Fréttablaðið - 23.12.2002, Síða 18

Fréttablaðið - 23.12.2002, Síða 18
UPPÁKOMUR Boðið er upp á fjölbreyttan varning á jólamarkaði á Lækjartorgi. Einnig verður boðið upp á ýmis skemmtiatriði svo sem Eyjólf Kristjánsson, Hörð Torfason, KK, Valgeir Guðjónsson, Vinabandið, Santiago og fleira. PREDIKUN 20.00 Biskup Íslands, Karl Sigurbjörns- son, predikar á Lækjartorgi. Einnig munu konur úr Léttsveit Reykjavíkur syngja jólasálma. TÓNLEIKAR 19.30 Tenórarnir þrír verða með tón- leika á svölum Kaffi Sólon á horni Bankastrætis og Ingólfsstrætis. Tenórarnir þrír eru Jóhann Friðgeir Valdimarsson, Snorri Wium og Þorgeir Andrésson. Með þeim á pianó mun leika Steinunn Birna Ragnarsdóttir. 21.00 KK spilar á Gauki á Stöng. 20.30 Árlegir Þorláksmessutónleikar Bubba Morthens verða á Hótel Borg. Rósa Guðmundsdóttir sér um upphitun. Árlegir Þorláksmessutónleikar Ullarhatt- anna verða á Sportkaffi. Sveitina skipa þeir Eyjólfur Kristjánsson, Stefán Hilmarsson og fleiri. Jagúar spilar á Nasa. 23.30 Fríkirkjan í Reykjavík efnir til mið- næturmessu. Þar munu Páll Ósk- ar Hjálmtýsson söngvari og Monika Abendroth hörpuleikari flytja íslensk jólalög og jólasálma við athöfnina. Anna Sigríður Helgadóttir söngkona mun flytja „Ó, helga nótt“. Prestur er séra Hjörtur Magni Jóhannsson. Um miðbik athafnar verður slökkt á öllum rafmagnsljósum í kirkjunni og kirkjugestir bera lifandi kerta- ljós út í jólanóttina. SÝNINGAR Birgir Rafn Friðriksson heldur sýning- una Án samhengis- allt að klámi í Café Presto Hlíðasmára 15, Kópavogi. Birgir sýnir 34 þurrpastelmyndir unnar á árinu 2001. Sýningin stendur út janúar 2003 og er opin á opnunartíma Café Presto, 10-23 virka daga og 12-18 um helgar. Myndlistarsýning Bryndísar Brynjars- dóttur, Elsu Soffíu Jónsdóttur, Hilmars Bjarnasonar og Þórdísar Þorleiksdótt- ur stendur nú yfir í Bankastræti 5 (áður Íslandsbanki). Sýningin er opin mánu- daga-þriðjudaga kl. 13-18 og stendur til 23. desember. Ingvar Þorvaldsson heldur sýningu á olíumálverkum á Kaffi Mílanó, Faxafeni 11. Sýningin stendur út desember. Listakonan Vera Sörensen heldur sýn- inguna „Töfrandi landslag“ í Gallerý Veru að Laugavegi 100. Sýningin er opin frá 11 til 18 og stendur út desember. Sýning Kristjáns Jónssonar myndlistar- manns stendur yfir í galleríi Sal á Hverf- isgötu 39. Þar sýnir Kristján, sem nam grafík og málaralist í Barcelona, um tutt- ugu málverk sem ýmist eru unnin með blandaðri tækni eða olíulitum. Sýningin er opin daglega frá kl. 17 til 19, Ingólfur Júlíusson ljósmyndari stendur fyrir sýningunni Grænland - fjarri, svo nærri í Reykjavíkurakademíunni, 4. hæð, Sýningin er opin virka daga frá 9- 17 og stendur til 31. janúar. Sýning á útsaumuðum frummyndum Elsu E. Guðjónsson úr bók hennar Jólasveinarnir 13 stendur yfir í Bóka- safni Kópavogs. Sýningin er opin á opn- unartíma safnsins og lýkur 6. janúar. Guðjón Ketilsson sýnir á myndvegg skartgripaverslunarinnar Mariellu á Skólavörðustíg 12. Sýningin stendur til 5. janúar. Í hers höndum er yfirskrift á sýningu sem stendur yfir í Borgarskjalasafni Reykjavíkur, í Grófarhúsi, Tryggvagötu 15, 6. hæð. Sýningin er opin alla daga klukkan 12-17 og stendur til 2. febrúar. Sýningin Milli goðsagnar og veruleika er í Listasafni Reykjavíkur. Sýningin kemur frá Ríkislistasafni Jórdaníu í Amman og er ætlað að varpa ljósi á heim araba. Hrafnkell Birgisson hönnuður heldur sýningu á verkum sínum í Kaffitári, Bankastræti 8. Sýningin er opin frá 7.30 til 18.00 og stendur til 10. janúar. Magnús Guðjónsson og Gunnar Geir sýna í húsi Gráa kattarins, Hafnargötu 18 í Keflavík. Magnús sýnir verk sem unnin eru í grjót og smíðajárn. Gunnar Geir sýnir málverk, teikningar og lág- myndir frá ýmsum tímabilum. Sýningin stendur út desember og verður opin frá kl. 14 til 18 alla daga nema sunnudaga. Einar Hákonarson og Óli G. Jóhanns- son sýna verk sín í Húsi málaranna við Eiðistorg. Í nýjum sýningarsal í Húsi mál- aranna sýna Bragi Ásgeirsson, Einar Þorláksson, Guðmundur Ármann, Jó- hanna Bogadóttir og Kjartan Guðjóns- son. Sýningin stendur til 23. desember og er opin frá 14 til 18 fimmtudaga til sunnudaga. Myndlistarmennirnir Bryndís Brynjars- dóttir, Elsa Soffía Jónsdóttir, Hilmar Bjarnason og Þórdís Þorleiksdóttir sýna málverk, þrívíð form og hljóðverk í Bankastræti 5 (fyrrum húsnæði Íslands- banka). Sýningin stendur til 23. desem- ber og er opin mánudaga - laugardaga kl. 13-18. Sýning á málverkum Aðalheiðar Val- geirsdóttur stendur yfir í Hallgríms- kirkju í Reykjavík. Á sýningunni eru mál- verk unnin á þessu ári sérstaklega fyrir sýninguna í kirkjunni. Viðfangsefnið er Lífið, tíminn og eilífðin.Sýningin í Hall- grímskirkju er haldin í boði Listvinafé- lags Hallgrímskirkju og stendur til loka febrúarmánaðar. Sýningin Heimkoman eða: heimurinn samkvæmt ART stendur yfir í Listasafni Reykjavíkur - Kjarvalsstöðum. Sýningin samanstendur af málverkum og ljós- myndum danska myndlistarmannsins Martin Bigum frá árunum 1997-2002. Aðalheiður S. Eysteinsdóttir sýnir smá- myndir og skúlptúra sem unnin eru í anda jólanna í Kompunni, Kaupvangs- stræti 23, Listagili á Akureyri. Sýningin stendur til 23. desember og er opin alla daga frá klukkan 14 til 18. Í Hafnarborg stendur yfir sýningin “Sambönd Íslands“, alþjóðleg sýning með þátttöku erlendra listamanna sem hafa heimsótt Ísland og íslenskra lista- manna búsettra erlendis. Sýningin stendur til 22. febrúar. Sýning á nokkrum verkum Guðmundar Hannessonar ljósmyndara stendur yfir í Gallerí Fold. Sýningin nefnist Reykja- víkurminningar en myndirnar tók Guð- mundur um miðja síðustu öld í Reykja- vík. Inga Svala Þórsdóttir sýnir Borg í Lista- safni Reykjavíkur. Inga Svala fjallar um og endurvekur draumsýnina um hið full- komna samfélag. Hún leggur fram hug- mynd að milljón manna borgarskipulagi í Borgarfirði og á norðanverðu Snæfells- nesi. Hrafnhildur Arnardóttir sýnir „Shrine of my Vanity“ sem útleggst á íslensku „Helgidómur hégóma míns“ í Gallerí Hlemmi. Leiðarstef sýningarinnar er hið svokallaða IVD (intensive vanity dis- order) eða hégómaröskun en það heil- kenni verður æ algengara meðal þeirra sem temja sér lífsstíl Vesturlandabúa. Sýningin Þetta vilja börnin sjá er haldin í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Sýndar verða myndskreytingar úr nýút- komnum barnabókum. Sýningunni lýkur 6. janúar 2003. Lína Rut Wilberg sýnir olíumálverk á Café Presto, Hlíðarsmára 15, Kópavogi. Opið 10-23 virka daga og 12-18 um helgar. Hildur Margrétardóttir myndlistarkona sýnir nokkur óhlutbundin málverk á Mokka-kaffi. Sýningin stendur til 15. jan- úar. Kyrr birta - heilög birta er heitið á sýn- ingu sem stendur yfir í Listasafni Kópa- vogs. Sýningarstjóri er Guðbergur Bergs- son. Stærsta sýning á íslenskri samtímalist stendur yfir í Listasafni Íslands. Sýnd eru verk eftir um 50 listamenn sem fæddir eru eftir 1950 og spannar sýning- in árin 1980-2000. Veiðimenn í útnorðri er yfirskrift á sýn- ingu sem Edward Fuglö heldur í Nor- ræna húsinu. Jóhanna Ólafsdóttir og Spiros Misokil- is sýna ljósmyndir sínar á Kaffi Mokka. Sýningin heitir „Orbital Reflections“. Allir eru velkomnir. 18 23. desember 2002 MÁNUDAGUR MÁNUDAGUR 23. DESEMBER hvað? hvar? hvenær? AÐFANGADAGUR 24. DESEMBER hvað? hvar? hvenær? Jagúar með tónleika á Nasa í kvöld: Hitað upp fyrir Londonferð TÓNLEIKAR Það eru þrennir tón- leikar á döfinni hjá Jagúar næstu daga. Í kvöld verður hljómsveitin á Nasa, sama dag og Bubbi Morthens heldur sína frægu Þorláksmessutónleika. „Þetta er ekki stríðsyfirlýsing gegn Bubba,“ segir básúnuleik- arinn Samúel J. Samúelsson en sveitin er í óðaönn að vinna nýja plötu. „Á henni verður meira sungið, það er mikil þróun í gangi.“ Aðgangur á Þorláksmessu- tónleikanna á Nasa er ókeypis. „Þetta verða rólegir tónleikar,“ útskýrir Samúel en tónleikar Jagúar hafa ekki verið þekktir fyrir rólegheit. „Þegar menn komast í gírinn þá er þetta róleg og þægileg tónlist.“ Árið 2002 var nokkuð anna- samt hjá Jagúar, hljómleikaferð um Noreg snemma á árinu og í sumar léku þeir fyrir áhuga- sama í Hollandi og Belgíu. „Í febrúar á næsta ári förum við til London að spila á mjög fræg- um klúbb sem heitir Jazz Café.“ Eigandi staðarins, Adrian Gib- son, er víst nokkuð hrifinn af bandinu. „Hann er plötusnúður og heyrði plötuna okkar og vildi fá okkur.“ Tónleikarnir hefjast kl. 22. ■ JAGÚAR Jagúar með þrenna tónleika yfir hátíð- arnar. TÓNLIST Á Þorláksmessu verða tenórarnir þrír að venju með tónleika á svölum Sólon Kaffis á horni Bankastrætis og Ing- ólfsstrætis. „Við verðum með sitt lítið af hverju, andlegt og veraldlegt í bland,“ segir Þor- geir Andrésson tenórsöngvari. „Við syngjum þarna sóló hver um sig og svo allir saman, til dæmis La Donna Mobile og Ó, helga nótt. Svo vonum við Reykvíkingar nær og fjær syngi með okkur Heims um ból í lokin. Steinunn Birna Ragn- arsdóttir spilar undir á píanó og við ætlum að syngja svo undir tekur í miðbænum.“ Tenórarnir eru þeir Jóhann Friðgeir Valdimarsson, Snorri Wium og Þorgeir Andrésson. Tónleikarnir eru í boðið Reykjavíkurborgar og hefjast á slaginu 19.30. ■ JÓHANN FRIÐGEIR VALDIMARSSON Einn tenóranna sem syngja í Banka- strætinu á Þorláksmessu. Hinir eru Þor- geir Andrésson og Snorri Wium. Þrír tenórar í Banka- strætinu: Syngja svo undir tekur í miðbænum Handmáluð, munnblásin glös www.konunglegt.is s:561 3478 og 891 7657 Stórútsala Fatamarkaður Barnaföt - dömuföt - herraföt Skeifunni 8

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.