Fréttablaðið - 10.02.2020, Page 16
4 KYNNINGARBLAÐ 1 0 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 M Á N U DAG U RBYGGINGARIÐNAÐURINN
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið 11-18 virka daga og 11-16 laugardaga. www.alno.is
EITTERVÍST:ALNO
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið: 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.alno.is
EITTERVÍST:ALNO
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2
Opið 11-18 virka daga og 11-16 laugardaga. www.alno.is
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Hæsta bygging heims laðar að
Ferðaþjónustan í Dúbaí hefur vaxið gríðarlega á undanförnum árum. Glæsileiki borgarinnar á
ekki síst þátt í því og þar með talið hæsti skýjakljúfur í heimi þangað sem ferðamenn flykkjast.
Mynd birtist á
Burj Khalifa af
NBA-stjörnunni
Kobe Bryant
og dóttur
hans, Gianna,
þegar fréttist af
hörmulegu slysi
í Kaliforníu þar
sem þau fórust
bæði ásamt
fleirum. Kobe
heimsótti Dúbaí
árið 2013.
NORDICPHOTOS/
GETTY
Nýju ári er fagnað í Dubai með flugeldum frá hæstu byggingu veraldar.
Burj Khalifa er hæsta mann-virki heims, 828 metrar. Framkvæmdir hófust í
september 2004 en turninn var
opnaður almenningi 4. janúar
2010 og hefur fengið margar
viðurkenningar. Hann er 163
hæðir og getur fólk farið upp og
virt fyrir sér Dúbaí og nálæga
staði með undurfögru útsýninu.
Í heiðskíru lofti er stundum hægt
að sjá til Íran. Burj Khalifa er þó
varla fyrir lofthrædda. Það er
opið allan sólarhringinn og gestir
dásama mjög að koma þarna
á þeim tíma sem sólin sest til
viðar. Risavaxnar byggingar sem
löngum hafa verið frægar fyrir
hæð sína eru smávaxnar miðað
við Burj Khalifa og má þar nefna
Eiffelturninn í París, Empire State
eða CN-turninn í Toronto.
Í fyrstu átti turninn að heita
Burj Dubai en nafninu var breytt
til heiðurs forseta Sameinuðu
arabísku furstadæmanna, Kha-
lifa bin Zayed Al Nahyan. Burj
Khalifa turninn var hannaður af
Adrian Smith og Owings & Mer-
rill en fyrirtækið hannaði einnig
Willis-turninn í Chicago og One
World Trade Center í New York.
Hönnunin er sótt til byggingar-
listar á svæðinu eins og stóru
moskunnar í Samarra.
Byggingin er sérstaklega
hönnuð með tilliti til hitastigs í
Dúbaí á sumrin. Það eru 57 lyftur
í turninum og átta rúllustigar.
Meira en 7.500 verkamenn komu
frá Suður-Asíu til að vinna við
bygginguna en þó nokkur gagn-
rýni kom fram á lág laun þeirra og
illa meðferð. Til dæmis voru tekin
af þeim vegabréfin þar til að verki
loknu. Nokkur frömdu sjálfsvíg á
byggingarstiginu.
Armani lúxushótel er í bygg-
ingunni en við hliðina er risastór
gosbrunnur sem vaknar á kvöldin
með vatnsbogum, ljósasýningu
og tónlist. Hann mun vera mikið
sjónarspil sem ferðamenn ættu
ekki að láta fram hjá sér fara.
Þegar staðið er efst í Burj Khalifa
er hægt að horfa á gosbrunninn
frá allt öðru sjónarhorni. Gos-
brunnurinn er 270 metra langur
og vatnið frá honum spýtist upp
í 150 metra hæð. Gosbrunnurinn
nefnist Dubai Fountain.
Gríðarlegur fjöldi fólks heim-
sækir turninn og eykst frá ári til
árs. Árið 2018 komu 1,87 milljónir
í turninn. Svo virðist vera sem
Þjóðverjar hafi verið fjölmenn-
astir erlendra gesta, Bretar koma
næstir, Indverjar og Rússar eru
með svipaðan fjölda og þar fyrir
neðan koma Ítalir, Kínverjar,
Ástralar, Hollendingar og Frakkar.
Flestir gestanna koma þó frá Sam-
einuðu arabísku furstadæmunum.