Fréttablaðið - 28.12.2002, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 28.12.2002, Blaðsíða 22
22 28. desember 2002 LAUGARDAGUR LIKE MIKE kl. 12, 2 og 4 JAMES BONDkl. 2, 5, 6.30, 8, 10 og 11.30 Sýnd kl. 12, 2, 4, 6, 8, 10 og 11.30 Sýnd í lúxus kl. 3, 7 og 11kl. 1.50 og 3.55SANTA CLAUSE 2 HARRY POTTER kl. 8HARRY POTTER m/ísl. tali kl. 2 og 5 Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10 Sýnd kl. 2, 4 og 6 m/ísl. tali GULL PLÁNETAN kl. 2, 4, 6 og 8 VIT498 LILO OG STITCH/ísl.tal kl. 2 VIT 429 SANTA CLAUS 1.40, 3.40, 5.50, 8, 10.10 VIT485GOSTSHIP kl. 10.10 VIT 487 kl. 6.20, 8.10 og10.10HLEMMUR kl. 5.55, 8 og 10.05HAFIÐ 1.45, 4, 8 og 10.20EINRÆÐISHERRANN Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.10 VIT 494 Sýnd í lúxus kl. 6, 8 og 10.10 VIT 495 TÓNLIST Útgefendur fagna nú besta ári í plötusölu frá upphafi. Ellefu titlar náðu gullplötusölu, sem merkir að útgefandinn hafi fengið samþykki Sambands hljómplötu- framleiðanda um að yfir 5000 ein- tök teljist löglega seld. Gullplöturnar í ár eru „Allt sem ég sé“ með Írafári, „Sól að morgni“ með Bubba, „Riggarobb“ með Pöp- um, „Undir Bláhimni: Íslandslög- in“, „Þú skuldar“ með Rottweiler, „Nobody Knows“ með Páli Rósin- kranz, Í svörtum fötum, „Það skán- ar varla úr þessu“ með Ríó Tríó, „Paradís“ með KK, „Á stóra svið- inu“ með Stuðmönnum og „( )“ með Sigur Rós. Írafár og Bubbi fengu svo afhendar platínuplötur fyrir sölu á meira en 10 þúsund eintök- um. Söluhæst var Írafár en rúmlega 15 þúsund eintökum var dreift af lager. Talsmaður Skífunnar segir að í því tilfelli hafi það margborgað sig að bíða með útgáfu og gefa sveitinni tíma til þess að þróa sig. Írafár var stofnuð 1998 og hefur síðan verið ötul við spilamennsku og lagaútgáfu. Það hefur án efa skilað sér í stærri kaupendahópi og mótaðri lagasmíðum. Ævintýri þeirra gæti markað upphaf að auknum metnaði í íslenskri poppút- gáfu. Reglum um gullplötuafhend- ingu hefur verið breytt frá því sem áður þekktist. Áður var beðið fram yfir áramót og sölutölur eftir jóla- skil látnar skera úr um hvaða plöt- ur kæmust í gull. Útgefendur segj- ast búast við að allt að 10% þeirra platna sem fara af lager fyrir jól geti skilað sér aftur. Nýjar reglur gera útgefendum hins vegar kleift að afhenda gull- plötur þegar 5000 eintök eru farin af lager. Miðað við „10% regluna“ er því hugsanlegt að endanlegar sölutölur á titlum Ríó Tríó (sem fór í 5019 eintökum fyrir jól), Í svört- um fötum (5306 eintök), Páls Rósin- kranz (5391 eintök) og Rottweiler- hunda (5457 eintök) verði á endan- um undir gullplötusölu. Talsmaður Sambands hljómplötuútgefenda, Einar Bárðarson, segist þó efast um það þar sem Skífan gefi fáum búðum skilarétt á seldum titlum. Hann segir reglunum hafa verið breytt fyrir tveimur árum til þess að gefa útgefendum kost á að nýta sér þá viðurkenningu sem gull- plötuafhending er. Það hlýtur að teljast gleðiefni að íslensk tónlist renni betur ofan í landann en áður. Þetta er í sam- ræmi við þá þróun sem á sér stað í Skandinavíulöndunum. Þar er sala heimamanna að aukast en sala al- þjóðlegra útgáfna að dragast sam- an. biggi@frettabladid.is ÍRAFÁR Áður þekktist það í íslenska poppgeiranum að sveitir væru stofnaðar í apríl fyrir sumarballmarkaðinn, hnoðaður saman smellur fyrir sumarsafnplötu og stór plata fyrir veturinn. Með afbragðsárangri Írafárs í ár gætu þeir dagar verið á enda. Poppsenan er að fyllast metnaði á ný. Besta plötusöluár frá upphafi Hiphop plötuframleiðandinnMarion „Suge“ Knight, sem stjórnaði Death Row Records, var handtekinn á Þorláksmessu fyrir að brjóta skilorð sitt. Lögreglan í Los Angeles komst að brotum hans eftir að hafa gert húsleit í húsa- kynnum plötufyrirtækisins og á heimili hans. Lögreglan hefur nú greint frá því að húsleitin var gerð til þess að leita nýrra upplýsinga í tveimur óleystum morðmálum sem talið er að Knight tengist. Hann er einnig talinn vera tengdur glæpagengi þar í borg. Lögreglan lagði þó áherslu á að Knight er ekki grunaður um morðin. Leikarinn George Clooney hefurfengið lof fyrir fyrsta leik- stjórnarverkefnið sitt. Kvikmynd- in heitir „Con- fessions of a Dan- gerous Mind“ og er framleidd af fyrirtæki Cloon- eys og leikstjórans Steven Soder- bergh. Myndin er gerð eftir bók Chuck Barris, sem segir frá því í bókinni að hann hafi lifað tvöföldu lífi. Annars vegar sem sjónvarpsþáttaframleiðandi og hins vegar sem launmorðingi fyrir CIA. Engar upplýsingar eru til um vinnu hans fyrir CIA og ef- ast því nokkrir um sannleiksgildi sögunnar. Hvernig sem því líður þykir myndin afar vel heppnuð. Með aðalhlutverk í myndinni fara Drew Barrymore og leikarinn Sam Rockwell, sem líklegast er þekkt- astur fyrir að leika illmennið í „Charlies Angels“. Leikkonan Zsa Zsa Gabor ersögð á góðum batavegi og búist er við því að hún geti yfirgefið sjúkrahúsið á næstu dögum. Hún lendi í bílslysi og meiddist illa á fæti. Gabor er 85 ára gömul og var á tímabili sögð vera við það að gefa upp lífsviljann. Í dag á hún að vera spennt fyrir því að komast aftur heim til sín. Hún er mikil hestakona og getur varla beðið eft- ir því að komast aftur á bak. FRÉTTIR AF FÓLKI Almanak Þjóðvinafélagsins er aðgengilegt upplýsingarit um íslensk málefni. Í almanakinu sjálfu er að finna dagatal með upplýsingum um gang himintungla, messur kirkjuársins, sjávarföll, hnattstöðu Íslands o.fl. Í Árbók Íslands er fróðleikur um árferði, atvinnuvegi, stjórnmál, úrslit Íslandsmóta, náttúruhamfarir, slys, mannalát, verklegar framkvæmdir, vísitölur, verðlag o.s.frv. Höfundar eru Þorsteinn Sæmunds- son og Heimir Þorleifsson. R E P R Ó Í ár náðist nýtt hámark í sölu íslenskrar tónlistar. Aldrei hafa jafn margar plötur farið yfir 2000 eintaka sölu. 11 titlar fengu gullviðurkenningu og fóru tveir í platínu. Hugsanlega verða endanlegar sölutölur sumra gulltitla þó undir gull- plötusölu eftir lokauppgjör. Sýnd kl. 6 og 9.15 VIT 468 Sýnd kl. 2, 4 og 8 m/ísl. tali VIT 493 MIDGE ÓFRÍSK Besta vinkona Barbie, Midge, er ófrísk. Þessi útgáfa af henni kom í hillur dótabúðanna í Bandaríkjunum fyrir jól. Þegar hún er afklædd er hægt að sjá og fjar- lægja lítið barn úr maga hennar. Foreldrar hafa kvartað yfir því að dúkkan sé aðeins of raunveruleg fyrir börnin og því hefur Wal-Mart búðarkeðjan fjarlægt dúkkuna úr hillum sínum. ANDLÁT Bandaríski ljósmyndarinn Herb Ritts lést síðastliðinn fimmtudag. Banameinið var sagt sýking ofan í lungnabólgu. Ritts var einn þekktasti ljósmyndari Bandaríkjanna og var hvað þekkt- astur fyrir að hafa óheftan aðgang að stórstjörnum þar í landi. Ritts hóf ljósmyndaferil sinn á síðari hluta áttunda áratugarins með því að mynda vini sína í skemmtana- bransanum. Hann var svo upp- götvaður árið 1978 þegar hann tók myndir af Jon Voight og Ricky Schroeder þegar þeir léku í mynd- inni The Champ og fékk þær birt- ar í Newsweek-tímaritinu. Á með- al frægari mynda sem Ritts tók voru af Madonnu með Mikka mús eyru og Jack Nicholson í fullum Joker-skrúða um það leyti sem hann lék í Batman. Ritts tók allt frá andlitsmyndum til nektar- mynda, auk þess sem hann leik- stýrði tónlistarmyndböndum. Hann vann meðal annars til verð- launa á MTV-tónlistarverðlaunun- um árið 1991 fyrir myndbönd sem hann leikstýrði fyrir Chris Isaak og Janet Jackson. ■ Herb Ritts allur: Ljósmyndari stjarnanna HERB RITTS Hafði greiðan aðgang að fræga fólkinu.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.