Fréttablaðið - 10.02.2020, Page 16

Fréttablaðið - 10.02.2020, Page 16
 4 KYNNINGARBLAÐ 1 0 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 M Á N U DAG U RBYGGINGARIÐNAÐURINN Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700 Opið 11-18 virka daga og 11-16 laugardaga. www.alno.is EITTERVÍST:ALNO Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700 Opið: 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.alno.is EITTERVÍST:ALNO Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2 Opið 11-18 virka daga og 11-16 laugardaga. www.alno.is Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Hæsta bygging heims laðar að Ferðaþjónustan í Dúbaí hefur vaxið gríðarlega á undanförnum árum. Glæsileiki borgarinnar á ekki síst þátt í því og þar með talið hæsti skýjakljúfur í heimi þangað sem ferðamenn flykkjast. Mynd birtist á Burj Khalifa af NBA-stjörnunni Kobe Bryant og dóttur hans, Gianna, þegar fréttist af hörmulegu slysi í Kaliforníu þar sem þau fórust bæði ásamt fleirum. Kobe heimsótti Dúbaí árið 2013. NORDICPHOTOS/ GETTY Nýju ári er fagnað í Dubai með flugeldum frá hæstu byggingu veraldar. Burj Khalifa er hæsta mann-virki heims, 828 metrar. Framkvæmdir hófust í september 2004 en turninn var opnaður almenningi 4. janúar 2010 og hefur fengið margar viðurkenningar. Hann er 163 hæðir og getur fólk farið upp og virt fyrir sér Dúbaí og nálæga staði með undurfögru útsýninu. Í heiðskíru lofti er stundum hægt að sjá til Íran. Burj Khalifa er þó varla fyrir lofthrædda. Það er opið allan sólarhringinn og gestir dásama mjög að koma þarna á þeim tíma sem sólin sest til viðar. Risavaxnar byggingar sem löngum hafa verið frægar fyrir hæð sína eru smávaxnar miðað við Burj Khalifa og má þar nefna Eiffelturninn í París, Empire State eða CN-turninn í Toronto. Í fyrstu átti turninn að heita Burj Dubai en nafninu var breytt til heiðurs forseta Sameinuðu arabísku furstadæmanna, Kha- lifa bin Zayed Al Nahyan. Burj Khalifa turninn var hannaður af Adrian Smith og Owings & Mer- rill en fyrirtækið hannaði einnig Willis-turninn í Chicago og One World Trade Center í New York. Hönnunin er sótt til byggingar- listar á svæðinu eins og stóru moskunnar í Samarra. Byggingin er sérstaklega hönnuð með tilliti til hitastigs í Dúbaí á sumrin. Það eru 57 lyftur í turninum og átta rúllustigar. Meira en 7.500 verkamenn komu frá Suður-Asíu til að vinna við bygginguna en þó nokkur gagn- rýni kom fram á lág laun þeirra og illa meðferð. Til dæmis voru tekin af þeim vegabréfin þar til að verki loknu. Nokkur frömdu sjálfsvíg á byggingarstiginu. Armani lúxushótel er í bygg- ingunni en við hliðina er risastór gosbrunnur sem vaknar á kvöldin með vatnsbogum, ljósasýningu og tónlist. Hann mun vera mikið sjónarspil sem ferðamenn ættu ekki að láta fram hjá sér fara. Þegar staðið er efst í Burj Khalifa er hægt að horfa á gosbrunninn frá allt öðru sjónarhorni. Gos- brunnurinn er 270 metra langur og vatnið frá honum spýtist upp í 150 metra hæð. Gosbrunnurinn nefnist Dubai Fountain. Gríðarlegur fjöldi fólks heim- sækir turninn og eykst frá ári til árs. Árið 2018 komu 1,87 milljónir í turninn. Svo virðist vera sem Þjóðverjar hafi verið fjölmenn- astir erlendra gesta, Bretar koma næstir, Indverjar og Rússar eru með svipaðan fjölda og þar fyrir neðan koma Ítalir, Kínverjar, Ástralar, Hollendingar og Frakkar. Flestir gestanna koma þó frá Sam- einuðu arabísku furstadæmunum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.