Fréttablaðið - 27.11.2002, Page 28
29MIÐVIKUDAGUR 27. nóvember 2002
FRÉTTIR AF FÓLKI
KVIKMYNDIR Leikarinn Russell
Crowe hefur heitið því að hysja
upp um sig buxurnar og hætta að
láta sjá sig drukkinn á almanna-
færi. Crowe varð sér til skammar
á dögunum á veitingastað í Lund-
únum þegar hann hafði uppi mik-
il drykkjulæti.
Að sögn kunningja leikarans
ætlar hann að draga úr drykkj-
unni og reyna að haga sér eins og
siðmenntaður maður í framtíð-
inni.
Paul Bettany, sem leikur með
Crowe í kvikmyndinni „Master
and Commander“, segir að Crowe
sé misskilinn einstaklingur. „Það
slæma orðspor sem fer af honum
á ekki rétt á sér,“ sagði hann. ■
CROWE
Ástralinn Russell Crowe varð sér til
skammar í Lundúnum á dögunum.
Russell Crowe:
Dregur úr
drykkjunni
Kurr og kergja er meðal kven-frambjóðenda, einkum af
yngri kynslóðinni, út í Þorgerði
Katrínu Gunnarsdóttur og af-
skipti hennar af prófkjöri flokks-
systkina í Reykja-
vík. Reykvísku
konunum þótti
súrt í broti að sjá
nafn Þorgerðar
Katrínar í auglýs-
ingum ungu karl-
anna, Sigurðar
Kára Kristjáns-
sonar, Guðlaugs Þórs Þórðarson-
ar og Birgis Ármannssonar eða
þríburanna svokölluðu, Sigga,
Gulla og Bigga. Ungum kven-
frambjóðendum í prófkjörinu
fannst að stuðningur Þorgerðar
Katrínar hefði mátt vera jafnari
kynjalega séð, henni hefði átt að
renna blóðið til skyldunnar. „Eins
gott að hún er ekki í prófkjöri í
sínu kjördæmi,“ sagði ein hinna
súru reykvísku kvenna um Þor-
gerði Katrínu.
Ungir framsóknarmenn íReykjavík norður eru að
hefja félagsstarfið að nýju og
bregða á það ráð að halda opið
hús í húsakynnum sínum í kvöld
til að fjalla um Jón Baldvin
Hannibalsson, sem einhvern tíma
var kallaður mesti fjandi Fram-
sóknar. Nú bregður hins vegar
svo við að ævisöguritari hans,
Kolbrún Bergþórsdóttir, er köll-
uð á fund ungra framsóknar-
manna til að ræða manninn Jón
Baldvin og pólitíkina þegar hann
var upp á sitt besta, eins og segir
í fundarboði. Í fundarboðinu eru
framsóknarmenn hvattir til að
mæta og sagt kjörið að mæta í
fötum frá níunda áratugnum til
að ná upp réttu stemningunni.
Nokkra athygli vakti viðtal íFréttablaðinu við vændis-
konuna í Hafnarfirði sem reið á
vaðið og lækkaði verð á þjónustu
sinni um helming. Vændiskonan
selur sig á Netinu og birtir þar
tilboð sín, sem eru hin margvís-
legustu. Ísland í bítið á Stöð 2
tók málið upp og fékk alþingis-
menn til þess að ræða mál
vændiskvenna og lausnir við
vandanum. Þórhallur Gunnars-
son, annar umsjónarmanna þátt-
arins, opnaði umræðuna með því
að lýsa því að konan í Hafnar-
firði hefði lækkað verðið. „Hún
er eins konar Jóhanna í Bónus,“
sagði hann og leit glottandi á
hinn umsjónarmanninn, Jóhönnu
Vilhjálmsdóttur, sem tók því af
karlmennsku að hafa eignast
nöfnu í Hafnarfirði.
Heimildir Fréttablaðsinsherma að það hafi verið
með vilja forystu Sjálfstæðis-
flokksins að Kristján Pálsson
alþingismaður var sleginn af í
uppstillingu í Suðurkjördæmi.
Kristján þykir ekki rekast sér-
staklega vel í flokki og hann
hefur gjarnan tekið upp mál
sem eru Davíð Oddssyni for-
manni lítt að skapi. Kristján er
einn þeirra þingmanna sem
skeytir lítt um flokkslínur og
því fékk hann hárbeitta reglu-
strikuna í hausinn. En óvíst er
að málinu sé lokið því Suður-
nesjamenn eru sumir hverjir
ævareiðir og spurt er hvort sér-
framboð spretti af aftökunni.