Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.12.2019, Side 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.12.2019, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.12. 2019 LÍFSSTÍLL Hún er mætt í smurbrauðs-dressinu sínu; hvítumsloppi, með hvíta kokka- húfu og eldrauðan varalit. Marentzu Poulsen þekkja margir, enda hefur hún komið víða við og heillað þjóðina með smurbrauði sínu og drekk- hlöðnum jólahlaðborðum í gegnum tíðina. Nú fær hún að bera á borð fyrir gesti Kjarvalsstaða en þangað er yndislegt að koma, fá sér hádegis- mat eða kaffi og köku og njóta bæði kyrrðar og myndlistar. „Þetta er eitt dýrmætasta hönn- unarhús sem við eigum og það er gaman að fá tækifæri til að byggja upp veitingastað hér í miðju hússins. Upplifun hefur svo mikið að segja og hér er fólk með list á báða vegu. Það spilar vel saman við veitingastað- inn,“ segir Marentza og segir stað- inn hafa yfir sér afar skandinavískt yfirbragð, sem tónar vel við matinn hennar. Að sitja fallega til borðs „Maturinn á rætur í skandinavískri matargerð; ég er skandinavísk, lærð smurbrauðsjómfrú frá Danmörku. Ég hef alltaf unnið eins og mamma gerði; eldað feitt kjöt, pikklað og súrsað. Mamma var mikil matmóðir og við erum öll systkinin alin upp við mikla matargerð. Og líka að leggja fallega á borð. Heima var alltaf dúk- að borð,“ segir hún. „Um helgar var settur útsaumað- ur dúkur á borðstofuborðið og borð- að þar en annars við eldhúsborðið. Ég lærði líka að sitja fallega til borðs,“ segir Marentza en hún er færeysk og ólst upp í Skopun á Sandey. „Mamma smurði alltaf fyrir okkur fallegar brauðsneiðar á kvöldin. Þessar stundir voru svo sterkar og djúpar hjá mér.“ Þannig að þú ert með þessa ástríðu fyrir mat í blóðinu? „Já, maður flýr ekki uppeldið. Svo bætir maður við það á lífsleiðinni. Ef maður hefur áhuga á því sem maður er að gera fer maður djúpt í allt. Ég er búin að vera í þessu frá 1966 og finnst ennþá gaman og ég er enn alltaf að skapa eitthvað nýtt.“ Gaman að útbúa síld „Þessi árstími sem gengur nú í garð er alltaf jafn skemmtilegur. Til margra ára sá ég um jólahlaðborð, bæði á Borginni og á Hótel Loftleið- um. Það var eins og þegar pabbi fór á vertíð á vorin. Þá fór hann í útlegð og kom heim þegar fór að hausta. Hjá mér byrjaði þetta um miðjan nóvember, þá fór ég í útlegð og það stóð yfir til jóla. Nú er ég hætt í jóla- hlaðborðunum en ber góðan mat á borð hér á Klömbrum.“ Marentza býður nú gestum upp á sérstakan jólamatseðil. „Íslendingar hafa alltaf veitt mikla síld en hafa aldrei borðað mik- ið af henni, enda er ekki mikla fjöl- breytni í síldarréttum að finna hér. Ég hef alltaf haft ánægju af því að útbúa ýmsa síldarrétti eins og að steikja ferska síld og leggja í lög, en mín uppáhaldssíld er Gammel Dansk-síld en hún er lögð í hlaup og steinkuð með Gammel Dansk. Síld tengist aðventunni og jólum, og það sama má segja um lifrarkæfuna. Þetta er eitthvað sem hægt er að út- búa fyrirfram og geyma í kæli.“ Á aðventumatseðlinum er bæði fjölbreyttur síldarplatti og jóla- platti. „Á jólaplattanum á Klömbrum má finna reyktan og grafinn lax, tvær tegundir af síld, reykta önd með piparrótarsalati og að sjálfsögðu purusteik með heimatilbúnu rauð- káli og öðru tilheyrandi. Gott er að enda góða máltíð á einhverju sætu og býð ég upp á ris a la mande með kirsuberjasósu, það gerist varla jóla- legra,“ segir Marentza og bendir á að það sé bara opið til klukkan fimm á daginn þannig að það borgar sig að panta borð, en jólaplattinn er borinn fram frá klukkan 11 til 16.30 alla daga. Samvera er stór gjöf Marentza segir að góður matur og samvera sé oft miklu betri hugmynd en stórar og dýrar gjafir og segist hún finna fyrir auknum áhuga á hefðbundinni matargerð. „Það er kynslóð sem þekkir ekki þessa matargerð en það er að koma til baka. Ég er mjög mikið spurð að því hvernig ég bý til lifrarkæfu eða síld. Þetta tengist þessum nýja lífs- stíl, að hverfa til fortíðar og nýta matinn betur. Svo geta þetta verið mjög skemmtilegar gjafir; það er gaman að gefa mat. Það er mikil um- hyggja í svona gjöfum og það er gott fyrir sálina að gefa svolítið af sér,“ segir Marentza. „Margir eiga allt og vantar ekk- ert. En að eiga stund með for- eldrum og systkinum yfir góðum mat er mikils virði. Það er stór og dýrmæt gjöf og verður ekki metið til fjár.“ Ég kveð Marentzu og held út í myrkrið en fyrst útbýr hún frábæra jólarétti fyrir lesendur Morgun- blaðsins að spreyta sig á. Morgunblaðið/Ásdís Matur og samvera fyrir sálina Marentza er tilbúin í jóla- vertíðina og stendur nú vaktina á Klömbrum Bistro. Smurbrauðsjómfrúin Marentza Poulsen ræður ríkjum á Klömbrum Bistro á Kjarvalsstöðum. Hún tekur vel á móti gestum og gangandi á aðventunni með girnilega jólarétti. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is 6 cm fersk piparrót hýði af 3 sítrónum, ysta lag 1 epli 1 lítri vodka Skrælið piparrótina og sker- ið í mjög þunnar sneiðar. Af- hýðið sítrónuna og skerið hýðið í þunna strimla. Sker- ið eplið til helminga, kjarn- hreinsið og skerið í báta, meðalþunna. Setjið hráefni í krukku með góðu loki og hellið ein- um lítra af vodka yfir og lát- ið standa á köldum og dimmum stað í tíu daga eða lengur eftir smekk um styrk- leika og bragð. Síið og setjið á flösku. Piparrótar- eplasnaps Silfurmunir og skartgripir síðan 1924 ERNA Skipholti 3 – Sími 552 0775 – erna.is GULL- OG SILFURSMIÐJA Hönnuður Ragnhildur Sif Reynisdóttir Verð kr. 21.500 Hönnuður Ösp Ásgeirsdóttir Verð kr. 8.500 Jólaskeiðin & jólabjallan 2019

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.