Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.12.2019, Blaðsíða 2
Hvernig gengur að klára skaupið?
Það gengur vel, við erum á síðustu metrunum.
Hverju á þjóðin von á í ár?
Vonandi gríni og glensi og frekar sterkri þjóðfélagsádeilu með hæfi-
legri blöndu af leiknu og sungnu gríni.
Mun eitthvað koma á óvart?
Formið er frekar hefðbundið. Við erum með eitt meginþema sem ég
get ekki gefið upp hvert er. Við tökum fyrir þekkt fólk og pólitíkusa
en líka fólkið í landinu.
Ertu stressaður fyrir viðtökunum?
Ég hef eiginlega ekki haft tíma til að hugsa um það. Nei, ég held að
ef maður sé of mikið að pæla í því hvað öðrum finnst þá gerir maður
ekki neitt. Það er ekki hægt að gera öllum til geðs, en vonandi flest-
um. Það er samt gott að minna á að þetta er ekki annáll.
Nú datt Samherjamálið inn seint á árinu, var kall-
aður saman neyðarfundur til að breyta skaupinu?
Já, já. En það var ekkert stress, við erum búin að læra af þeim sem
á undan okkur hafa verið, og ég hef líka gert þetta einu sinni áður,
þannig að við gerðum ráð fyrir að eiga inni fyrir því að eitthvað
myndi gerast. Það er alveg merkilegt hvað margt gerist á haustin!
Fram eftir árinu eru engir skandalar en svo seint á haustin verður
allt brjálað.
Hvert ykkar handritshöfunda er fyndnast?
Þau eru öll jafn skemmtileg. Ætli ég sé ekki minnst fyndinn.
Morgunblaðið/Eggert
REYNIR LYNGDAL
SITUR FYRIR SVÖRUM
Skandalar á
haustin
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.12. 2019
Jólaleyndarmál
Matarkjallarans
Tryggðu þér borð á
www.matarkjallarinn.is
Aðalstræti 2 | s. 558 0000
Ég fór að hugsa um það eftir að hafa horft á viðtal Loga Bergmanns viðRagnhildi Gísladóttur í Sjónvarpi Símans á dögunum hversu snúiðhlutverk listrýnisins getur verið. Ragnhildur, eða Guðmunda Ragn-
hildur, eins og hún heitir víst fullu nafni og fram kom í þættinum, sagði þarna
forvitnilega sögu. Sagan hverfðist um plötu sem hún gaf út og fékk ekki góða
dóma hjá tónlistargagnrýnanda, sem hún nafngreindi ekki. Einhverju síðar
rakst hún á téðan gagnrýnanda á förnum vegi og tóku þau tal saman. Við það
tækifæri bað gagnrýnandinn Ragnhildi afsökunar; platan hefði vaxið í hans
huga með tímanum og væri nú í
uppáhaldi hjá honum. „Hvers vegna
skrifarðu þá ekki um það?“ flýtti
Ragnhildur sér að spyrja. „Nei, það
er ekki hægt,“ svaraði gagnrýnand-
inn. Gjört er gjört.
En er það svo í raun og veru?
Mælir eitthvað gegn því að listrýnir
endurskoði umsögn sína, þyki hon-
um ástæða til er frá líður? Er það
ekki bara eðlilegt og heiðarlegt
gagnvart öllum? Enda þótt það
myndi eflaust ekki falla í kramið hjá
þeim sem úthluta þeirri takmörkuðu
auðlind dálksentimetrum.
Þetta yrði auðvitað að vera innan
hóflegra marka, til dæmis fjögurra til sex mánaða. Svolítið skrýtið yrði að
endurskoða slíka umsögn að fimm eða tíu árum liðnum. Enda þótt annað eins
hafi nú gerst. Ég veit til dæmis að mínir menn í Black Sabbath fengu yfirleitt
hraksmánarlega dóma fyrir verk sín þegar þeir komu fram á sjónarsviðið
fyrir hálfri öld en í dag hefur bandið goðsögulega stöðu í málmheimum. Fá
bönd hafa haft meiri áhrif á sviðið. Og gagnrýnendurnir sem upphaflega
blésu í lúðra eru löngu þagnaðir, eins og rokkarnir forðum. Sem minnir mig á
það að þungarokkið verður fimmtugt 13. febrúar næstkomandi. Við megum
til með að halda upp á það með einhverjum hætti hér í blaðinu. Ekki satt?
Menn hafa nú gert sér dagamun af minna tilefni í þessu lífi.
En auðvitað myndi þetta með umrýnina virka í báðar áttir. Það er að segja
slík leið yrði ekki bara til þess fallin að laga vondar umsagnir, heldur líka til
að draga úr góðum. Og yrði ef til vill algengara, þegar maður pælir í því.
Hvað ef plata Ragnhildar hefði upphaflega fengið góða dóma en rýnirinn séð
sig um hönd og haft orð á því þegar þau hittust á förnum vegi.
Þá hefði þessi pæling vafalaust aldrei komið upp í spjallinu við Loga.
Gagnrýni á
gagnrýnina
Pistill
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
’Hvers vegna skrifarðuþá ekki um það?“flýtti Ragnhildur sér aðspyrja. „Nei, það er ekki
hægt,“ svaraði gagnrýn-
andinn. Gjört er gjört.
Sunna Karen Arnardóttir
Rjúpa. Mér finnst hún góð.
SPURNING
DAGSINS
Hvað er í
jólamat-
inn?
Björn Halldór Björnsson
Rjúpur sem ég skaut sjálfur. Það er
uppáhalds.
Nellý Pétursdóttir
Heitt hangikjöt beint úr pottinum.
Svo kalt á jóladag.
Markús Guðjónsson
Alltaf hamborgarhryggur og
bayonneskinka.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Ásdís Ásgeirsdóttir
Reynir Lyngdal er handritshöfundur og leikstjóri áramótaskaupsins í
ár. Dóra Jóhannsdóttir leiðir handritsgerð en Þorsteinn Guðmunds-
son, Sævar Sigurgeirsson, Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir, Hugleikur Dags-
son, Vala Kristín Eiríksdóttir og Jakob Birgisson leggja sitt af mörkum.