Fréttablaðið - 23.12.2002, Síða 1

Fréttablaðið - 23.12.2002, Síða 1
AFMÆLI Stóðu vörð um afmælið bls. 30 Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Mánudagurinn 23. desember 2002 Myndlist 18 Bíó 20 Íþróttir 10 Sjónvarp 22 KVÖLDIÐ Í KVÖLD TÓNLEIKAR Þorláksmessutónleikar Bubba Morthens á Hótel Borg eru orðnir fastur liður í aðdraganda jóla hjá hópi fólks. Bubbi lætur ekki deigan síga og heldur upp- teknum hætti þessi jólin líka. Tón- leikarnir hefjast klukkan 20:30. Rósa Guðmundsdóttir mun hita upp fyrir Bubba að þessu sinni. Hinn árlegi Bubbi FRIÐUR Friðarganga á Þorláksmessu verður gengin niður Laugaveginn í 23. sinn í dag. Safnast verður sam- an kl. 17:30 á Hlemmi og lagt af stað klukkan 18. Fólk er hvatt til að mæta tímanlega. Kristín Helga Gunnarsdóttir flytur ávarp Sam- starfshóps friðarhreyfinga en fund- arstjóri verður Katrín Jakobsdóttir háskólanemi. Friðarganga á Þorláksmessu MESSA Páll Óskar Hjálmtýsson og Monika Abendroth hörpuleikari flytja íslensk jólalög og sálma í miðnæturmessu Fríkirkjunnar í Reykjavík í kvöld klukkan 23:30. Anna Sigríður Helgadóttir mun einnig flytja jólasálminn fræga „Ó helga nótt.“ Slökkt verður á öllum rafmagnsljósum um miðbik messunnar og kirkjugestir bera lif- andi kertaljós út í jólanóttina. Prestur er séra Hjörtur Magni Jóhannsson. Páll Óskar í miðnæturmessu JÓLASPIL Róið á sömu mið MÁNUDAGUR 260. tölublað – 2. árgangur bls. 16 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S K R I 19 57 2 12 /2 00 2 dagur til jóla e r m e › a l l t f y r i r j ó l i n 1 Opið til kl. 23.00 ÍÞRÓTTIR Talaði illa um konuna bls. 10 KVIKMYNDIR Djásnið snýr aftur bls. 20 REYKJAVÍK Austan 3-5 m/s og rigning eða súld framan af, en suð-austan 8-13 og rign- ing síðdegis. Hiti 1-7 stig. VEÐRIÐ Í DAG VINDUR ÚRKOMA HITI Ísafjörður 10-15 Rigning 5 Akureyri 3-8 Skýjað 6 Egilsstaðir 5-10 Skýjað 7 Vestmannaeyjar 8-13 Rigning 7➜ ➜ ➜ ➜ + + + + STJÓRNMÁL „Við viljum mjög gjarn- an halda Ingibjörgu Sólrúnu áfram sem borgarstjóra en ef hún kýs að fara í landsmálin þá verður hún að fara frá. Við óskum henni þá bara velfarnaðar í því,“ sagði Alfreð Þor- steinsson, oddviti framsóknar- manna í Reykjavík, eftir sameigin- legan fund beggja kjördæmisráða Framsóknarflokksins í Reykjavík, borgarfulltrúa og formanns flokks- ins í gær. Fundurinn ítrekaði þar fyrri af- stöðu sína þess efnis að Ingibjörg Sólrún geti ekki sinnt starfi borgar- stjóra áfram, fari hún fram fyrir Samfylkinguna í vor. Framsóknar- menn telja nauðsynlegt að þessi mál verði til lykta leidd á allra næstu dögum, borgarstjóri verði að gera upp við sig á hvaða vettvangi hún ætli að starfa. „Við gefum þessu ekki langan tíma. Við viljum eyða þeirri óvissu sem er uppi og flýta ákvarðanatöku. Það þýðir að lausn verður að finnast fyrir jól,“ sagði Alfreð. „Við ákváðum síðast þegar við hittumst á vettvangi borgarmálanna að hittast aftur 30. desember, menn gæfu sér tíma til að fara yfir stöð- una þangað til. Það er engin ögur- stund og ég tel enga ástæðu til að flýta því ferli,“ sagði Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir. Hún þingaði með Halldóri Ás- grímssyni, formanni Framsóknar- flokksins, áður en forystusveit Framsóknarflokksins hittist í gær- morgun. „Það fór ágætlega á með okkur en ég á ekki von á því að við þingum í dag,“ sagði Ingibjörg og bætti við að engan bilbug væri að finna á sér. „Ég er ekki að bakka út úr minni ákvörðun um framboð. Jafnframt stendur mitt tilboð um að gegna embætti borgarstjóra áfram. Það er mitt að ákveða það og ég treysti mér fyllilega til að gæta alls trúnaðar gagnvart Reykjavíkurlistanum og því sem hann stendur fyrir og gagn- vart því fólki sem hann kaus,“ sagði Ingibjörg. Sá möguleiki hefur verið nefnd- ur að Ingibjörg Sólrún taki sér leyfi frá störfum borgarstjóra og Helga Jónsdóttir borgarritari leysi hana af. Borgarritari er staðgengill borg- arstjóra samkvæmt ráðningar- samningi og samþykktum borgar- innar. „Það leysir engan vanda,“ sagði Alfreð Þorsteinsson. Hugmyndin hefur samkvæmt heimildum Fréttablaðsins ekki ver- ið rædd við Helgu sjálfa, enda næsta víst að hún sé afhuga henni. Hálfur annar áratugur er síðan Helga hætti afskiptum af pólitík og hefur verið embættismaður síðan. Vinstri grænir eru enn á þeirri skoðun að ekki fari saman þing- framboð Ingibjargar Sólrúnar og áframhaldandi seta hennar í emb- ætti borgarstjóra. „Menn munu þó teygja sig eins langt og hægt er til að leysa málið. En ég held að það væri farsælast fyrir alla að spara stóryrðin,“ sagði Steingrímur Ólafsson, formaður Vinstri grænna í Reykjavík. meira bls. 4 the@frettabladid.is Ingibjörg svari Framsókn í dag Forystumenn Framsóknarflokksins segja að Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir borgarstjóri verði að fara frá, ætli hún í framboð. Þeir vilja svar fyrir jól. Engin ögurstund, segir Ingibjörg Sólrún og hvikar hvergi. NOKKRAR STAÐREYNDIR UM MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,6% SAMKVÆMT FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í OKTÓBER 2002. Fr é tt a b la ð ið Meðallestur 25 til 49 ára samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup frá október 2002 29% D V 80.000 eintök 70% fólks les blaðið Hvaða blöð lesa 25 til 49 ára íbúar á höfuð- borgarsvæðinu á mánudögum? 73% Gleðileg jól! JÓLABALL Það er gleði víða í dag og óþreyju er farið að gæta hjá smáfólkinu. Það er kjörið að stytta sér biðina með jólasveinunum.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.