Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.12.2019, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.12. 2019
LÍFSSTÍLL
Þórdís Ólöf Sigurjónsdóttir, 24ára háskólanemi, býr í afarlitlu sætu einbýlishúsi ásamt
kærasta, hundi og ketti og von er á
erfingja í apríl. Hún tekur á móti
blaðamanni með bros á vör og leiðir
hann í allan sannleikann um veg-
anlífsstíl.
Þórdís er grænkeri sem hefur
ástríðu fyrir matargerð. Hún hefur
lokið BA-námi í arkítektúr og leggur
nú stund á hagnýta siðfræði en notar
frítímann til að elda góðan veganmat
sem hún deildir með lesendum á
vegansíðunni graenkerar.is. Þar má
finna afar girnilegar og áhugaverðar
veganuppskriftir sem hún og móðir
hennar, Guðrún Dröfn Gunnars-
dóttir, hafa þróað í sameiningu en
jólamaturinn hennar Þórdísar er
engum líkur.
Samkennd með dýrum
Þórdís ákvað að gerast vegan um
tvítugt. „Ég gerðist vegan á einni
nóttu. Ég hafði ákveðnar skoðanir
og hef alltaf haft sterka samkennd
með dýrum. Þegar ég fór að fræðast
betur áttaði ég mig á því að ég þyrfti
að fara að lifa eftir mínum skoð-
unum. Ég hafði ekki verið tilbúin til
að taka skrefið en allt í einu var
komið að því. Ég horfði á heim-
ildamyndir og gerðist vegan daginn
eftir,“ segir Þórdís.
Hún hefur aldrei litið til baka.
„Mér fannst þetta ekki erfitt hvað
varðar matinn; frekar fannst mér það
ofboðslega spennandi. Það var helst
viðbrögð samfélagsins sem voru erf-
ið. Það var erfitt að segja ættingjum
og vinum og í byrjun þegar ég mætti
í matarboð þá skammaðist ég mín
smávegis; ég mætti í veislur með
minn eigin mat en fannst þetta dálítið
óþægilegt. En þetta tímabil varði
bara í hálft ár. Foreldrar mínir, sem
búa hér við hliðina á mér, tóku mjög
vel í þetta og tóku sjálf skrefið rúmu
ári á eftir mér,“ segir hún og segir að
hún hafi fundið ótrúlegan mun á sér
eftir að hún gerðist vegan.
„Þetta hefur haft ótrúlega mikil
og góð áhrif. Ég hélt alltaf að ég
væri bara þreytt manneskja sem
þyrfti alltaf að leggja sig á daginn.
Ég hafði ekki mikla orku í lífinu.
Eftir að ég gerðist vegan snar-
breyttist það allt. Ég varð orkumeiri
og hætti að þurfa að leggja mig og
hár og húð varð miklu betri.“
Í eldhúsinu með mömmu
Matargerð hefur alltaf verið áhuga-
mál hjá Þórdísi og hafði hún áður
verið byrjuð að fikra sig í átt að holl-
ari matreiðslu. Þegar hún gerðist
vegan fór hún af stað í ýmiss konar
tilraunir í eldhúsinu. „Fyrir rúmu
ári opnaði ég svo vefsíðuna en hafði
verið að undirbúa hana í dálítinn
tíma áður; að búa til uppskriftir og
taka myndir. Þetta er ótrúlega mikil
vinna; það kom mér dálítið á óvart. Á
bak við eina færslu er elda-
mennskan, myndatakan, textinn og
uppskriftirnar. Þetta er mjög tíma-
frekt. Í byrjum setti ég inn eina nýja
uppskrift í hverri viku en hef aðeins
slakað á,“ segir hún.
Aðspurð hvaðan hugmyndirnar
koma segir Þórdís að þær kvikni
margar í eldhúsi móður hennar.
„Mamma lærði að elda af ömmu og
ég af mömmu og við ræðum mikið
mat. Áður vorum við gjarnan með
hefðbundinn heimilismat en nú erum
við búnar að vera að þróa uppskriftir
út frá því og gerum veganslátur og
veganhangikjöt,“ segir Þórdís og
segir hún þær mæðgur þróa upp-
skriftirnar frá grunni.
„Það gerir enginn úti í heimi veg-
anhangikjöt!“ segir hún og skelli-
hlær.
„Við mamma fáum hugmyndir og
förum svo að espa hvor aðra upp og
svo prófum við okkur áfram, sér-
staklega ef um er að ræða hefð-
bundnar íslenskar uppskriftir.“
Ertu mikið jólabarn?
„Ég er ótrúlega mikið jólabarn og
þetta er uppáhaldstími ársins. Ég
elska jólin!“
Morgunblaðið/Ásdís
„Það gerir
enginn vegan-
hangikjöt!“
Þórdís Ólöf er með veganvefsíðuna
graenkerar.is og má þar finna dásam-
legar uppskriftir. Hún ætlar að borða
hamborgaroumph á jólunum og
karameluostaköku í eftirmat.
Hver segir að grænkerar geti ekki fengið sér hefð-
bundinn íslenskan jólamat? Þórdís Ólöf Sigur-
jónsdóttir hefur þróað hangioumph og hamborg-
aroumph og segir bragðið af jólum ná vel í gegn.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
’ Við mamma fáumhugmyndir og förumsvo að espa hvor aðra uppog svo prófum við okkur
áfram, sérstaklega ef um
er að ræða hefðbundnar
íslenskar uppskriftir.
3 bananar, frosnir
150 ml kaffi, t.d. hafra-
latte eða mocha
Annað góðgæti
1-2 ferskar döðlur
2 msk. gott hnetu-
smjör, t.d. frá Mindful
Bites
2 tsk. kakóduft
Skerið banana niður
og setjið í frysti.
Hellið kaffinu í
klakabox og frystið.
blandaranum en
einnig er sniðugt að
setja hann í ílát og
frysta. Passið að taka
ísinn reglulega út
fyrsta klukkutímann
og hræra í honum til
að brjóta alla ískrist-
alla sem myndast.
Ísinn er æðislegur
með heitri súkku-
laði- eða karamellu-
sósu og rjúkandi
kaffibolla.
Til að búa til ísinn,
setjið bananana í
matvinnsluvél eða
öflugan blender og
blandið þar til úr
verður léttur, mjúk-
ur og þykkur ís.
Bætið kaffiklök-
unum út í (ásamt
öðru góðgæti ef vill)
og blandið áfram.
Gott er að borða
ísinn beint úr mat-
vinnsluvélinni/
Banana-kaffiís
Matarmyndir/Aron Gauti Sigurðarson
... stærsti uppskriftarvefur landsins!