Fréttablaðið - 23.12.2002, Qupperneq 30
30 23. desember 2002 MÁNUDAGUR
VIKUNESTI
Njótið jólanna og andið léttar.
Sleppið fram af ykkur beislinu í
mat og gleði.
Gefið ykkur tíma. Lesið.
Íhugið eigin stöðu og ykkar nán-
ustu. Með velvilja.
Farið helst
ekki á fætur
nema til að
mæta í jóla-
boðin.
Og elskið ástina ykkar.
Fjölskyldan er aðaláhugamálið
Jónína Bjartmarz alþingismaður er fimmtíu ára í dag. Fjölskyldan er
hennar helsta áhugamál og hún segir það eilíft verkefni að skapa sam-
verustundir fyrir hana.
50 ÁRA Jónína Bjartmarz alþingis-
maður er fimmtug í dag og lætur
jólaundirbúninginn ekki koma í
veg fyrir að fjölskyldan komi
saman. „Ég geri mér og mínum
nánustu alltaf dagamun á afmæl-
isdaginn og er vön að bjóða ætt-
ingjum mínum í kaffi þegar líða
fer á kvöldið. Ég held mig við
þetta í ár en þar sem ég er að
verða fimmtug ætla ég einnig að
halda upp á afmælið í stærri hópi
á milli jóla og nýárs.“
Jónína er gift Pétri Þór Sig-
urðssyni og þau eiga tvo syni;
Erni Skorra sem er 13 ára og
Birni Orra sem er 17 ára. Þá búa
tíkin Skoppa og kötturinn Garri
einnig í sátt og samlyndi á heim-
ilinu. Jónína bjó inni í Hverfi
(Bústaðahverfi og Smáíbúða-
hverfi) frá fimm ára aldri og
gekk fyrst í Breiðagerðisskóla,
þá Réttarholtsskóla og fór að
honum loknum í ár sem skipti-
nemi til Bandaríkjanna. Hún lauk
stúdentsprófi frá Kennaraskól-
anum 1974, vann svo í eitt ár og
byrjaði í lögfræði við Háskólann
1975.
Hún telur sig hafa verið nokk-
uð eðlilegan ungling. „Ég veit
ekki hvað foreldrar mínir og
bræður myndu segja en ætli mér
sé ekki óhætt að segja að ég hafi
verið svona meðal erfið.“ Jónína
segir það vera eilíft áhugamál og
viðfangsefni að skapa fjölskyld-
unni tíma til samvista, enda sé
fátt mikilvægara. „Ég hef látið
fjölskyldumál mig mikið varða og
við hjá samtökunum Heimili og
skóli höfum meðal annars einmitt
verið að vekja athygli foreldra á
hversu þýðingarmikið það sé að
fjölskyldan eyði tíma saman. All-
ar samverustundir hafa gildi en
það er ekki síst núna um jólin sem
þær vega þungt.“ Fyrir utan fjöl-
skyldumálin hefur Jónína mikinn
áhuga á ferðalögum og útivist og
gengur um fjöll og firnindi þegar
tækifæri gefast. „Það er auðvitað
lítið um frí og alltaf nóg að starfa
og ég held að það sé óhætt að
minnast á það í sambandi við um-
ræður um hvort borgarstjóri geti
einnig setið á þingi að þing-
mennska er í það minnsta fullt
starf. Það eru bara 24 tímar í sól-
arhringnum hjá okkur öllum og
ég hef enga trú á því að til séu of-
urmenni sem geti komist yfir
þetta allt með sóma.“
thorarinn@frettabladid.is
FÓLK Í FRÉTTUM
AFMÆLI
TROMMARI Haraldi Frey Gísla-
syni, betur þekktum sem Halla í
Botnleðju, hefur tekist að sam-
eina hinar, að því er virðist,
ósamræmanlegu iðjur að
tromma í rokkhljómsveit og
vinna á leikskóla.
Í átta ár hefur Halli barið
húðirnar með félögum sínum
Raggi og Heiðari í Botnleðju.
Strákarnir hafa fengið góðar
viðtökur, jafnt hér heima sem
erlendis. Halli segir að þeir ætli
sér að gefa út plötu á næsta ári
auk þess að standa fyrir ýmsum
uppákomum óvæntum. Þá gaf
Halli út sólóplötu fyrir síðustu
jól, barnaplötuna Hallelúja. Að-
spurður segir Halli að ekki sé á
döfinni að gefa aðra út. „Þetta
var bara eitthvað sem ég ákvað
þar sem ég átti orðið nokkuð af
lögum. Það komu 1.300 eintök
sem eru uppseld núna og ég ætla
að láta þar við sitja,“ segir Halli
og tekur undir að það verði gott
að eiga plötuna til að horfa til
baka í ellinni.
Barnaplatan passar ágætlega
við vinnu Halla. Hann hefur
undanfarin fimm ár unnið á leik-
skóla og segir það eiga mjög vel
við sig. Hann er ómenntaður til
þeirra starfa en segir: „Ég gæti
vel hugsað mér að læra til leik-
skólakennara.“
Halli, sem er 28 ára gamall,
býr með Dögg Hugosdóttur og
saman eiga þau Gabríel Gísla.
Fjölskyldan ætlar að eyða jólun-
um út af fyrir sig heima í Hafn-
arfirðinum. „Við vorum fyrst til
skiptis hjá foreldrum okkar þeg-
ar við vorum barnlaus. En eftir
að Gabríel Gísli fæddist ákváð-
um við að vera út af fyrir okkur
og líkar það mjög vel,“ útskýrir
Halli.
Hann er búinn að kaupa allar
jólagjafirnar fyrir jólin, sem
hann segir vera eitthvað það erf-
iðasta sem hann gerir, og ætlar
að nýta Þorláksmessuna til þess
að slappa af með fjölskyldunni
við skrif jólakorta og skreytingu
heimilisins, auk þess að láta sig
hlakka til jólanna. ■
Halli trommari í Botnleðju er búinn
að kaupa allar gjafir og ætlar að
slappa af með fjölskyldunni í dag.
Presónan
Erfitt að kaupa jólagjafir
JÓNÍNA BJARTMARZ
„Ég hef alltaf notið þess að foreldrar mínir stóðu vörð um afmælisdaginn og héldu upp
á hann með vinum og fjölskyldu. Ég hélt þessu svo áfram eftir að ég stofnaði eigið
heimili. Svo á bróðurdóttir mín, Brynhildur Ásta, líka afmæli þann 23. þannig að það er
nóg að gera hjá fjölskyldunni á Þorláksmessu.“
Skötuhjúin Jón Baldvin Hanni-balsson og Kolbrún Bergþórs-
dóttir tröllríða bókametsölulistum
þessa dagana með Tilhugalífinu
sínu. Bókin þykir skemmtileg af-
lestrar enda æði dramatísk á köfl-
um. Heimildargildi hennar þykir
hins vegar ekki neitt sérstakt, í það
minnsta ekki hvað íslenska stjórn-
málasögu varðar. Hún þykir öllu
betri heimild um það hvað gerist í
kollinum á Jóni og hvernig hann
man hlutina. Bróðir hans, Ólafur
Hannibalsson, ræddi bókina í Silfri
Egils í gær og byrjaði á að viður-
kenna að hann væri ekki búinn að
berjast í gegnum hana alla en gat
þess að hann hefði flett upp á nafni
sínu í nafnaskránni. Hann hafi
komið þar fyrir 12 sinnum, ásamt
jafn mörgum staðreyndavillum.
Hann taldi þetta þó ekki koma neitt
sérstaklega að sök en bræðurnir
muna hlutina í það minnsta ekki
eins.
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
Að gefnu tilefni skal tekið fram að Sam-
fylkingin hefur ekki skipt um nafn og heit-
ir ekki Samhjálpin.
Leiðrétting
HALLI
Heldur jólin með Dögg sambýliskonu sinni
og syni þeirra, Gabríel Gísla.
JARÐARFARIR
10.30 Kristbjörg Halldórsdóttir, Rauða-
gerði 20, verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju.
ANDLÁT
Hörður Birgir Vigfússon, Bogahlíð 14,
lést 20. desember.
Aðalheiður Þóroddsdóttir lést á Hjúkr-
unarheimilinu Eir 20. desember.
Valgerður Þorsteinsdóttir, áður til
heimilis á Oddagötu 4, er látin.
Sveinn Egilsson, Heiðargerði 59, lést
18. desember.
Regína Stefánsdóttir lést 19. desember.
Auður Brynþóra Böðvarsdóttir, Eskihlíð
12, lést 19. desember.
LÓÐRÉTT: 1 ryk, 2 kvenmannsnafn, 3 fyndin, 4 pakk, 5 hrópa, 6 sáldra, 7 múr-
steinar, fjasir, 11 önuga, 14 lykta, 16 kyrrð, 18 blautu, 20 fjárleit, 21 krókum, 23
töfrasproti, 26 andvarp, 28 hremma, 30 madressa, 31 tröll, 33 runa.
LÁRÉTT:
1 góðgæti,
4 efstur,
9 skömmustulegi,
10 harmi,
12 urg,
13 mergð,
15 huldumanns,
17 eirir,
19 fugl,
20 vínblanda,
22 manir,
24 armur,
25 tré,
27 nöldur,
29 sprengiefni,
32 kisu,
34 skepnu,
35 aðhlynning,
36 fræga,
37 trjóna.
Lárétt: 1 vott, 4 flóran, 9 örþjáða, 10 næða, 12 átak, 13 drunur, 15 rask, 17 traf,
19 sei, 20 slást, 22 eftir, 24 eir, 25 aula, 27 knár, 29 naggur, 32 tjón, 34 ræmu,
35 tómatar, 36 raular, 37 nagg. Lóðrétt: 1 vönd, 2 töðu, 3 trants, 4 fjára, 5 lát,
6 óðar, 7 rakast, 8 naskir, 11 ærslin, 14 urta, 16 seigum, 18 fela, 20 sekur, 21
áráttu, 23 fagran, 26 Unnar, 28 rjól, 30 gæra, 31 rugg, 33 óma.
KROSSGÁTA
Íslenska járnblendifélaginu. Alcoa er stór
eigandi í Elkem sem á járnblendið.
Svíþjóð.
Davíð Oddsson.
1.
2.
3.
Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
Hvers vegna hringdi ljóskan í
féló?
Hún vildi fá að vita hvernig ætti
að elda úttektarmiðana.