Fréttablaðið - 27.11.2002, Blaðsíða 17
FUNDIR
12.30 Malin Zimm flytur fyrirlesturinn A
Clockwork Urban í stofu 113 í
LHÍ í Skipholti. Hún fjallar um rót-
tækt hverfaskipulag frá tilviljana-
kenndri fagurfræði fyrsta kvik-
myndafélags heimsins til áhrifa
Archigrams, og frá þráðlausu
ímyndunarafli fútúristanna til
áhrifa hinna þráðlausu kerfa al-
þjóðavæðingar.
13:30 Kærleiksþjónustusvið Biskups-
stofu stendur fyrir fræðslu- og
umræðufundi í Hallgrímskirkju
um atvinnumissi, áhrif hans á líð-
an fólks og hvernig skynsamlegt
er að bregðast við. Séra Jón Dal-
bú Hróbjartsson fjallar um sorg-
ina og vonina og leiðir síðan sam-
tal. Fundarstjóri er Bryndís Val-
bjarnardóttir guðfræðingur. Allir
velkomnir. Boðið verður upp á
kaffi og kleinur.
16.00 Þorvaldur Gylfason flytur erindi í
málstofu viðskipta- og hagfræði-
deildar. Erindið nefnir hann
Tekjuskipting og hagvöxtur. Mál-
stofan fer fram í húsnæði Hag-
fræðistofnunar Háskólans að Ara-
götu 14.
20.00 Kínaklúbbur Unnar kynnir næstu
Kínaferð í húsi Kínaklúbbsins,
Njálsgötu 33. Ferðin verður farin
8.-31. maí á næsta ári. Farið verð-
ur vítt og breitt um Kína. Allir eru
velkomir á kynninguna á meðan
húsrúm leyfir.
TÓNLEIKAR
12.30 Petrea Óskarsdóttir leikur á
flautu og Þórarinn Stefánsson
leikur á píanó verk eftir Camille
Saint-Saëns, Gabriel Fauré og
Philippe Gaubert á síðustu há-
skólatónleikum haustmisseris.
Tónleikarnir eru haldnir í Nor-
ræna húsinu. Aðgangseyrir er kr.
500 en ókeypis er fyrir handhafa
stúdentaskírteina.
BÍÓ
20.30 Goethe-Zentrum á Laugavegi 18
sýnir þýsku kvikmyndina Die Un-
berührbare frá árinu 2000. Mynd-
in er 103 mínútur og er ótextuð.
SKEMMTUN
22.00 Míkrófónkvöld verður haldið á
Sportkaffi í samvinnu við Radíó X.
Þar munu uppistandarar, reyndir
sem óreyndir, fá tækifæri til að
spreyta sig í bland við fagmenn.
Gestgjafi kvöldsins verður Sigur-
jón Kjartansson.
SÝNINGAR
Ljósmyndasýning Þorkels Þorkelssonar,
Í skugga styrjaldar, stendur yfir í Lista-
safni ASÍ í Ásmundarsal. Á sýningunni
eru svart/hvítar ljósmyndir frá Palestínu
og Ísrael sem hann tók síðastliðið vor.
Listasafn ASÍ er opið alla daga nema
mánudaga frá kl. 14-18. Aðgangur er
ókeypis. Sýningin stendur til 8. desem-
ber.
Sýningin Þetta vilja börnin sjá er haldin
í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi.
Sýndar verða myndskreytingar úr nýút-
komnum barnabókum. Sýningunni lýkur
6. janúar 2003. Allir velkomnir.
Hildur Margrétardóttir myndlistarkona
sýnir nokkur óhlutbundin málverk á
Mokka-kaffi. Sýningin stendur til 15. jan-
úar.
Sýningin Milli goðsagnar og veruleika
er í Listasafni Reykjavíkur. Sýningin
kemur frá Ríkislistasafni Jórdaníu í
Amman og er ætlað að varpa ljósi á
heim araba.
Rósa og Stella sýna í Gallerí Skugga,
Hverfisgötu 39. Sýningarnar standa til 1.
desember og er galleríið opið frá 13 til
17 alla daga nema mánudaga.
Sýning á nokkrum verkum Guðmundar
Hannessonar ljósmyndara stendur yfir
í Gallerí Fold. Sýningin nefnist Reykja-
víkurminningar en myndirnar tók Guð-
mundur um miðja síðustu öld í Reykja-
vík.
Inga Svala Þórsdóttir sýnir Borg í Lista-
safni Reykjavíkur. Inga Svala fjallar um
og endurvekur draumsýnina um hið full-
komna samfélag. Hún leggur fram hug-
mynd að milljón manna borgarskipulagi
í Borgarfirði og á norðanverðu Snæfells-
nesi.
Hrafnhildur Arnardóttir sýnir „Shrine of
my Vanity“ sem útleggst á íslensku
„Helgidómur hégóma míns“ í Gallerí
Hlemmi. Leiðarstef sýningarinnar er hið
svokallaða IVD (intensive vanity dis-
order) eða hégómaröskun en það heil-
kenni verður æ algengara meðal þeirra
sem temja sér lífsstíl Vesturlandabúa.
Myndlistamaðurinn Hildur Ásgeirsdóttir
Jónsson sýnir í Galleríi Sævars Karls.
Kyrr birta - heilög birta er heitið á sýn-
ingu sem stendur yfir í Listasafni Kópa-
vogs. Sýningarstjóri er Guðbergur Bergs-
son.
Stærsta sýning á íslenskri samtímalist
stendur yfir í Listasafni Íslands. Sýnd
eru verk eftir um 50 listamenn sem
fæddir eru eftir 1950 og spannar sýning-
in árin 1980-2000.
Sýningin Í sjöunda himni stendur yfir í
gallerí Undirheimum, Álafossi, Mosfells-
bæ. Þar sýna 7 listakonur vatnslitaverk.
Opið er alla daga 12-17 nema miðviku-
daga. Sýningin stendur til 24. nóvember.
Anna Gunnlaugsdóttir sýnir 365 mynd-
verk, unnin á jafnmörgum dögum, í
Gallerí Glámi, Laugavegi 26, Grettisgötu-
megin. Sýningin stendur til 24. nóvem-
ber.
Guðrún Tryggvadóttir sýnir í Listhúsinu
í Laugardal. Sýningin ber heitið Furðu-
dýr í íslenskum þjóðsögum og er sam-
sett af myndskreytingum úr samnefndri
bók. Sýningin stendur til 30. nóvember.
Sýningin Hraun - ís - skógur er í Lista-
safni Akureyrar. Sýningin er opin alla
daga milli 12 og 17. Henni lýkur 15. des-
ember.
Veiðimenn í útnorðri er yfirskrift á sýn-
ingu sem Edward Fuglö heldur í Nor-
ræna húsinu.
Í Ljósmyndasafni Reykjavíkur stendur
yfir sýning á portrettmyndum Augusts
Sanders. Sýningin er í Grófarsal, Grófar-
húsi, Tryggvagötu 15, 101 Reykjavík og
stendur til 1. desember 2002. Opnunar-
tími er 12-18 virka daga en 13-17 um
helgar.
Jóhanna Ólafsdóttir og Spiros Misokil-
is sýna ljósmyndir sínar á Kaffi Mokka.
Sýningin heitir „Orbital Reflections“. Allir
eru velkomnir.
Tróndur Patursson frá Færeyjum sýnir
málverk í aðalsal Hafnarborgar.
Flökt - Ambulatory - Wandelgang er
samsýning Magnúsar Pálssonar, Erics
Andersens og Wolfgangs Müllers í Ný-
listasafninu.
Ágústa Oddsdóttir sýnir í gluggum
Vatnsstígs 10.
18 27. nóvember 2002 MIÐVIKUDAGUR
GRÍN Sigurjón Kjartansson verður
gestgjafi á Míkrófónkvöldi sem
haldið verður á Sportkaffi í kvöld.
Fyrirmyndin að kvöldinu er sótt
út í hinn stóra heim en þar kallast
fyrirbærið „open mike“ og geng-
ur út á það að gefa reyndum og
óreyndum uppistöndurum tæki-
færi til að spreyta sig í bland við
fagmenn. Fyrsta Míkrófónkvöldið
var haldið í síðustu viku og tókst
að sögn Sigurjóns býsna vel. „Þar
tróðu þeir Jón Mýrdal og Birgir
Búason upp og gerðu mikla lukku.
Þeir jaðra við að vera fagmenn en
annars snýst þetta ekki um það
hvort menn eru fagmenn eða ama-
törar heldur bara að menn séu
fyndnir. Og samkæmt hefðinni er
öllum frjálst að troða upp. Þeir
Jón og Birgir ætla að endurtaka
leikinn og svo mætir Snorri Her-
gill en hann komst í úrslit í keppn-
inni Fyndnasti maður Íslands.“
Sigurjón sjálfur hyggst svo
fara með nokkur vel valin gaman-
mál. ■
TÓNLEIKAR Í kvöld heldur KK út-
gáfutónleika í Austurbæ í tilefni
af nýja diskinum sínum, Paradís.
„Þetta verður allt af fingrum
fram,“ segir KK. „Við spilum alla
nýju plötuna, en líka nokkur eldri
lög sem fólk þekkir og svo eitt-
hvað úr sarpnum, sem mér per-
sónulega þykir ofsalega vænt um
og finnst gaman að spila.“
Með KK í kvöld er fimm manna
hljómsveit og tvær ungar stúlkur
sem syngja bakraddir. „Þær eru
nemar í FÍH og heita Ragnhildur
Gröndal og Þóra Gísladóttir. Það
er nauðsynlegt að fá nýtt blóð í
þennan bransa. Birgir Braga verð-
ur á kontrabassanum, Guðmundur
Péturs á gítar, Þórir Baldurs á
Hammondinu og svo tekur Guðni
Fransson fram „didserídúið“ sitt
og bólívíska bassaflautu.“
KK segist vera á örlítið nýjum
slóðum á Paradís. „Ég er að leyfa
mér að spila eins og mig langar til
án þess að láta það stjórna ferð-
inni hvað ég held að aðrir vilji
heyra. Ég er meira að segja svolít-
ið - nei annars,“ segir hann og hik-
ar, „bara heilmikið eigingjarn á
þessari plötu, læt svona flæða.“
Hann segist vera mjög þakklátur
fyrir þær viðtökur sem platan hef-
ur þegar fengið. „Það er svo ljúft
að fólk skuli sýna þessu „barni
mínu“ áhuga. Það er ekki til betri
tilfinning hjá foreldri en þegar
einhver er góður við barnið þess
og það er akkúrat tilfinningin mín
núna.“
KK, sem lengi var götu-
söngvari í Evrópu, býst ekki við að
hann muni í sumar taka upp á því
að syngja á götuhornum í Reykja-
vík. „Íslendingar taka ekkert
mark á mér sem götusöngvara.
Þeir taka reyndar ekkert mark á
götumúsíköntum yfirleitt og halda
að þetta sé eitthvert djók, enda
ekki vanir þessari tegund af tón-
listarmönnum. Ísland er svo úr
leið og þessir tónlistarmenn eru
nú yfirleitt ekki mjög fjáðir.“
Útgáfutónleikarnir í Austur-
bæjarbíói hefjast klukkan 21 og
halda áfram fram eftir kvöldi eins
og stemningin býður. ■
MIÐVIKUDAGUR
27. NÓVEMBER
hvað?
hvar?
hvenær?
KK MEÐ TÓNLEIKA
Götusöngvarinn fyrrverandi býst ekki við að syngja á götuhornum í Reykjavík í sumar af
því að Íslendingar taka ekki mark á slíkum tónlistarmönnum.
KK og félagar kynna nýútkominn disk, Paradís, í Austurbæ í kvöld:
Spilum eins lengi og
stemningin býður
SIGURJÓN KJARTANSSON
Tekur á móti brandaraköllum og -kelling-
um á Sportkaffi og leyfir öllum að stíga á
stokk. Eina skilyrðið sem hann setur er að
fólk sé fyndið.
Gamanmál:
Orðið er laust