Fréttablaðið - 10.02.2020, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 10.02.2020, Blaðsíða 52
 24 KYNNINGARBLAÐ 1 0 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 M Á N U DAG U RBYGGINGARIÐNAÐURINN Glæsilegar danskar innréttingar í öll herbergi heimilisins Fríform ehf. Askalind 3, 201 Kópavogur. 562–1500 Friform.is Mán. – Fim. 10–18 Föstudaga. 10–17 Laugardaga. 11–15 Ný tegund múrsteina síar loftið. NORDICPHOTOS/GETTY Fyrir nokkrum árum var hönnuð ný tegund múrsteins sem dregur í sig loftmengun. Múrsteinnin er gerður út steypu og endurunnu plasti. Múrsteinninn er hannaður þannig að hann er hluti af loft- ræstingu byggingarinnar. Hann er tveggja laga ytra lagið sérhann- aður múrsteinn og innra lagið er hefðbundin einangrun. Múr- steinninn virkar þannig að hann dregur í sig loftmengun í gegnum sérstaka loftsíu og sendir svo út aftur hreinsað loft. Rannsókn á síunarkerfi múr- steinanna sýndi a hann gat síað 30% af fíngerðum mengandi ögnum og 100% af grófari ögnum eins og ryki. Það er því ekki ólík- legt að mengunarsíu múrsteinar eigi eftir að verða algeng bygg- ingarefni á komandi árum þar sem hús úr slíkum múrsteinum geta bætt lífskilyrði þeirra sem í þeim búa til muna. Byltingarkennt byggingarefni Hér sést Ladakh í norðurhluta Indlands, en Zojila-göngin eiga að tengja svæðið við Kashmir-dalinn. NORDICPHOTOS/GETTY Vinna við hin 14 kílómetra löngu Zojila-göng á Ind-landi, sem eiga að tengja Kashmir-dalinn við Ladakh í norðurhluta Indlands og kosta milljarð Bandaríkjadollara, hefur stöðvast. Vandamálin komu fyrst upp í september árið 2018, þegar verktakinn sem var að byggja göngin fór á hausinn og skildi eftir skuldir að andvirði um 13 millj- ónir Bandaríkjadollara, eða 1,6 milljarðar íslenskra króna. Indverska ríkisstjórnin ætlaði þá að ráða nýjan verktaka og óskaði eftir tilboðum í verkið, en því var hætt í ágúst 2019. Búist var við því að það yrði haldið áfram að leyfa verktökum að bjóða í verkið síðar meir, en það hefur ekki gerst og það eru engin merki um að vinna við göngin hefjist aftur á næstunni. Þegar framkvæmdir hófust sagði Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, að göngin væru tækni- legt kraftaverk. Indverska ríkis- stjórnin hefur heitið því að eyða 1,4 trilljónum Bandaríkjadollara til að byggja upp innviði og iðnað lands- ins, en skortur á góðum innviðum hefur hamlað efnahagsþróun á Indlandi. Rándýr gangagerð stöðvast Mannvirkjastofnun fer með yfirumsjón bygg-ingarmála á Íslandi. Stofnunin fer meðal annars með undirbúning reglugerða og gerð leiðbeininga á sviði byggingar- mála, aðgengismál, löggildingu hönnuða og iðnmeistara, útgáfu starfsleyfa fyrir byggingarstjóra og faggiltar skoðunarstofur á byggingasviði. Stofnunin skal einnig sinna markaðseftirliti með byggingarvörum og taka þátt í gerð íslenskra og evrópskra staðla á sviði byggingarmála. Meginþungi byggingareftirlits í landinu er á höndum sveitarfélag- anna sem ráða byggingarfulltrúa til að sinna útgáfu byggingarleyfa og framkvæmd byggingareftir- lits. Þó er gert ráð fyrir að með tímanum verði allt byggingar- eftirlit framkvæmt af faggiltum aðila í samræmi við ákvæði skoðunarhandbóka sem Mann- virkjastofnun býr til. Um síðustu áramót sam- einuðust Mannvirkjastofnun og Íbúðalánasjóður undir nýju nafni: Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS). Sameiningunni er ætlað að stuðla að heildstæðri yfirsýn yfir húsnæðis- og mannvirkjamál á einum stað ásamt því að ef la stefnumótun og framkvæmd húsnæðis- og mannvirkjamála til hagsbóta fyrir almenning. Sjá nánar á hms.is Yfirumsjón byggingarmála Að mörgu er að hyggja við að byggja.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.