Fréttablaðið - 28.12.2002, Blaðsíða 13
Þann 20. desember sl. hófust viðskipti með hlutabréf Kaupþings í Kauphöllinni í Stokkhólmi. Söguleg þáttaskil
í rekstri félagsins eru orðin að veruleika og um leið markar skráningin tímamót í sókn íslenskra fyrirtækja á
erlenda markaði. Kaupþing er eina íslenska félagið sem skráð er samhliða á íslenskum og erlendum
verðbréfamarkaði og í samþykki sænska fjármálaeftirlitsins felst viðurkenning á íslenska verðbréfamarkaðnum
og þeim fyrirtækjum sem þar eru skráð.
Eftir mikið uppbyggingarstarf í tuttugu ár hefur Kaupþing fært út kvíarnar og gert Norðurlöndin að heimamarkaði
sínum. Eftir kaupin á verðbréfafyrirtækinu Aragon og síðan sænska bankanum JP Nordiska starfar Kaupþing
nú sem norrænn fjárfestingarbanki. Auk reksturs í Lúxemborg, Genf og New York er félagið með starfsemi í
fimm borgum á Norðurlöndum: Reykjavík, Kaupmannahöfn, Helsinki, Þórshöfn og Stokkhólmi og stefnan er
óhikað sett á frekari landvinninga á þeim vettvangi.
Markaðsvirði félaga á sænska hlutabréfamarkaðnum er um 40% af heildarvirði félaga á norrænum markaði.
Samanlögð verðmæti félaga á íslenska hlutabréfamarkaðnum eru um 1,4% af norræna markaðnum og Kaupþing
tekur sér nú stöðu á meðal tæplega 300 fyrirtækja sem þar eru skráð. Eftir innkomu Kaupþings á sænskan
markað er um fjórðungur félagsins í erlendu eignarhaldi, starfsfólki hefur fjölgað um ríflega tvö hundruð og
gert er ráð fyrir að um 70% af tekjum Kaupþings komi frá starfseminni erlendis. Markaðsvirði félagsins þann
18. desember sl. var um 27,3 milljarðar íslenskra króna og samkvæmt níu mánaða uppgjöri er eigið fé tæplega
18 milljarðar og heildareignir 218 milljarðar íslenskra króna. Með kaupum á JP Nordiska fjölgar hluthöfum
Kaupþings um rúmlega sex þúsund og eru þeir nú um sautján þúsund. Heildarfjöldi starfsmanna er um 560
og af þeim eru yfir 300 starfandi á erlendum vettvangi.
Hin trausta undirstaða útrásar Kaupþings felst í samhentum hópi starfsfólks og einstöku samstarfi við stóran hóp
íslenskra viðskiptamanna. Mikil þekking og reynsla hefur safnast upp á undanförnum árum og í krafti hennar
verður haldið áfram á sömu braut með hagsmuni hluthafa og viðskiptavina að leiðarljósi.
Skráning Kaupþings í Kauphöllinni í Stokkhólmi