Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.12.2019, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.12. 2019
LÍFSSTÍLL
Þetta kom þannig til að BjörnBragi Arnarsson hjá bókaút-gáfunni Fullt tungl bar þessa
hugmynd undir mig; að skrifa bók
um fjarþjálfun. Ég þurfti að hugsa
mig aðeins um en komst fljótt að
þeirri niðurstöðu að þetta væri
spennandi verkefni og sló því til,“
segir Indíana Nanna Jóhannsdóttir
sem sendi á dögunum frá sér bókina
Fjarþjálfun.
Indíana starfar sem einkaþjálfari,
auk þess sem hún hefur verið að
deila fróðleik hér og þar undanfarin
misseri, svo sem á samfélags-
miðlum. „Það hefur þó ekki verið á
heildstæðu plani og þess vegna var
hugmyndin svo heillandi; að taka
allt sem ég hef verið að miðla saman
á einum stað. Ekki spillti heldur
fyrir að engin bók af þessu tagi er
til á íslensku.“
Krefjandi og skemmtilegt
Mikið er til af erlendum bókum um
fjarþjálfun og Indíana kveðst hafa
kynnt sér sumt af því, auk þess sem
hún var með sínar eigin hugmyndir.
„Þetta var mjög krefjandi og tíma-
frekt verkefni með fullri vinnu, auk
þess sem ég á fimmtán mánaða
gamlan son, en líka ofboðslega
skemmtilegt. Það sem kom mér
mest á óvart var hvað ég hef sjálf
lært mikið af því að taka saman lær-
dóm fyrir aðra,“ segir hún hlæjandi.
Og höfundurinn er mjög ánægður
með útkomuna en valinn maður var
í hverju rúmi við gerð bókarinnar.
Sigrún Ebba Urbancic ritstýrði,
Ernir Eyjólfsson og Baldur Krist-
jánsson tóku ljósmyndir og umbrot
og hönnun var í höndum Rakelar
Tomas og Oddnýjar Svövu.
Indíana og Friðrik Dór héldu
sameiginlegt útgáfuhóf í vikunni en
Fullt tungl gefur nú fyrir jólin einn-
ig út matreiðslubókina Léttir réttir
Frikka. „Hófið heppnaðist mjög vel
og það var yndislegt að fagna með
sínu fólki. Við erum á fullu í kynn-
ingarvinnu þessa dagana, bókin hef-
ur farið vel af stað og ég er bjartsýn
á framhaldið.“
Handboltastelpa í grunninn
Indíana er handboltastelpa í grunn-
inn; æfði þá ágætu íþrótt frá sex ára
aldri og fram á fullorðinsár og er
raunar ennþá að leika sér í hand-
bolta í utandeildinni. Hún stefndi þó
í allt aðra átt um tíma; lauk BA-
prófi í lögfræði, var komin með
vinnu í faginu og ætlaði að verða
lögfræðingur. „Af einhverjum
ástæðum var það samt ekki að
smella; ég fann ekki gleði í því sem
ég var að gera. Þess vegna fór ég í
einkaþjálfaraskólann hjá World
Class og byrjaði í framhaldi af því
með mína eigin hópeinkaþjálfun og
leigi aðstöðu hjá World Class í
Ögurhvarfi. Í þjálfun fann ég gleði
og ástríðu.“
Spurð hvort Íslendingar séu al-
mennt duglegir að hreyfa sig svarar
Indíana: „Þegar maður fer í rækt-
ina á hátíðum og helgidögum er iðu-
lega fullt út úr dyrum og það segir
sína sögu. Það er mikil vitund-
arvakning í samfélaginu og fólk
virðist vera mjög duglegt að hreyfa
sig.“
Hún segir á hinn bóginn mik-
ilvægt að fólk hreyfi sig á sínum
forsendum og í því sambandi skul-
um við vitna til orða hennar fremst í
bókinni: Áður en þú hefur lestur og
byrjar að æfa, spurðu þig þá að
þessu: Af hverju hreyfi ég mig? Af
hverju mæti ég á æfingu? Og ef þú
ert að stíga þín fyrstu skref eða ert
að fara af stað eftir langa hvíld: Af
hverju vil ég byrja að hreyfa mig?
„Minn boðskapur er skýr,“ segir
hún hér í samtalinu. „Leggjum
áherslu á gæði og verum skynsöm.
Það þurfa ekki allir að hlaupa fimm
sinnum á Esjuna, auðvitað hentar
það sumum en fyrir aðra getur ver-
ið nóg að ganga einu sinni þangað
upp. Til lengri tíma litið er mjög
mikilvægt að fara vel með líkamann
og hafa gagn og gaman af hreyfing-
unni. Og við æfum okkur víðar en
okkur grunar. Hvað er það að lyfta
innkaupapokum annað en rétt-
stöðulyfta? Það má heldur ekki van-
meta félagslega þáttinn við hreyf-
inguna; að fara með vinunum á
æfingu eða í ræktina gerir okkur
ekkert nema gott.“
Indíana segir engum vafa undir-
orpið að hægt sé að byrja að hreyfa
sig hvar og hvenær sem er, jafnvel
þótt grunnurinn sé ekki fyrir hendi.
„Ég veit um marga afreks-
íþróttamenn sem æfðu ekki íþróttir
sem börn. Það er aldrei of seint að
byrja að hreyfa sig og lifa heil-
brigðu lífi. Sumir gefa sér mun
minna kredit en þeir eiga skilið.“
Hvernig líður manni vel?
Sérstakur kafli er um mataræði í
bókinni enda segir Indíana það
skipta miklu máli fyrir heilsuna.
Ekki síður en hreyfinguna. Hennar
tilfinning er sú að Íslendingar séu
upp til hópa meðvitaðir um mat-
aræði, hvað sé hollt og hvað ekki,
enda sé þekking okkar og vitneskja
alltaf að aukast. Sjálfri þykir henni
gaman að prófa nýja hluti, til dæmis
grænmetisfæði, án þess þó að setja
sér skýrar reglur. „Aðalatriðið er að
læra inn á sjálfan sig og finna
hvernig manni líður vel. Það hjálpar
mér að keyra mig áfram í því sem
ég er að gera.“
Spurð hvort hún hyggi á frekari
bókaskrif kveðst Indíana ekki hafa
gert það upp við sig. „Þessi bók er
svo nýkomin út að ég hef ekki haft
svigrúm til að velta því fyrir mér en
ég lærði heilmargt á þessu ferli og
bý að því fyrir næstu skipti ef af
verður.“
Aldrei of seint að byrja að hreyfa sig
Indíana Nanna Jó-
hannsdóttir einkaþjálf-
ari hefur sent frá sér
bókina Fjarþjálfun, þar
sem hún gefur holl ráð
og farið er yfir ýmsar
góðar grunnæfingar
í máli og myndum.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
„Það sem kom mér mest á
óvart var hvað ég hef sjálf
lært mikið af því að taka sam-
an lærdóm fyrir aðra,“ segir
Indíana Nanna Jóhannsdóttir
Morgunblaðið/RAX
Teygjur eru ekki spennandi en þær borga sig margfalt.
Ljósmynd/Baldur Kristjánsson
Til að hámarka árangur skiptir mataræðið gríðarlegu máli.
Ljósmynd/Baldur Kristjánsson
’Þegar maður fer íræktina á hátíðum oghelgidögum er iðulegafullt út úr dyrum og það
segir sína sögu. Það er
mikil vitundarvakning í
samfélaginu og fólk virð-
ist vera mjög duglegt að
hreyfa sig.
SKILLBIKE er nýtt byltingarkenntæfingarhjól frá Technogym, búið gírskiptingum eins og í venjulegu
götuhjóli sem byggt er á nýrri tækni Multidrive™. SKILLBIKE er hannað til líkja semmest eftir raun-
verulegumhjólreiðum en hjólið hefur hlotið fjölda alþjóðlegra verðlauna fyrir hönnun og nýsköpun.
Skoðaðu hjólið í sýningarsal okkar, hjá Holmris Síðumúla 35
NÝTT BYLTINGARKENNT
ÆFINGAHJÓL
Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is