Fréttablaðið - 27.11.2002, Síða 9
10 27. nóvember 2002 MIÐVIKUDAGUR
Karlmaður dæmdur í fjögurra ára fangelsi:
Sviðsetti dauða sinn 11. september
ÁRÁS Á BANDARÍKIN Steven Chin
Leung, karlmaður frá Hong Kong
sem sviðsetti dauða sinn eftir að
ráðist var á World Trade Center-
tvíburaturnana í fyrra, hefur verið
dæmdur í fjögurra ára fangelsi.
Maðurinn þóttist vera bróðir
sinn þegar hann reyndi að verða
sér úti um dánarvottorð fyrir sjálf-
an sig. Þannig vonaðist hann til
þess að kærur gegn honum fyrir
vegabréfssvik á Hawaii yrðu felld-
ar niður. Bjó hann til falsaðan
tölvupóst sem sýndi að hann hefði
unnið í World Trade Center hjá
fyrirtæki sem missti um 650
starfsmenn í hryðjuverkunum.
Dómaranum í málinu var ekki
skemmt og fordæmdi Leung fyrir
„algera eigingirni“ og sagði hann
vera sekan um „skammarlegt at-
hæfi.“ Dómurinn yfir Leung var 18
mánuðum lengri en venjulega er
miðað við í málum sem þessum.
Í stað þess að fá hugsanlega
skilorðsbundinn dóm fyrir vega-
bréfssvikin á Hawaii þarf maður-
inn nú að dúsa næstu fjögur árin á
bak við lás og slá. ■
WORLD TRADE CENTER
Hefði maðurinn verið fundinn sekur um
vegabréfssvik á Hawaii hefði hann líklega
fengið skilorðsbundið fangelsi. Nú hefur
hann verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi.
VÆNDI „Vændi er félagslegt
vandamál sem fólk leiðist út í af
neyð,“ segir Þórunn Sveinbjarn-
ardóttir, alþingis-
maður Samfylk-
ingar, um ástæður
þess að fólk legg-
ur fyrir sig þann
starfa að selja lík-
ama sinn.
F r é t t a b l a ð i ð
hefur undanfarið
skoðað vændismarkaðinn á Ís-
landi. Niðurstaðan er sú að sala á
vændi fari að langmestu leyti
fram á Netinu en þjónustan er
veitt í heimahúsum eða þar sem
vændiskonur hafa komið sér upp
aðstöðu. Tugir kvenna stunda
vændi með þessum hætti og lík-
legt þykir að þær séu um 70.
Fréttablaðið hefur undanfarið
hitt nokkrar vændiskonur. Meðal
þeirra sem blaðið hefur rætt við
er vændiskona á fimmtugsaldri
sem stundað hefur þessa grein
með hléum í 20 ár. Hún sagðist
hafa farið út í vændi vegna þess
að hún er ómenntuð og hefði ekki
úr öðrum störfum að velja en
láglaunastörfum. Hún staðhæfði
að henni líkaði starfið vel. Önnur
vændiskona sem einnig mark-
aðssetur sig á Netinu lýsti því í
Fréttablaðinu hvers vegna hún
lækkaði verð á þjónustu sinni um
helming frá því sem þegjandi
samkomulag hafði verið um.
Hún taldi sanngjarnt að íslenskir
karlmenn sætu við sama borð og
karlar á Norðurlöndunum sem
greiða sambærilegt verð við það
sem hún býð-
ur.
Í Íslandi í
bítið á Stöð 2 í
fyrradag var
rætt við blá-
fátækt sam-
býlisfólk sem
stundar vændi
að eigin sögn
af neyð. „Ég
verð að selja
mig til að eiga
fyrir bleium
og barnamat,“
sagði fátæka
vændiskonan sem selur sig
ásamt manni sínum. Saman eiga
þau nokkurra mánaða gamalt
barn og búa í lítilli íbúð í úthverfi
borgarinnar. „Þetta er viðbjóður
og ég vil losna sem fyrst,“ sagði
fátæka vændiskonan við Frétta-
blaðið.
Ekkert af þessu fólki greiðir
skatta eða önnur gjöld af launum
sínum, sem oft eru hundruð þús-
unda króna á mánuði.
Þórunn alþingismaður vill að
sala á kynlífsþjónustu verði ekki
refsiverð samkvæmt lögum.
„Með afnámi refsingar við að
selja sig opnast leiðir fyrir þess-
ar konur til að leita aðstoðar til
að komast út úr þessum víta-
hring,“ segir Þórunn.
Hún segist höll undir þau
sjónarmið að gert verði refsivert
að kaupa kynlífsþjónustu. „Sá
sem kaupir er að notfæra sér
neyð annarrar manneskju,“ segir
Þórunn. rt@frettabladid.is
MISMUNANDI ÁSTÆÐUR
Allar gerðir kvenna leggja fyrir sig vændi. Sumar stunda slíkt vegna fátæktar en aðrar
vegna þess að afkoman er góð.
„Sá sem kaup-
ir er að not-
færa sér neyð
annarrar
manneskju.“
ÞÓRUNN SVEIN-
BJARNARDÓTTIR
Vill hjálpa vændiskon-
um að komast út úr
greininni.
Hjálparsími Rauða krossins opnaður:
Hægt að hringja í 1717 og fá hjálp
HEILBRIGÐISMÁL Í gær var opnaður
nýr hjálpar- og neyðarsími sem op-
inn verður allan sólahringinn. Síma-
númerið er 1717 og geta allir sem
þurfa hjálpar við vegna depurðar,
kvíða, þunglyndis eða sjálfsvígs-
hugleiðinga hringt og fengið aðstoð.
Að þjónustunni standa Rauði
kross Íslands, Landlæknisembætt-
ið, Neyðarlínan og geðsvið Land-
spítala - háskólasjúkrahúss og skrif-
uðu fulltrúar þeirra undir yfirlýs-
ingu um samstarf í Rauðakross-
húsinu í gær.
Sigrún Árnadóttir, fram-
kvæmdastjóri Rauða krossins,
sagði að tilgangurinn væri að vera
til staðar fyrir þá sem finnst þeir
vera komnir í öngstræti en vilja
þiggja aðstoð. Hún sagði að með því
gætu þeir sem hringdu fundið til-
gang með lífinu að nýju. „Það eru of
margir sem á einhverjum tíma-
punkti sjá enga aðra útleið en að
taka líf sitt. Einkum er það ungt fólk
sem er í hættu.“
Kannanir benda til að margir
þeirra sem gera tilraun til sjálfs-
vígs vilji í raun ekki deyja en finnist
lífið of erfitt til að geta höndlað það.
Halldóra Ólafsdóttir yfirlæknir
á geðsviði Landspítala sagði að
veturnir væru alltaf erfiðari fyrir
þá sem ættu við geðræn vandamál
að stríða. Einkum væri tíminn eftir
jól þeim erfiður.
Símaþjónustan er útvíkkun á
þeirri þjónustu sem lengi hefur ver-
ið til staðar í Rauðakrosshúsinu og
munu sjálfboðaliðar og starfsmenn
þess svara í símann. Hægt verður
að beina símtölum áfram á geðsvið
Landspítala, þar sem hjúkrunar-
fræðingar og læknar taka við sím-
talinu ef mat þeirra sem svara er að
þess gerist þörf. Síminn er aðal-
styrktaraðili Hjálparsímans en Tal
og Íslandssími hafa ákveðið að gefa
eftir gjald vegna símtala í 1717. ■
Fólk fer í vændi
út af sárri neyð
Með afnámi refsingar opnast leiðir fyrir þessar konur til að komast út úr
þessum vítahring, segir Þórunn Sveinbjarnardóttir alþingismaður.
ÆTLAÐUR ÞEIM SEM ERU Í SÁRRI NEYÐ
Þjálfað starfsfólk svarar í símann og er til staðar fyrir þá sem eiga við geðræn vandamál
að stríða eða eru í sjálfsvígshugleiðingum.
SVONA ERUM VIÐ
BRUNAR EFTIR BRUNASTAÐ
1995-2001*
Ein- og tvíbýlishús: 162/37%
Fjölbýlishús: 121/27%
Iðnaðarhúsnæði og verkstæði: 36/8%
Landbúnaðarhúsnæði: 25/6%
Opinberar byggingar: 32/7%
Skrifstofuhúsnæði: 46/10%
Annað: 21/5%
Alls: 443/100%
*heimild: Löggildingarstofa
BRUNAR AF VÖLDUM RAFMAGNS
Brunar af völdum rafmagns eru algengari í
heimahúsum en í atvinnuhúsnæði eða
mannvirkjum. Vægi íbúðarhúsnæðis var þó
heldur minna á síðasta ári, eða 62%, en á
tímabilinu í heild sinni. Vægi bruna í
heimahúsum er 65% frá 1995 til 2001.
Sigurstjarnan, Bláu húsin Fákafeni, s. 588-4545
Einnig opið um helgar. Verið velkomin.
100% mesta vöruúrval á fermetra.
Austurlenskt bollastell
og aðrir skrautmunir
með ekta gyllingu,
einnig glæsileg
glös og pottar.
Ótrúlegt úrval
öðruvísi
gjafavöru.
Heitasta búðin í bænum