Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.12.2019, Side 14
VIÐTAL
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.12. 2019
T
veir menn eru myrtir með stuttu
millibili í Reykjavík. Fljótt á litið
virðast þeir ekki tengjast á neinn
hátt. Annar er úr undirheimunum
en hinn virtur fjárfestir. Verklag
morðingjans vekur lögreglu þó ugg; búið er að
skera augun úr báðum líkum. Áleitin spurning
rís: Gengur raðmorðingi laus í Reykjavík?
Til að byrja með er Katrínu Gunnarsdóttur
rannsóknarlögreglukonu falin rannsókn máls-
ins. Hún er metnaðarfull og býr að drjúgri
reynslu en á undir högg að sækja í einkalífinu,
að því er virðist, og ekki bætir úr skák þegar
framhjá henni er gengið þegar nýr yfirmaður
deildarinnar er skipaður. Undir niðri kraumar
gremja.
Vegna þess hvernig málið er vaxið er ákveðið
að kalla eftir utanaðkomandi aðstoð við rann-
sóknina. Íslendingurinn Arnar Böðvarsson
kemur heim frá Ósló, þar sem hann hefur um
árabil starfað hjá norsku rannsóknarlögregl-
unni. Þau Katrín verða teymi, þvert á vilja
beggja og neistar fljúga frá fyrstu kynnum.
Meðan við höfum í upphafi aðgang að lífi Katr-
ínar, heimili hennar og fjölskyldu, þá vitum við
minna um Arnar. Nema hvað hann hefur ekki
átt hamingjuríka æsku. Svo mikið er víst.
Æðislegir höfundar
Þannig liggur landið í Broti, nýjum glæpaþátt-
um í átta hlutum, sem hefja göngu sína í Ríkis-
sjónvarpinu annan í jólum. Eftir það verður
Brot á dagskrá á sunnudagskvöldum.
„Það eru að verða fjögur ár frá því að ég
byrjaði að vinna með þessa hugmynd,“ segir
Þórður Pálsson, sem á hugmyndina að þátt-
unum og er jafnframt einn þriggja leikstjóra,
ásamt Davíð Óskari Ólafssyni og Þóru Hilm-
arsdóttur. Þórður leikstýrir fjórum þáttum en
Davíð og Þóra tveimur hvort. „Fyrsta skrefið
var að kynna hugmyndina fyrir Kristni Þórð-
arsyni hjá framleiðslufyrirtækinu Truenorth
og eftir það fóru hjólin að snúast; Davíð Óskar
kom inn sem framleiðandi fyrir hönd Mystery,
eins Margrét Örnólfsdóttir og svo handritshöf-
undarnir, Óttar M. Norðfjörð, Mikael Torfason
og Ottó Geir Borg.“
Þórður segir söguna hafa breyst og þróast
mikið síðan en grunnhugmyndin sé sú sama.
„Það var frábært að fá þessa æðislegu höfunda
að verkefninu og forréttindi að hafa fengið að
vinna með þeim. Ég er líka innilega þakklátur
Kristni og Davíð fyrir að hafa tekið séns á mér
en þessi sería hefði aldrei orðið til ef þeir höfðu
ekki barist fyrir henni eins og þeir gerðu í
gegnum allt þetta ferli.“
Hvað tekur nú við?
Þórður útskrifaðist úr The National Film and
Television School í Bretlandi árið 2015 með eft-
irfarandi spurningu á vörum: Hvað tekur nú
við? Hann hefur lengi haft brennandi áhuga á
sakamálakvikmyndum og -þáttum og langaði
að reyna sig við efni af því tagi. „Eins og svo
margir var ég gagntekinn af True Detective á
þessum tíma; tvær löggur, eitt sakamál en
mörg vandamál. Þá hafði heimildarmyndin
Syndir feðranna eftir Ara Alexander Ergis
Magnússon djúpstæð áhrif á mig á sínum tíma.
Hvers vegna hefur maður ekki heyrt meira um
mál af því tagi sem þar eru til umfjöllunar? Þar
sem menn leita hefnda fyrir eitthvað sem gerð-
ist í fortíðinni. Ég er ekki að bera Brot saman
við þetta tvennt en það hafði klárlega áhrif á
mig. Annars hef ég alltaf haft áhuga á þrillerum
og langar að vinna innan þess „genre“ eða
sviðs. Það heillar mig að vinna innan þessa
ramma, að lausn sakamála, þar sem einkalíf að-
alpersónanna fléttast inn í söguna líka.“
Þannig er það einmitt í Broti, við fylgjumst
með einkalífi lögreglufólksins meðfram morð-
rannsókninni. „Líf beggja aðalpersónanna er
hjúpað ákveðinni dulúð; það kemur strax fram
hjá Arnari en dýpra er á því hjá Kötu en við
fáum strax aðgang að henni. Út seríuna erum
við hins vegar alltaf að sýna nýjar hliðar á aðal-
karakterunum.“
Og hraðinn er býsna mikill en tímarammi
seríunnar er átta dagar; um það bil einn sólar-
hringur líður í hverjum þætti.
Með landsliðið með sér
„Það er æðislegt,“ svarar Þórður þegar spurt
er hvernig tilfinning það sé að sjá hugmyndina
og söguna lifna við á skjánum. „Svo er ekki
verra að hafa landslið leikara með sér í þessu,“
bætir hann við en með hlutverk Kötu og Arnars
fara Nína Dögg Filippusdóttir og Björn Thors.
„Það var frábært að vinna með Nínu og Bjössa;
þau gefa þessum karakterum líf og gera þá
mannlega. Sama máli gegnir um aðra leikara.,“
segir hann en í öðrum helstu hlutverkum eru
Sigurður Skúlason, Arndís Hrönn Egilsdóttir,
Bergur Ebbi Benediktsson, Valur Freyr Ein-
arsson, Edda Björgvinsdóttir og fleiri.
Þórður segir Nínu og Björn smellpassa í
hlutverkin. „Nína getur verið mjög hörð til orðs
og æðis, hún er líkamlega á sig komin eins og
fimleikakona, en hefur líka góð tök á mjúku
hliðinni sem var akkúrat það sem við vorum að
leita að. Ég veit satt best að segja ekki hvaða
önnur leikkona hefði getað leikið þetta hlut-
verk. Bjössi neglir líka hlutverk Arnars. Við
þurftum leikara í mjög háum gæðaflokki í það
hlutverk enda þarf hann að geta gefið af sér án
þess að gefa af sér, ef þú skilur hvað ég á við.
Þarna er Bjössi kominn eins langt frá Kenneth
Mána [úr Fangavaktinni] og hugsast getur sem
staðfestir hversu mikilli breidd hann býr yfir
sem leikari.“
Og Nína og Björn gerðu meira en að leika.
„Þau eru bæði mjög hugmyndarík og góðir
pennar og komu oft með sínar hugmyndir að
borðinu fyrir senur dagsins. „Þetta myndi minn
karakter aldrei segja eða aldrei gera,“ og þar
fram eftir götunum. Þarna vó reynsla þeirra
þungt og þau voru búin að eigna sér karakter-
inn, eins og góðir leikarar gera.“
Eins og flís við rass
Þórður segir „crewið“ í heild raunar alveg
geggjað. „Árni Filippusson er okkar besti töku-
maður í dag, það var mikill heiður að fá að vinna
með honum. Eins klippurunum, Valdísi Óskars-
dóttur og Sigurði Eyþórssyni, Heimi Sverris-
syni leikmyndahönnuði, Helgu Rós Hannam
búningahönnuði og Áslaugu Dröfn Sigurðar-
dóttur sminku og gerfahönnuði. Svo leikur tón-
listin stórt hlutverk í þáttunum en hún er
meistaralega samin af Pétri Ben. og fellur eins
og flís við rass. Það er í raun sama hvert litið er;
það er valinn maður í hverju rúmi og hver ein-
asti maður gaf allt sitt, tíma og ástríðu, en
margir tökudagar voru langir og erfiðir. Allt
verður betra með svona góðu fólki og ég við-
urkenni að ég er pínulítið meyr eftir þessa frá-
bæru reynslu. Fyrir gaur eins og mig, sem er
nýútskrifaður úr skóla, að fá að stjórna svona
verkefni er eins og fyrir fótboltaáhugamann að
standa upp frá Football Manager í tölvunni til
að stjórna Manchester United.“
Hann hlær.
„Að öllu gríni slepptu leið mér eins og ég
hefði komið úr einum háskóla yfir í annan með-
an á gerð þáttanna stóð. Ég lærði heilmargt af
öllu þessu fólki og dauðlangar að gera seríu
númer tvö.“
– Er hún á teikniborðinu?
„Já, drög liggja fyrir og við erum komin með
sterka hugmynd um plottið. Við lokum sumum
Raðmorðingi
í Reykjavík?
Brot, ný íslensk glæpasería í átta hlutum, hefur göngu sína í
Ríkissjónvarpinu annan í jólum. Þar kveður við nýjan tón, að
sögn Þórðar Pálssonar, sem á hugmyndina að þáttunum og leik-
stýrir þeim ásamt fleirum, en í Broti mun vera að finna meiri
hraða og drunga en við eigum að venjast úr íslensku sjónvarpi.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Katrín á vettvangi morðs sem framið var við höfnina og hrindir atburðarásinni af stað.
Björn Thors og Nína Dögg Filippusdóttir í hlutverkum rannsóknarlögreglumannanna Arnars og Katrínar.
„Það heillar mig að vinna innan þessa
ramma, að lausn sakamála, þar sem
einkalíf aðalpersónanna fléttast inn í
söguna líka,“ segir Þórður Pálsson.