Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.12.2002, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 23.12.2002, Qupperneq 32
Íslenska þjóðin vinnur myrkrannaá milli. Það helgaðist í byrjun af því að landnámsmenn voru svo mikl- ir umhverfisverndarsinnar og smekkmenn í hvívetna að þeim kom ekki til hugar að reisa ljót raforku- ver í fagurri náttúru landsins þar sem lagðprúðar sauðkindur reikuðu um og kjömsuðu á birkilaufi og ilm- kvistum. Ennfremur voru engin tankskip í hriplekum víkingaskipa- flotanum svo að óhægt var um vik að flytja inn bensín og olíur. Því var brugðið á það ráð að liggja í rúminu og hafa það gott meðan dimmt var - en um leið og birti spruttu allir á fætur og unnu kappsamlega að því að auka hagvöxtinn fram í myrkur. Í LJÓSASKIPTUNUM tók tóvinn- an við því að flestir gátu spunnið og prjónað og jafnvel saumað án þess að sjá handa skil. Að vísu bar fatnað- urinn þess nokkur merki að vera framleiddur í þreifandi myrkri en áður en þjóðin eignaðist búðarglugga til að spegla sig í þótti smart við að líta út eins og ullarbingur. VEGNA ÞESS AÐ ekki var les- bjart á kvöldvökum við tóvinnuna brugðu menn á það ráð að ríma frá- sagnir og ævintýri til að festa sér betur í minni frásagnir af hetjudáð- um forfeðranna. Þessi minnisleikur kallaðist „rímnakveðskapur“ og er hliðstæður við „rapp“ nútímans en það er tilorðið vegna þess að ung- menni hafa týnt niður lestrarkunn- áttu sinni eða aldrei nennt að útvega sér hana og verða því að nota rím til upprifjunar. ÞRÁTT FYRIR rafljós og tækni- væðingu hefur íslenska þjóðin haldið þeim forna sið að vinna myrkranna á milli. Sumir vinna ennþá lengur og á vetrin krefst slíkt háttalag þess að vinnufíklum sé útvegað rafmagn og ljósmeti með tilheyrandi kostnaði og skuggalegum afleiðingum fyrir um- hverfið. Það er ástæða til að taka þetta mál á dagskrá einmitt nú að nýafstöðunum vetrarsólstöðum því að nú tekur vinnudagurinn að lengj- ast um tímaeininguna hænufet á dag. Það er lágmarkskrafa að bannað verði að vinna lengri vinnudag en myrkranna á milli - og helst að fólki verði gert að halda sig sem mest í rúminu í skammdeginu til að spara rafmagn. Um þetta ættu ASÍ og þeir sem halda að þeir stjórni landinu að gera þjóðarsátt hið bráðasta. Gleði- leg jól!                      !    " SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Lokað Aðfangadag, opið 9-12 Gamlársdag Makt myrkranna Bakþankar Þráins Bertelssonar

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.