Fréttablaðið - 23.12.2002, Side 14

Fréttablaðið - 23.12.2002, Side 14
14 23. desember 2002 MÁNUDAGUR Njóttu þess að vera til um leið og þú hugar að heilsunni MANNLÍFIÐ BLÓMSTRAR Þorláksmessan er einn þeirra daga á árinu þegar Íslendingar safnast saman í miðbæjar- kjarna bæja og borga til að sýna sig og sjá aðra. Það liggur skötulykt í loftinu. Það sést til nokkurra á hlaupum, kófsveittra að redda síðustu jólagjöfunum. Miðbæir íslenskra þéttbýla fyllast af fólki af öllum stærðum og gerðum. Skötulykt undanfari friðar Messa heilags Þorláks er núgengin í garð enn eitt árið. Eins og aðra daga ársins er það misjafnt hvað fólk tekur sér fyr- ir hendur. Á meðan hluti þjóðar- innar er á þönum að kaupa síð- ustu jólagjafirnar, þrífa heimilið eða stunda annan nauðsynlegan jólaundirbúning tekur annar hluti því rólega, röltir um og upplifir mannlífið í ljósaskiptun- um, sötrar kaffibolla eða öl á kaffi- eða öldurhúsum, slappar af og safnar kröftum fyrir jóla- hátíðina. Þá halda sumir í þá hefð að snæða kæsta skötu á meðan hinir geifla sig og gretta yfir fer- legum fnyknum sem leggur af fiskinum. Það er hins vegar sama hvað fólk tekur sér fyrir hendur. Þessi dagur skipar sérstakan sess hjá landsmönnum og -konum. Jóla- undirbúningurinn er að renna sitt skeið og friðhelgi jólanna tekur við af stressinu. Tónlistar- fólk stendur á götum úti og spil- ar og kyrjar jólalög. Sumir eiga sér fastar hefðir á meðan aðrir spila þetta af fingrum fram. ■ Þótt enn örli á kaupstaðarstemningunni gömlu í miðbæ Reykjavíkur á Þorláksmessu hefur ýmislegt breyst í áranna rás. Skartgripaverslanir halda þó enn sínum hlut. Stemningin ýtir undir eyðslugleðina Þorláksmessa er síðasti eigin-legi verslunardagurinn fyrir jól. Þá streyma allir sem vettlingi geta valdið í bæinn til að drekka í sig síðustu dreggjar aðventu- stemningarinnar. Þetta er sá dag- ur þegar miðbærinn réttir hlut sinn gagnvart verslunarmiðstöðv- unum og sjaldan er fjörlegra um að litast í hjarta borgarinnar en einmitt á Þorláksmessukvöld. En þetta er einnig sá dagur þegar miðaldra heimilisfeður í hund- ruðavís vakna af værum blundi og uppgötva að jólin eru rétt handan við hornið. Auðvitað eru fleiri sem eru á síðustu stundu og þurfa að gera öll jólainnkaupin á Þor- láksmessu en einhvern veginn hefur sú saga orðið lífseig að karl- menn á miðjum aldri séu hér í meirihluta. Það er engum blöðum um það að fletta að Þorláksmessa er ein- hver stærsti söludagur hjá gull- smiðum landsins og hefur svo verið um árabil. Þó það heyrist einnig klingja í silfri hjá öðrum kaupmönnum þennan dag virðist svo vera sem stór hluti verslunar- innar þennan dag komi í hlut skartgripasala. „Meirihluti þeirra sem kaupa skartgripi eru karl- menn og þeir fara gjarnan á kreik á Þorláksmessu,“ segir Þorbergur Halldórsson, gullsmiður hjá Gull- höllinni. „Það virðist vera partur af jólastemningunni hjá þeim að laumast frá konunni til að kaupa handa henni jólagjöf og fá sér svo einn og einn öl í leiðinni.“ Þótt enn eimi eftir af kaup- staðarstemningunni gömlu viður- kennir Þorbergur að ýmislegt hafi tekið breytingum í áranna rás. „Þetta hefur breyst mikið til batnaðar og er nú mun yfirveg- aðra og eðlilegra. Þegar ég var enn að læra voru verslanir fullar út úr dyrum á Þorláksmessu og góðglaðir karlmenn létu pelana ganga á milli sín.“ Þorbergur minnist þó þessa tíma með dálitl- um söknuði. „Þetta var auðvitað oft mjög skemmtilegt, bæði fyrir kúnnana og okkur hin. Það hljóp stundum mikið kapp í menn og þeir tóku að auka til muna upp- hæðina sem upphaflega stóð til að versla fyrir. Það var líka einn mjög skemmtilegur hópur manna á miðjum aldri sem fór alltaf að skemmta sér á Þorláksmessu og kom svo til okkar á aðfangadag til að kaupa gjöf handa eiginkon- unni. Þeir voru þá stundum búnir að panta hluti fyrir fram eða gengu beint að því sem vantaði í settið hjá konunni. Þeir treystu á okkur til að hjálpa þeim að velja og þá var vissara að vera með það á hreinu hvað væri búið að kaupa áður.“ Að sögn Þorbergs fór það oft svo að hann og samstarfsfólk- ið komust ekki heim á leið fyrr en um það leyti sem klukkurnar hringdu inn jólin. ■ Kaupi allar jólagjafirnar Ég hef enga sérstaka hefð áþví hvað ég geri á Þorláks- messu. Reyni líka að forðast slíkt,“ svarar Stefán Karl Stef- ánsson leikari aðspurður um hvernig hann eyði þessum degi kæstrar skötu og síðustu-mín- útu jólagjafareddinga. „Ég borða til dæmis ekki skötu. Reyndi það eitt sinn þegar ég var lítill og lágur í loftinu en heillaðist ekki. Lyktin af þessu er svo viðbjóðsleg, eins og ein- hver sé búinn að míga duglega yfir þetta. Þyrfti að fá einhvern til að kenna mér að borða þetta.“ Það stefndi í að Stefán þyrfti að vinna á Þorláksmessu en hann fékk svo óvænt frí. Þess vegna ætlar hann að gera sem minnst á Þorláksmessu fyrir utan það að versla, slappa af, fá sér jólakaffið á Súfistanum og upplifa mannlífið. „Ég á ekki stóra fjölskyldu þannig að ég leyfi mér að kaupa jólagjafirnar á Þorláki. Mér finnst gaman að taka þátt í geðveikinni sem fylg- ir þessum degi. Þetta jafnast á við að vera á hernumdu svæði,“ útskýrir Stefán og segist halda sig við miðbæinn. „Stemningin þar verður svo meyr og skemmtileg þegar líða tekur á kvöldið.“ ■ ÞORBERGUR HALLDÓRSSON GULLSMIÐUR „Það ríkir allt annað andrúmsloft í miðbænum á Þorláksmessu. Stemningin er öll miklu léttari og fyrir vikið kaupir fólk líka meira.“ STEFÁN KARL STEFÁNSSON Fékk óvænt frí á Þorláksmessu og ætlar að nota daginn til að slappa af. Handmáluð, munnblásin glös www.konunglegt.is s:561 3478 og 891 7657 FR ÉT TA B LA Ð IÐ /I N G O FR ÉT TA B LA Ð IÐ /I N G O

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.