmismiðlar. Nema hvað, skyndilega kom ráðherra í símann.
Fát kom á Pétur (sem alla jafna heldur þó ró sinni undir hrikalegasta álagi)
og rásum sló saman í kollinum á honum með eftirminnilegum hætti: „Já,
Jón,“ mælti hann hátt og snjallt. „Sæl og blessuð!“ Ég get svo svarið að þá
þurftum við sessunautur minn, Jón að nafni, að bregða okkur frá til þess að
trufla ekki símtalið og jafna okkur enda frussuðum við og skyrptum úr hlátri.
Sjálfur þekki ég mann sem heitir Jón og er mér afskaplega kær. Hann
trúði mér einu sinni fyrir því að hann hefði aldrei verið almennilega sáttur við
nafnið sitt. Hvers vegna? spurði ég þá, eins og þið gerið væntanlega núna.
Þetta er nú einu sinni lofpistill um nafnið Jón. Jú, Jóni finnst nafnið í raun
ekki vera neitt nafn. „Hvernig heldur þú að það sé að heita nafni sem ekki er
til í nefnifalli?“ spurði Jón og sló sér á lær. Þar á hann við að Jón sé í raun
þolfallsmynd, líklega af nafninu Jónn (borið fram Jódn), samanber prjónn
sem er gott og gilt íslenskt orð sem beygist með eðlilegum hætti. „Það er nær
lagi að heita Jónn,“ hélt Jón áfram og hefur þarna talsvert til síns máls. Og
voldugt er nafnið á prenti, því getur enginn mælt í mót – Jónn!
Jón
Pistill
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
’Hvers vegna fær hannekki að heita Jón?“gall þá í hjartahreinubarni í kirkjunni …
Rakel Ósk Antonsdóttir
Já, fólk kemur sérstaklega heim til
okkar að skoða jólahúsið. Það tók
tvær, þrjár vikur að skreyta.
SPURNING
DAGSINS
Ertu
búin(n) að
skreyta
fyrir jólin?
Þórir Jóhann Helgason
Mamma er búin að gera það.
Cristina Asangono
Já, jólatré og allt heimilið. Og kaupa
gjafir. Það er allt tilbúið.
Jóhann Ingi Jóhannsson
Að utan já. Ég er búinn að henda
upp jólaljósum á skjólvegginn.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Ásdís Ásgeirsdóttir
Lögfræðingurinn Árni Helgason verður með uppistand
á Brew Dog á Hverfisgötu á sunnudag klukkan 21. Ari
Eldjárn mætir einnig og gleður gesti. Frítt er inn.
Stutt í
miðaldrakrísu