Fréttablaðið - 27.11.2002, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 27. nóvember 2002
KVIKMYND Þýska kvikmyndin Die
Unberührbare segir frá Hönnu
Flanders, sem forðum daga var
vinsæll rithöfundur og hálfgert
bókmenntagoð á sjöunda áratugn-
um og var auk þess dýrkuð sem
hugsjónakona á sviði samfélags-
mála. Hún einangraðist með ár-
unum, bæði í þjóðfélagslegu tilliti
og í mannlegum samskiptum.
Þegar Berlínarmúrinn fellur 1989
bresta síðustu vonir hennar,
skáldsögurnar vekja enga athygli
lengur og vinir og fjölskylda snúa
við henni bakinu. Þessi sögulegi
atburður fyllir hana depurð en
viðhorf hennar til kommúnista-
ríkjanna voru mjög jákvæð.
Myndin hefur hlotið ýmis
verðlaun og viðurkenningar en í
henni styðst leikstjórinn, Oscar
Roehler, við ævi og ævilok móður
sinnar, rithöfundarins Giselu
Elsner.
Myndin, sem gerð var árið
2000, verður sýnd í Goethe-
Zentrum á Laugavegi 18 klukkan
20.30 í kvöld. Hún er 103 mínútna
löng og er sýnd ótextuð. ■
HANNA FLANDERS
Lendir í ógöngum þegar Berlínarmúrinn fellur og reynist vonlaust að fóta sig í breyttum
heimi.
Þýsk kvikmynd:
Einangrun eftir fall múrsins