Fréttablaðið - 10.02.2020, Side 6

Fréttablaðið - 10.02.2020, Side 6
Það verða rúmlega fimm þúsund vinnuslys á ári og því mikið verk að vinna. Gísli Níls EInars- son, sérfræðingur í forvörnum hjá VÍS Tæplega 80 létust frá laugardegi til sunnudags og jafnmargir sólarhinginn á undan. ára HEILBRIGÐISMÁL Tekist hefur að fækka vinnuslysum og slysum á börnum á skólatíma með atvika- skráningarkerfinu Atvik. Þetta segir Gísli Níls Einarsson, sérfræð- ingur í forvörnum hjá VÍS. Fjöldi vinnuslysa hér á landi hefur verið um 5 þúsund á ári síðasta áratug samkvæmt tölfræði Embættis landlæknis. Um aldamótin skráði Vinnueftirlitið um 1.400 vinnuslys, sú tala var komin upp í 1.919 árið 2007 en talan lækkaði aftur eftir hrun. Frá 2011 hefur slysum fjölgað stöðugt á ný. „Það er mikið um vinnuslys, rúmlega 5 þúsund á ári, og því mikið verk að vinna. Heildartöl- fræði hefur hins vegar takmarkað notagildi þar sem það er engin leið fyrir vinnuveitendur og sveitarfélög að átta sig á því hvað þarf að laga,“ segir Gísli Níls. Á miðvikudaginn heldur hann erindi á Forvarnaráð- stefnu VÍS á Hilton hótelinu, þar mun hann ræða reynsluna af for- ritinu Atvik sem VÍS hefur þróað frá árinu 2013. Forritið er nú aðgengilegt um 16 þúsund starfsmönnum, þar á meðal 700 sjómönnum. Erlendar rannsóknir hafa sýnt fram á að mun farsælla er að allir starfsmenn hafi aðgang að kerfinu og geti skráð atvik en ekki aðeins millistjórn- endur. Starfsmenn geta skráð atvik nafnlaust í kerfinu. Upplýsingarnar nýtast svo atvinnurekendum og stjórnendum til að gera viðeigandi úrbætur til þess að auka öryggi á vinnustöðum. Árið 2018 greindi Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum frá því að engin slys hefðu átt sér stað í þremur skipum félagsins það ár. „Fyrirtækin hafa fært kerfið upp á land. Sem dæmi tók eitt fisk- vinnslufyrirtækið upp nýja gerð af hönskum fyrir starfsmenn í fisk- snyrtingu sem eru með stálvírum í kjölfar tíðra skráninga á stungu- og skurðslysum. Nú eru slík slys nánast ekki lengur til staðar,“ segir Gísli. „Úti á sjó hafa skráningar í kerfið leitt til ýmissa breytinga. Til dæmis hafa sjómenn breytt um verklag og staðsetningu við vinnu á þilfarinu. Með því drógu þeir úr líkum á slys- um á þilfarinu. Það eru svona atriði, sem starfsfólk og stjórnendur geta ekki borið kennsl á nema með yfir- sýn og skráningu á atvikum. Með þessu er þá hægt að koma í veg fyrir alvarleg slys og jafnvel banaslys.“ Kerfið hefur einnig verið tekið upp hjá annað hundrað leik- og grunn- skólum um landið og eftir Metoo- byltinguna var ákveðið í samráði við notendur kerfisins að innleiða í það atvikaskráningu á kynferðislegri áreitni, einelti og ofbeldi. VÍS hefur ekki aðgang að gögnum einstakra fyrirtækja en Gísli segir að dæmi séu um að slíkt hafi verið upprætt. arib@frettabladid.is Tölfræði getur komið í veg fyrir alvarleg slys Tíðni vinnuslysa og slysa í skólum hefur farið vaxandi á undanförnum árum. Skráningarkerfi sem hefur verið innleitt víða afhjúpar hvar slysahætturnar leynast. Inniheldur einnig leið til að skráningar á kynferðislegri áreitni. Sigur gefur aukið sjálfstraust Forsetaframbjóðandinn Pete Buttigieg heilsaði stuðningsmönnum sínum í New Hampshire í gær en allir sem keppa um útnefningu Demókrata eru þangað komnir í tilefni forkosninga í fylkinu sem fara fram á morgun. Buttigieg og Bernie Sanders fengu f lesta kjörmenn í fyrsta forvali f lokksins í Iowa í síðustu viku. Þeim er einnig spáð góðu gengi í New Hampshire. Útnefning f lokksins fer fram síðsumars. NORDICPHOTOS/GETTY Með atvikaskráningu hefur tekist að fækka vinnuslysum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR HEILBRIGÐISMÁL Yfir 800 hafa látist í Kína vegna bráðrar lungnabólgu af völdum kórónaveirunnar sam- kvæmt upplýsingum frá heilbrigð- isyfirvöldum í Kína. Um helgina létust 80 manns á einum sólarhring sem var á pari við daginn á undan, þegar hæsta dánartala á sólarhring hingað til mældist. Hátt í 38 þúsund hafa greinst með veiruna en tæplega þrjú þúsund hafa læknast og verið útskrifuð af sjúkrahúsum hingað til. Fleiri hafa látist í Kína af völdum veirunnar en létust af völdum bráðrar lungnabólgu sem skók Kína á árunum 2002 til 2003 og dró 774 einstaklinga til dauða. – kdi Kórónaveiran slær met í Kína TAÍLAND Alls féllu 26 manns þegar taílenskur hermaður gekk ber- serksgang og skaut á fólk í borginni Nakhon Ratchasima á laugardag. Auk þeirra særðust 57 þar af níu alvarlega. Sérsveitir lögreglu skutu manninn til bana um morguninn en hann hafði falið sig í verslunar- miðstöð yfir nóttina. Maðurinn hafði stolið byssu og skotfærum á herstöð sinni en fyrsti maðurinn til að verða fyrir árás hans var yfirmaður hans. Því næst hóf hann að skjóta fólk af handa- hófi úr bíl á leið sinni í verslunar- miðstöð. Fjöldi myndbanda náðist af því þegar maðurinn skaut fólk sem reyndi að f lýja undan bílnum. Myndbönd sýndu einnig eld sem logaði fyrir utan verslunarmið- stöðina eftir að skotið hafði verið í gaskút. Inni í verslunarmiðstöðinni hélt skothríðin áfram þar sem maður- inn myrti fjölda fólks. Lögreglu tókst að forða nokkrum úr bygg- ingunni og mörgum tókst að fela sig. Fólk faldi sig inni á salernum og í verslunum og sendi vinum og ættingjum skilaboð á meðan beðið var eftir að lögregla yfirbugaði manninn. Hann var skotinn til bana nær sautján klukkustundum eftir að hann hóf skotárásina en lögregla óttast að fjölda manns væri haldið í gíslingu inni í verslunarmiðstöð- inni. – kdi Tugir skotnir til bana í Taílandi Lögreglan sat um húsið í 17 tíma. HEIMSMET Um helgina var stærsti f lugeldur heims sprengdur í loft upp í Colorado-fylki í Banda- ríkjunum. Flugeldurinn vóg um 1,3 tonn sem samsvarar bifreið af gerðinni Toyota Corolla. Mikið sjónarspil skapaðist þegar f lugeld- urinn sprakk. Fulltrúi Heimsmeta- bókar Guinness staðfesti metið en fyrra met var frá árinu 2018 þegar rúmlega eins tonns f lugeldur var sprengdur í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. – bþ Heimsins stærsti flugeldur sprakk 1 0 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 M Á N U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.