Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.12.2019, Síða 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.12.2019, Síða 8
VETTVANGUR 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.12. 2019 Enn einn „samningurinn“ umframtíð Reykjavíkurflug-vallar hefur verið undirrit- aður. Og enn einn atvinnubótahóp- urinn settur á laggirnar. Þessum nýjasta eru ætlaðar tvö hundruð milljónir til að finna út hvernig viðri til flugumferðar í Hvassahrauni í út- jaðri Hafnarfjarðar, í tuttugu mín- útna akstursfjarlægð frá Leifsstöð. Ef veðurhorfur eru taldar góðar til framtíðar litið kæmi til álita, að sögn, að flytja allt flug þangað – loka Reykjavíkurflugvelli og vænt- anlega þá einnig Keflavíkurflugvelli og gera splunkunýjan flugvöll fyrir tvö hundruð og áttatíu milljarða, nema menn vilji hafa tvo flugvelli innan seilingar. Þetta myndi þýða einhverja vélavinnu en að sjálfsögðu yrði gróðursett til að jafna allar syndir. Á meðan bíði öryrkjar og aldr- aðir. Sá sem þetta skrifar undirritaði fyrir mörgum árum eitt plaggið í þessari samningaseríu. En varla var blekið þornað fyrr en sýnt var að borgaryfirvöld myndu ekki standa við það. Inntakið var að reist yrði ný flugstöð og búið þannig um hnútana að innanlandsflugið hefði tryggingu fyrir því að verða ekki hrakið á brott í fyrirsjáanlegri framtíð. Nokkrum mánuðum síðar kom nýr innanríkisráðherra og nýr „samningur“, líka um að skoða veð- urlag svo flytja mætti völlinn. Og enn kom nýr innanríkis- ráðherra. Sá vildi halda í völlinn en borgin fékk þá samþykkt í undar- legri niðurstöðu Hæstaréttar að sviksemi hennar væri þrátt fyrir allt lögmæt. Heyra mátti á samgönguráðherr- anum sem nú situr að hann væri stoltur af undirskrift sinni, enda hefðu sérfóðir fagmenn komist að þessari niðurstöðu. Því miður var spurningunni ekki fylgt eftir og hann spurður um álit borgarbúa. Margoft hefði komið fram í skoðanakönnunum hin síðari ár að yfirgnæfandi meirihluti þeirra vildi hafa völlinn á sínum stað. Hvort ekki bæri að hlusta eftir al- mannaviljanum? Nú má það vel vera að niður- stöður slíkra kannana komi til með að breytast þegar fram líða stundir á sama hátt og þreyttur lax gefst upp á endanum og er þá landað ör- magna. En fleiri kunna að þreytast en laxinn. Á endanum kann þessi af- staða að valda því að almenningur missi trú á því fyrirkomulagi lýð- ræðis sem við búum við og leiti þá annarra lausna en í svikulu fulltrúa- veldi sem brennimerkir alla sem „popúlista“ sem vefengja forræði þess. Þrjú dæmi koma upp í hugann um hrokafulla afstöðu af þessu tagi. Dæmi eitt: Bretar samþykkja að ganga úr Evrópusambandinu í al- mennri kosningu. Fréttaskýrendur og stjórnmálamenn upp til hópa, að ógleymdu Evrópusambandinu sjálfu, segja almenning hafa verið vankunnandi og því ekkert að marka niðurstöðuna. Það þurfi að kjósa aftur og þá væntanlega enn og aftur ef fólkið heldur áfram að vera jafnvitlaust. Dæmi tvö: Fram kemur ítrekað í skoðanakönnunum að yfirgnæfandi meirihluti Íslendinga er andvígur markaðsvæðingu raforkunnar og vill hafna því að orkustefna ESB verði innleidd hér á landi. Ríkis- stjórn og meirihluti Alþingis segir þjóðina ekki skilja hve frábær stefna þetta sé og samþykkir enn einn áfangann á þessari vegferð með atkvæðum stjórnmálamanna sem áður höfðu talað þvert á þessa stefnu. Dæmi þrjú: Reykjavíkurflugvöll hefur meirihluti borgarbúa viljað hafa á sínum stað; aðrir viljað hann á brott og hafa að sjálfsögðu hald- bær rök fyrir þeirri afstöðu sinni. Þau eru engu að síður rök og vilji minnihlutans eins og hann hefur birst okkur í seinni tíð. Engu að síð- ur skal hann ráða, því „vér einir vit- um“. Samkvæmt venju er okkur sagt að allt sé þetta á könnunarstigi. Málin verði skoðuð og gaumgæfð og skeggrædd á mörgum, mörgum, fundum. En á meðan menn mæla vindáttir sunnan Hafnarfjarðar eru gefin fyr- irheit um að norður-suðurbrautinni í Vatnsmýrinni verði lokað fyrr en síðar svo byggingarverktakar geti farið að vinna sína undirbúnings- vinnu. Þannig er lýðræðinu brotlent og fluginu sjálfhætt. Lýðræðinu brotlent Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@ogmundur.is ’ En á meðan mennmæla vindáttir sunn-an Hafnarfjarðar eru gefin fyrirheit um að norður-suðurbrautinni í Vatnsmýrinni verði lokað fyrr en síðar svo bygging- arverktakar geti farið að vinna sína undir- búningsvinnu. RAX Vetrarsól er umboðsaðili 40 ár á Íslandi Sláttuvélar Snjóblásarar Sláttutraktorar Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Gulltryggð gæði N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Komið og skoðið úrvalið K371 sófi Fáanlegt í leðri og tauáklæði, margir litir 3ja sæta 2ja sæta og stólar Opið virka daga 11-18 laugardaga 11-15 Erum á facebook

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.