Fréttablaðið - 27.11.2002, Blaðsíða 7

Fréttablaðið - 27.11.2002, Blaðsíða 7
8 27. nóvember 2002 MIÐVIKUDAGUR PARÍS, AP Flugumferð lá að miklu leyti niðri í Frakklandi í gær vegna verkfalls flugumferðar- stjóra. Þjóðfélagið var auk þess að stórum hluta lamað vegna verk- falls annarra opinberra starfs- manna, þar á meðal póstmanna, flutningamanna og starfsfólks sjúkrahúsa og veitustofnana. Verkfallið hófst klukkan tíu á mánudagskvöld og stóð þar til klukkan fimm í morgun, samtals í 32 klukkustundir. Verkfallið hafði mikil áhrif á flug, bæði innan Frakklands og til annarra Evrópu- landa. Áhrifin voru þó minni á flug til fjarlægari staða í Amer- íku, Afríku og Asíu. Vöruflutningamenn hófu verk- fallsaðgerðir sínar snemma á mánudaginn og stöðvuðu um hríð umferð víða um land með því að leggja flutningabifreiðum sínum á fjölförnum umferðaræðum. Verkföllin eru ein alvarlegasta prófraun ríkisstjórnar Jean- Pierre Raffarin til þessa. Stjórnin hefur aðeins verið við völd í fimm mánuði en hefur gert það að for- gangsmáli að selja hlut ríkisins í mörgum fyrirtækjum til þess að afla fjár. ■ Stærstu félögin með sjö milljarða hagnað Fyrstu níu mánuðir ársins hafa skilað útgerðinni góðri afkomu. Framlegð fer lækkandi þegar líður á árið. Fimm stærstu félögin sem ráða þriðjungi aflaheimilda högnuðust um sjö milljarða króna. Horfur eru þokkalegar en búist er við að næsta ár skili félögunum heldur lakari afkomu. SJÁVARÚTVEGUR Hagnaður fimm stærstu útgerðarfélaga landsins er um sjö milljarðar fyrstu níu mánuði ársins. Félögin, Eimskip, Samherji, Grandi, Þormóður rammi og Þorbjörn Fiskanes, ráða yfir þriðjungi aflaheimilda landsins. Eimskipafélagið ræður yfir 11,4% af aflaheimildum. Hagnaður félagsins af sjávarút- vegi er rúmir tveir milljarðar króna. Hagnaður Eimskipafé- lagsins fyrir afskriftir og fjár- magnsliði var tæpir 2,5 milljarð- ar. Samherji birti uppgjör í gær og var niðurstaðan fyrir afskrift- ir og fjármagnsliði svipuð og í fyrra eða um 2,5 milljarðar. Fjár- magnsliðir voru hagstæðir í ár hjá útgerðarfélögum og var hagnaður Samherja tæpir tveir milljarðar króna. Ytri aðstæður sjávarútvegsins hafa verið nokkuð góðar á árinu. Styrking krónunnar myndar gengishagnað hjá fyrirtækjun- um, en veikir hins vegar tekju- myndun þeirra. Framlegð fyrir- tækjanna hefur að þessum sök- um lækkað á seinni hluta ársins. Auk þess hefur verð afurða lækk- að lítillega. Verð afurða hefur verið frekar hátt, nema í rækju, þar sem afkoman er slök. Búast má við því að afrakstur- inn verði minni á síðasta fjórð- ungi ársins. Afkoma sjávarút- vegsfyrirtækja er að jafnaði betri á fyrri helmingi ársins en þeim síðari. Afkoma útgerðarfyrirtækja fyrir afskriftir og fjármagnsliði er mjög góð í sögulegu samhengi. Hagnaður er um 26% af tekjum. Eimskipafélagið er með lægri framlegð eða um 22%. Það skýrist af annari samsetningu vinnslunnar. Framlegð í kringum 20% þykir vel ásættanleg í grein- inni. Horfur í rekstri fyrirtækj- anna eru þokkalegar. Flest bend- ir til þess að gengi krónunnar verði stöðugt eða hækki örlítið. Menn gera sér vonir um að afla- heimildir verði auknar á næsta ári. Fiskverð og olíuverð eru þættir sem erfitt er að spá fyrir um. Stríð í Írak gæti leitt til hækkandi olíuverðs. Flest bendir til að næsta ár verði ekki jafn gott og þetta ár. Framlegð fyrir- tækjanna fari lækkandi, en verði þó vel viðunandi. haflidi@frettabladid.is VERKFALLSAÐGERÐIR Á VEGUM ÚTI Umferð stöðvaðist á vegum víða um Frakkland á mánudaginn vegna verkfallsaðgerða bif- reiðastjóra. Í gær lamaðist svo flugumferð vegna verkfalls flugumferðarstjóra. Verkfall flugumferðarstjóra í Frakklandi: Lamar alla flugumferð AP /C H R IS TO PH E EN A GÓÐ AFKOMA Stærstu útgerðirnar fá um 26% af tekjum sínum í hagnað fyrir afskriftir og fjár- magnsliði. Hlutfallið er hátt í sögulegu samhengi, en ekki er búist við því að það haldist svo hátt á næsta ári. HORFUR Í REKSTRI FYRIRTÆKJANNA ERU ÞOKKALEGAR Fyrirtæki: Hagnaður Hagnaður fyrir afskrifir Aflahlutdeild í milljónum kr. og fjármagnsliði Eimskip sjávarútvegur 2.040 2.446 11,4% Samherji 1.950 2.496 8,1% Grandi 1.425 1.220 4,9% Þorm. rammi/Sæberg 899 1.049 4,8% Þorbjörn Fiskanes 775 901 4,7% KAFFI Fyrirtækið Kaffitár hefur ákveðið að ráðast í byggingu 1330 fermetra glerhýsis í Njarðvík við Reykjanesbrautina og koma sér þar fyrir til framtíðar. Nú er fyrirtækið í 400 fermetra húsnæði í Ytri- Njarðvík. „Þetta hús er búið að vera tvö ár í hönnun og við lítum á það sem auglýsingu við veginn auk þess sem það á að hýsa starfsemi okkar,“ seg- ir Aðalheiður Héðinsdóttir, fram- kvæmdastjóri Kaffitárs. „Það sést inn í bygginguna í gegnum glerið og þarna getum við tekið á móti gestum og verið með rannsóknar- stofu,“ segir hún. Auk þess að mala og framleiða kaffi rekur Kaffitár þrjú kaffihús í Reykjavík og er tilbúið að mæta hvaða samkeppni sem er: „Við höf- um átt Íslandsmeistara kaffiþjóna þrjú undanfarin ár og ætlum að halda því áfram. Þó Starbucks eða aðrar stórar keðjur kæmu hingað ættum við í fullu tré við þær,“ seg- ir Aðalheiður en hjá fyrirtækinu starfa 45 manns, þar af 15 í kaffi- brennslunni sjálfri. Ef að líkum lætur verður nýja byggingin vígð í október á næsta ári. ■ Niðurlagning Umsýslu- stofnunar varnarmála: Milljónir í biðlaun UMSÝSLUSTOFNUN Utanríkisráð- herra hefur farið fram á átta milljóna króna tímabundið fram- lag í eitt ár í kjölfar niðurlagning- ar Umsýslustofnunar varnarmála. Framlaginu er ætlað að standa straum af kostnaði vegna bið- launa og lífeyrisréttinda fyrrver- andi forstjóra stofnunarinnar og ritara hans. Þá fer ráðherra einnig fram á níu milljóna króna fjárveitingu vegna flutnings verkefna til sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli. Samþykkt var að leggja stofnunina niður í haust og fela sýslumanninum á Keflavíkurflugvelli að hafa um- sjón með sölu á afgangsvarningi varnarliðsins og varnarliðs- manna. Talið er að ráða þurfi tvo starfsmenn til embættisins til að vinna umrædd verkefni. ■ NÝJA HÚSIÐ Kaffitár ætlar að byggja við Reykjanes- brautina. ORÐRÉTT VIÐ ÞEKKJUM LÍKA SVONA MENN Bush er í rauninni snillingur, því að Bandaríkjamenn hrópa húrra, þegar hann sparkar í þá. Jónas Kristjánsson varar menn við að líta á Bush sem bjána. Jonas.is, 26. nóv- ember. GÆSLUVARÐHALD TIL AÐ LEITA ÁSTÆÐU Engar ástæður og ekkert til- efni er til þessara hugmynda sem hann telur rökstuddar. Jón H.B. Snorrason, saksóknari Ríkis- lögreglustjóra, um tölvupóst Ástþórs Magnússonar. Morgunblaðið, 26. nóvember. RÍFUM NÝJU HVERFIN! Þeir nota hvert tækifæri til að rífa niður hverfið. Kristinn Bjarnason, framkvæmdastjóri Frjálsa fjárfestingarbankans, um málflutn- ing sjálfstæðismanna um Grafarholts- hverfið. Morgunblaðið 23. nóvember. Reykjanesbrautin: Kaffitár byggir glerhýsi GEIR H. HAARDE Klára á fjárlögin í næstu viku. Þá kemur í ljós hvaða tekjur koma á móti útgjöldum. Fjármálaráðherra: Sér ekki fyrir sér halla- rekstur FJÁRLÖG Geir H. Haarde fjármála- ráðherra segist ekki sjá fyrir sér að halli verði á rekstri ríkissjóðs, hvorki á þessu ári né því næsta, þrátt fyrir miklar hækkanir á út- gjaldaliðum fjárlagafrumvarps næsta árs og fjáraukalagafrum- varps fyrir þetta ár. „Það er hefðbundið að það komi dýfa við aðra umræðu,“ seg- ir fjármálaráðherra og vísar til þess að þar komi inn tillögur um aukin útgjöld en tekjuhliðin sé tekin fyrir við þriðju umræðu og þá sé endurskoðuð tekjuáætlun ríkisins birt. „Þar koma tekjurnar inn.“ Niðurstaðan fæst ekki fyrr en þær tölur koma inn. Fjármálaráðherra segist ekk- ert geta tjáð sig um efnislega vinnu við fjárlögin meðan hún standi yfir. Hann svarar því þess vegna ekki hvort fundnir verði nýir tekjustofnar eða hvort aðrar álögur verði auknar til þess að skila hallalausum fjárlögum fyrir næsta ár. Samkvæmt heimildum blaðsins getur reynst erfitt að skila hallalausum fjárlögum án þess að annað hvort þeirra atriða komi til. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.