Fréttablaðið - 10.02.2020, Blaðsíða 48
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Ánægjan af því að
standa í fram-
kvæmdum er mikilvæg
og þar skipta raunhæfar
væntingar og réttar
áætlanir lykilmáli.
Jónas Halldórsson, framkvæmdastjóri JT Verk, segir að fyrirtækið byggi á langri
reynslu úr framkvæmdageiranum,
þar sem meðal annars gerð og
eftirfylgni kostnaðar áætlana
sé veigamikill þáttur. „Með
áætlun sem byggð er á þekkingu
og reynslu minnka líkurnar á
óvæntum uppákomum í ferlinu,“
segir hann og bætir við að gerð
kostnaðaráætlana sé vandasamt
verk. Forsendur og upplýsingar
eru grundvöllur allra áætlana,
breytingar geti komið upp hvenær
sem er í ferlinu, allt frá því að
ákveðið er fara í framkvæmdina á
hönnunarstigi og á framkvæmda
stiginu. Lykilatriðið er að reyna
að vita í gegnum allt ferlið hver
áætlaður raunkostnaður verkefnis
verði í lokin.
„Margir þættir geta spilað
inn í kostnaðarætlun. Vega þarf
ýmsar breytingar hverju sinni
sem geta komið upp. Þá skiptir
máli hvaða forsendum vinna skal
eftir. Reynsla og þekking skiptir
sköpun, því fer fjarri að þetta sé
einfalt mál,“ segir hann. „Vönduð
vinna í áætlunargerð eykur líkur
á að hún standist. Á öllum stigum,
allt frá ákvörðun um verkefni og
þar til því er lokið fylgjum við því
eftir og gerum stöðugt uppfærslur
á áætlunum. Til eru þekktar
aðferðir verkefnastjórnunar sem
eigendur verkefna ættu að nýta
sér svo útkoman verði í samræmi
við væntingar,“ útskýrir Jónas og
bendir á að ábyrgð á kostnaðar
áætlunum hafi verið þrengd
nýlega. „Sérfróðir ráðgjafar virðast
njóta minni verndar gagnvart gerð
kostnaðaráætlana sem gæti haft
þau áhrif að þeir beri sig undan
því að gera áætlanir nema með
ýmsum fyrirvörum,“ bætir hann
við.
Hjá JT Verk starfar öflugur
hópur fólks sem hefur sérhæft
sig í utanumhaldi og verkefna
stýringu framkvæmda frá upphafi
til enda. „Ánægjan af því að standa
í framkvæmdum er mikilvæg og
þar skipta raunhæfar væntingar
og réttar áætlanir lykilmáli. Þetta
getur verið flókið en gott og stöð
ugt utanumhald verkefna eykur
líkurnar á því umtalsvert. Upp
lifunin af framkvæmdum verður
ánægjulegri þegar væntingarnar
standast,“ segir Jónas.
JT Verk var stofnað árið 2017
með það að markmiði að vera
virkur þátttakandi í framkvæmda
geiranum á Íslandi. Nánari upp
lýsingar á heimasíðunni jtverk.is
eða í síma 519 3220.
Vönduð kostnaðaráætlun skiptir máli
Starfsmenn JT Verk hafa langa reynslu af hönnunar- og verkefnastjórnun ýmissa verkefna, minni
og stærri. JT Verk stýrir verkinu frá hugmynd að framkvæmdalokum og veitir alhliða ráðgjöf.
Jónas Halldórsson, framkvæmdastjóri hjá JT Verk. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Þetta eru rúmgóð hús og geta átt góðan tíma eftir hjá nýjum eigendum.Húsin eru svokölluð A-hús með svefnlofti.
Á vef BHM segir að á orlofssvæði BHM í Brekkuskógi í Biskupstungum séu nokkur
orlofshús með lágum veggjum á
langhliðum og bröttu þaki, svo
Gefa gömul sumarhús
Sumarhúsin eru um og yfir 40 ára gömul og þurfa talsvert viðhald.
BHM hefur aug-
lýst gefins sex
gömul sumarhús
gegn því að þau
verði flutt. Félag-
ið telur ekki svara
kostnaði að ráð-
ast í endurnýjun
húsanna.
kölluð Ahús. Húsin eru um og
yfir 40 ára gömul, 46 fermetrar að
flatarmáli og standa á steyptum
súlum. Jafnframt segir að þrátt
fyrir að reglulegu viðhaldi hafi
verið sinnt séu sex húsanna í mjög
bágbornu ástandi og því er ekki
talið að það myndi svara kostnaði
að ráðast í viðamikla endurnýjun
þeirra. Því hafi stjórn Orlofssjóðs
BHM ákveðið að reisa sex ný
orlofshús í Brekkuskógi sem leysa
munu gömlu Ahúsin af hólmi.
Sjóðurinn hefur auglýst að í stað
þess að rífa gömlu húsin og farga
þeim muni húsin verða afhent
áhugasömum aðilum til eignar
gegn því að þau verði fjarlægð af
svæðinu.
Gissur Kolbeinsson, fjármála
og rekstrarstjóri BHM, segir að
viðbrögðin við auglýsingunni hafi
verið mjög mikil. „í raun mikið
meiri en við þorðum að vona
því svona f lutningur er meira en
að segja það. Ég er með um 150
manns á lista í dag sem hafa lýst
yfir áhuga á að taka svona hús.“
Hann segir að húsin séu í því
ástandi að laghentir ættu að geta
haldið þeim við. „Húsin voru í
útleigu þar til um síðastliðna helgi.
Við höfum hins vegar ekkert farið
í grafgötur með að þau eru í nokk
urri viðhaldsþörf. Í gær vorum
við með opið hús fyrir áhuga
sama. Viðbrögðin sem ég fékk frá
þeim sem skoðuðu húsin voru
öll jákvæð og greinilega nokkur
spenna varðandi útdráttinn. Fólk
setur því viðhaldsþörf húsanna
greinilega ekki fyrir sig.“
Í tilkynningunni frá BHM
kemur fram að við ákvörðun um
ráðstöfun húsanna munu sjóð
félagar ganga fyrir og einnig aðilar
sem reiðubúnir eru að fjarlægja
f leiri en eitt hús. Verði eftirspurn
in meiri en framboðið verður
dregið úr hópi áhugasamra. Það er
nokkuð ljóst miðað við áhuga að
dregið verður úr hópi þeirra hand
lögnu aðila sem hafa lýst áhuga
sínum á að eignast húsin.
Gissur segir að bygging nýrra
húsa verði boðin út núna í febrúar
en útboðið verður auglýst f ljótlega.
Reiknað er með að framkvæmd
unum verði lokið árið 2022. Nýju
húsin sex sem reist verða í stað
gömlu Ahúsanna eru hönnuð af
arkitektunum Sigríði Maack og
Ingunni Hafstað hjá Arktika. Við
hönnun þeirra var leitast við koma
til móts við þarfir og óskir sjóð
félaga samkvæmt niðurstöðum
viðhorfskannana sem stjórn
Orlofssjóðs hefur gert. Nýju húsin
verða töluvert stærri en Ahúsin og
frábrugðin þeim að ýmsu leyti.
INNLEND FRAMLEIÐSLA MEÐ
EPD UMHVERFISYFIRLÝSINGU
Steinull hf er fyrsti byggingavöruframleiðandinn á
Íslandi sem látið hefur útbúa umhverfisyfirlýsingu
fyrir sínar vörur.
Umhverfisyfirlýsing vöru stendur fyrir
„Environmental Product Declaration“ eða EPD.
SAUÐÁRKRÓKI • Sími 455 3000 • steinull@ steinull.is • www.steinull.is
20 KYNNINGARBLAÐ 1 0 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 M Á N U DAG U RBYGGINGARIÐNAÐURINN