Fréttablaðið - 27.11.2002, Page 29
30 27. nóvember 2002 MIÐVIKUDAGUR
HÚSIÐ
Fjölbýlishúsiðvið Skafta-
hlíð 12-22 var
reist árið 1955
fyrir 18 félaga í
Starfsmannafé-
lagi Stjórnar-
ráðsins. Húsið
er eitt þekktasta
verk arkitekts-
ins Sigvalda
Thordarsonar
og ber það greinileg höfundarein-
kenni hans. Litasamsetningin á út-
veggjum hússins vekur athygli en
litaval Sigvalda gaf tóninn fyrir það
sem koma skyldi í hans síðari verk-
um. Húsið skiptist í sex ferhyrndar
einingar sem eru samfastar á horn-
unum. Lögð var áhersla á það að
hver íbúð nyti kosta sérbýlis og því
er aðeins ein íbúð á hæð í hverjum
stigagangi. Fyrir vikið hefur hver
íbúð glugga á fjórum hliðum og nýt-
ur sólar úr öllum áttum. ■
Kann tvö púsluspil,
eitt létt og eitt erfitt
Undanfarnar vikur hefur lítil hnáta með ljósa tíkarspena glatt hjörtu
landsmanna með söng í sjónvarpsauglýsingu um malt og appelsín.
Stelpuskottan heitir Þorbjörg Erna Mímisdóttir og er fimm ára.
Hún er alltaf kölluð Tobba.
SÖNGKONA „Ég er búin að syngja í
tveimur auglýsingum,“ segir
Tobba. „Einni bara fyrir appelsín
og einni fyrir malt og appelsín.
Ég kunni alveg lagið, það heitir
Skín í rauðar skotthúfur. Svo er
ég líka búin að syngja í fleiri aug-
lýsingum sem eru ekki búnar að
birtast, Bjart er yfir Betlehem og
Jólasveinar ganga um gólf.“
Tobba segir að það sé ekkert
erfitt að leika í svona auglýsing-
um. „Nei, bara gaman,“ segir
hún. „Maður þarf soldið að bíða
og gera aftur og aftur, en það er
ekkert leiðinlegt.“
Hún telur ekki að hún sé orðin
neitt ofsalega fræg, en viður-
kennir að stundum þekki fólk
hana á götu og krakkarnir í leik-
skólanum spyrji hvernig sé að
vera í sjónvarpinu.
En hvað finnst henni
skemmtilegast að gera? „Púsla,“
segir hún án þess að hika. „Ég
kann tvö púsluspil, eitt létt og
eitt erfitt. Og perla. Maður
straujar og svo er hægt að gera
hálsmen. Það er líka gaman að
leika með Barbí og horfa á
barnaefni.“
Uppáhaldsmyndin hennar
Tobbu er ævintýrið um Ösku-
busku. „Öskubuska átti tvær
systur, þær voru sko stjúpsyst-
ur,“ segir hún með áherslu. „Þær
voru svo leiðinlegar, Öskubuska
átti alveg falleg föt, en þær tóku
þau af henni. Ég hlakka líka til
að undirbúa jólin,“ segir Tobba
dreymin. „Maður setur jóladót í
gluggann, seríu og svoleiðis.“ Að-
spurð af hverju við höldum jól
segir hún að það sé auðvitað út af
gjöfunum. En af hverju fáum við
gjafir? „Nú, af því það eru jól,“
svarar hún, steinhissa á fáfræði
spyrjandans. „Svo á nú Jesús af-
mæli,“ bætir hún við.
Foreldrar Tobbu eru Elín
Hilmarsdóttir og Mímir Völund-
arson. „Svo á ég einn bróður,
hann Völla,“ segir Tobba og er
farin að ókyrrast í sætinu.
„Hann vinnur í Krónunni,“ segir
hún að lokum og snýr sér að því
að stilla sér upp fyrir ljós-
myndarann. ■
TÍMAMÓT
PERSÓNAN
RITHÖFUNDUR „Maður skrifar
alltaf eitthvað út frá sinni eigin
persónu og bókin endurspeglar
kannski veruleika ungs fólks í
dag en það held ég að væri léleg
bók ef hún takmarkaðist við það,“
segir rithöfundurinn Steinar
Bragi um bók sína Áhyggjudúkk-
ur. Hann segist þó ekki hafa sótt
meðvitað í heim ungs fólks.
„Ungt fólk er mannlegt og það
hlýtur líka að segja eitthvað um
samtímann. Það að það skuli fest-
ast við einhverjar bækur hjá
ungu fólki að þær endurspegli
veruleika ungs fólks segir
kannski eitthvað um þessa eldri
menn sem eru að skrifa í dag.
Hvað endurspegla þeir? Það er
eins og þeir endurspegli ekkert
nema eigið áframhald, komandi
verk í trílógíunni og fleira.“
Steinar Bragi er Árbæingur
og gekk á sínum tíma í Mennta-
skólann við Sund og sagan segir
að hann hafi nánast aldrei sést í
tíma. „Ég hef alltaf átt erfitt með
félagslegt samneyti og hópa-
myndanir. Ég var bara heima hjá
mér að sofa mestmegnis og nám-
ið gekk ágætlega.“ Hann vakti
fyrst athygli með ljóðabókum
sínum en Áhyggjudúkkur er önn-
ur skáldsaga hans og hann skýtur
ekki loku fyrir það að hann muni
segja skilið við ljóðið.
„Ég veit það ekki. Það gæti al-
veg eins gerst. Það kvikna þarna
ljómar og kenndir sem velta sér
út í texta og það er svo bara
happa og glappa hvar hann lend-
ir. Ég hef ekkert verið að setjast
niður og leggja niður fyrir mér
mun á formum og hvers eðlis
hvert form er. Ég held að það
gæti orðið mjög truflandi. Hvað
viðtökur og undirtektir varðar
er hægt að segja að ljóðið sé
dautt. Þá er ég ekkert að tala um
hversu mikil gæði búi í ljóðinu í
dag. Það bara skilar sér ekki til
lesenda og sjálfsagt hefur sjald-
an verið til dauðara form á Ís-
landi en ljóðið.“ ■
Steinar Bragi vakti fyrst athygli sem
ljóðskáld en hefur nú gefið út aðra
skáldsögu sína.
Áfangi
Sofandi ljóðskáld í menntó
TOBBA LITLA
Hlakkar mikið til jólanna og segir öruggt að hún fái nammidagatal og eitthvað í skóinn.
JARÐARFARIR
13.30 Egill Guðmundsson verður jarð-
sunginn frá Garðakirkju á Garða-
holti.
13.30 Guðmundur Kristján Hermanns-
son, Lautarsmára 3, Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Digranes-
kirkju.
13.30 Herdís Símonardóttir, Miklubraut
88, Reykjavík, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju.
13.30 Ingibjörg Ólafsdóttir, Víðigrund 55,
Kópavogi, verður jarðsungin frá
Kópavogskirkju.
14.00 Páll Ólafsson, Hringbraut 48, Kefla-
vík, verður jarðsunginn frá Keflavík-
urkirkju.
15.00 Gunnar Árnason, Grundarstíg 8,
Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni í Reykjavík.
15.00 Kristján Jóhann Agnarsson, Hegra-
nesi 19, Garðabæ, verður jarðsung-
inn frá Fríkirkjunni í Reykjavík.
AFMÆLI
Edda Heiðrún Backman leikkona er 45
ára í dag.
ANDLÁT
Helga Þórarinsdóttir, Hringbraut 69,
Hafnarfirði, lést 24. nóvember.
Sigríður Erla Sigurbjörnsdóttir lést 24.
nóvember.
Jónína Þorgrímsdóttir frá Raufarfelli lést
24. nóvember.
Svanhildur Eggertsdóttir, frá Holtseli í
Eyjafjarðarsveit, lést 23. nóvember.
Þorsteinn Þorsteinsson lést í Reykjavík
23. nóvember.
Örn Traustason lést í Ghana 23. nóvem-
ber.
Karl Gunnarsson, áður á Kleppsvegi 140,
Reykjavík, lést 22. nóvember.
Eiríkur Sæland, garðyrkjubóndi, Espiflöt,
lést 22. nóvember.
Carol Speede, Sólheimum 2, Breiðdalsvík,
lést 21. nóvember.
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
Vegna frétta af rauðum jólum skal
tekið fram að jólatrén verða eftir
sem áður græn.
Leiðrétting
KROSSGÁTA
LÓÐRÉTT: 1 athygli, 2 hræðsla, 3 óvinur, 4 flekklaus, 5 fífl, 6 farfa, 7 dugði, 8
fiskiskip, 11 menn, 14 hljóms, 16 ýfði, 18 stingur, 20 kafur, 21 fyrirlestur, 23
geðvonds, 26 þróa, 28 fjas, 30 skelin, 31 spyrja, 33 planta.
LÁRÉTT:
1 dæld,
4 mikilfengleg,
9 vatnið.
10 kæpa,
12 stakt,
13 áleit,
15 etja,
17 rudda,
19 kaun,
20 ljómaði,
22 stafagerð,
24 skjól,
25 skítur,
27 tryllir,
29 ískraði,
32 þrábeiðni,
34 eljusöm,
35 kurfana,
36 sindra,
37 venda.
Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 höft, 4 fækkun, 9 úreltur, 10 únsa, 12 ætla,
13 kassar, 15 autt, 17 suða, 19 mái, 20 skrið, 22 stinn, 24 trú, 25 nasi, 27 rima, 29
ranann, 32 fumi, 34 duga, 35 örendum, 36 Satans, 37 rugg. Lóðrétt: 1 hnúk, 2 fúss,
3 trassi, 4 flærð, 5 ætt, 6 kula, 7 kraumi, 8 nautin, 11 naskri, 14 auðn, 16 táning, 18
assa, 20 stráks, 21 rúmföt, 23 tindur, 26 arins, 28 aura, 30 augu, 31 nagg, 33 men.
Auður Jónsdóttir.
Frakklands.
Uppstillingarnefndar sjálf-
stæðismanna í Suðurkjör-
dæmi.
1.
2.
3.
Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
STEINAR BRAGI
„Ég hef fylgst með þeim dómum sem bók-
in hefur verið að fá og hef svo sem ekkert
um þá að segja annað en það að mér sýn-
ist þeir vera góðir í tvennum skilningi, þar
sem fólk virðist ná því hvað maður var að
segja og fara.“
Ef Barbie er svona vinsæl,hvernig í ósköpunum stendur
þá á því að það þarf að kaupa
handa henni eiginmann?
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T