Fréttablaðið - 10.02.2020, Side 62

Fréttablaðið - 10.02.2020, Side 62
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/ SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@ frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is ÞAÐ VAR ÞVÍ ÁHUGA- VERT AÐ GETA ÞARNA BOÐIÐ UPP Á AÐ STYRKJA ÞETTA GÓÐA MÁLEFNI MEÐ GJALDMIÐLI SEM ALLA JAFNA ER EKKI HÆGT AÐ NOTA Í RAUNHEIMINUM. 1 0 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 M Á N U D A G U R18 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð POKAGORMAKERFI S E R TA R E E D S WO R T H A F S L ÁT T U R 40%Frábær dýna frá Serta sem unnin er í samvinnu við American Sleep Foundation. Nú með 40% afslætti. Hentar bæði í hefðbundna botna og stillanlega. 65.400 kr 80 x 200 cm Fullt verð: 109.000 kr. 71.400 kr 90 x 200 cm Fullt verð: 119.000 kr. FAXAFENI 5 Reykjavík 588 8477 DALSBRAUT 1 Akureyri 588 1100 SKEIÐI 1 Ísafirði 456 4566 STILLANLEG RÚM • HEILSURÚM OG -DÝNUR • GAFLAR • SÆNGUR • KODDAR • SVEFNSÓFAR • STÓLAR • SÆNGURFÖT, O.FL. 60%A F S L ÁT T U R A L LT A Ð ÚTSALA VEFVERSLUN www.betrabak.is OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN UNDRI HEILSUINNISKÓR DÚNVÖRUR Í MIKLU ÚRVALI SÆNGURFÖT MIKIÐ ÚRVAL LOKAVIKAN TIME OUT HÆGINDASTÓLAR Hinn ástralski Dan Crone flutti hingað til lands í ágúst síð-astliðnum og hóf störf hjá CCP sem samfélagsstjóri, en íslenski tölvuleikjarisinn framleiðir leikinn EVE Online. „Ég hafði verið virkur spilari í EVE Online í 15 ár fyrir það. Í lok síðasta árs fór ég að átta mig meira og meira á alvarleika stöðunnar í heimalandinu. Þetta var stans- laust í fréttum og yfirtók Facebook, enda f lestir vinir mínir ástralskir og skipti þetta fólkið þar eðlilega miklu máli og tók á það,“ segir Dan. Hann segir erfitt að horfa upp á það erfiða ástand sem gróðureld- arnir hafa skapað. „Það er því miður þannig að við erum vön að fylgjast með náttúru- hamförum víðs vegar um heim í gegnum netið og fjölmiðla, en tengj- um ekki jafn mikið við það því þær eru ekki að bitna beint á okkur. Við verjum okkur fyrir harmleiknum með því að aftengja okkur. Það er sorgleg staðreynd en ég upplifði það sem hluta af mannlegu eðli,“ segir Dan. Ákveðinn lærdómur Dan segir það hafa verið sér ákveð- inn lærdóm að upplifa þetta. „Fyrir mér var þetta að sjálfsögðu öðruvísi. Þetta er allt að gerast í mínu landi og myndir frá átök- unum við eldana kunnuglegri, allt frá götuheitunum og trjátegund- unum yfir í dýrin sem hamfarirnar bitnuðu á.“ Spilarar EVE Online tölvuleiks CCP hafa safnað rúmlega þret- tán milljónum til uppbyggingar- og hjálparstarfs í Ástralíu vegna skógareldanna sem þar hafa geisað. Féð var afhent Rauði krossinum á Íslandi en það mun nýtast Rauða krossinum í Ástralíu sem staðið hefur í ströngu undanfarna mán- uði. Næstu ár munu svo fara í mikið uppbyggingarstarf . Dan segist þó heppinn að því leyti að enginn nákominn honum hafi orðið alvarlega fyrir barðinu á eldunum. „En margar aðrar fjölskyldur hafa ekki verið jafn heppnar. Mig langaði að leggja hönd á plóg og gaf sjálfur til styrktar Rauða krossinum í Ástralíu og WIRES, samtökum sem hjálpa dýrum í neyð í Ástralíu. Fyrst um sinn upplifði ég eins og það væri það eina sem í mínu valdi stæði að gera. Svo byrjuðu hinir einstöku og góðhjörtuðu spilarar EVE að kalla eftir því að CCP myndi aftur standa fyrir PLEX for GOOD.“ PLEX for GOOD átakinu var hleypt af stokkunum árið 2005 vegna náttúruhamfara í Suðaustur- Asíu. Plex er gjaldmiðill sem not- aður er í leiknum, og sér CCP um að skipta gjaldmiðlinum yfir í dollara þegar féð er gefið í leiknum til góð- gerðarmála. Geimskip á fjórar milljónir „Þegar ég upplifði eldmóðinn í þeim leið mér hálf skömmustulega yfir að hafa ekki dottið þetta í hug og látið eins og ég gæti lítið meira gert. Þökk sé þeim var ég minntur á að núna vinn ég hjá fyrirtæki sem hefur á róttækan hátt reynt að leggja sitt sitt af mörkum til aðstoðar eftir hamfarir sem þessar með hjálp spilaranna. Þannig að ég fór á fullt í það að athuga hvort það væri hægt að koma þessu á laggirnar,“ segir Dan. Hann segir það hafa tekið furðu stuttan tíma. „Það voru allir sammála um að þetta væri frábær hugmynd. For- stjórinn okkar, Hilmar Veigar Pét- ursson, hikaði ekki þegar þetta var borið undir hann. Hann sagði um leið: Látum þetta gerast,“ segir Dan. Söfnunin hófst og segir Dan spilarana eiga stærstar þakki skilið. „Við á CCP aðstoðuðum auðvitað við að koma söfnuninni á laggirnar en spilararnir eiga stærstar þakkir skilið. Svo er þessi söfnun smá sér á báti. Það eru margir sem eru ekki fjársterkir í raunheiminum en eiga nóg af gjaldmiðlinum sem notast er við í leiknum. Það var því áhugavert að geta þarna boðið upp á að styrkja þetta góða málefni með gjaldmiðli sem alla jafna er ekki hægt að nota í raunheiminum. Scott Manley, einn spilara leiksins, keypti geimskip á uppboði til styrktar málefninu á 4 milljónir króna,“ segir Dan. steingerdur@frettabladid.is Þakklátur hjartahlýju tölvuleikjaunnenda Spilarar tölvuleiksins EVE Online hafa safnað yfir 13 milljónum til styrktar Rauða krossinum í Ástralíu. Dan Crone, sem starfar hjá CCP framleiðanda leiksins, er snortinn yfir hjartahlýju spilaranna. Dan Crone er frá Ástralíu en hefur starfað hér á landi hjá CCP frá því í ágúst. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KARLSSON

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.