Fréttablaðið - 10.02.2020, Blaðsíða 2
Flestir eru með rafræn
skilríki í farsímum sínum.
Veður
Norðan og norðvestan 13-23 V-
til með snjókomu í dag og sums
staðar slyddu við ströndina.
Hvassast NV-til, mun hægari og
úrkomulítið fyrir austan. Frost
0 til 7 stig, heldur hlýnandi á
morgun. SJÁ SÍÐU 14
Framkvæmdir við Elliðaárnar
Þessa dagana eru miklar framkvæmdir við nýjar lagnir Veitna hf. undir Elliðaárnar. Um helgina var verið að leggja ídráttarrör undir austur-
kvísl árinnar og því var nauðsynlegt að veita henni tímabundið fram hjá hefðbundnum farvegi sínum. Verkinu hefur seinkað vegna óhagstæðrar
veðráttu en þrátt fyrir það er reiknað með að verklok haldist innan tímaramma og verkinu ljúki fyrir 31. mars næstkomandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
LOK Á POTTA
LITIR: GRÁTT EÐA BRÚNT
MARGAR STÆRÐIR TIL Á LAGER
HEITIRPOTTAR.IS
HÖFÐABAKKI 1
SÍMI 7772000
SAMFÉLAG Tæplega 80 prósent
landsmanna fimmtán ára og eldri
eru með rafræn skilríki samkvæmt
svari Auðkennis við fyrirspurn
Fréttablaðsins. Auðkenni gefur út
rafræn skilríki sem fullgild eru við
undirskriftir á netinu, um 220-230
þúsund virk rafræn skilríki eru hjá
fyrirtækinu.
Rafræn skilríki eru persónuskil-
ríki sem notuð eru á internetinu og
notkun þeirra jafngildir framvísun
hefðbundinna skilríkja. Hægt er að
fá þau bæði á greiðslukort og í síma.
Haraldur Bjarnason hjá Auð-
kenni segir meirihluta fólks vera
með rafræn skilríki í farsíma og að
notkun þeirra sé öruggasta leiðin til
að auðkenna sig á netinu.
„Þetta stuðlar bæði að bættu
öryggi og einfaldari samskiptum,“
segir Haraldur. „Borgarar geta átt
samskipti við opinbera aðila, banka
eða hvern sem er heiman frá sér,“
bætir hann við.
„Notkun rafrænna skilríkja stuðl-
ar að bættu öryggi, hagræðingu og
þægindum. Ferlar sem voru að taka
langan tíma eins umsóknir um lán
eða eitthvað slíkt sem tók kannski
tíu daga en tekur núna kannski
þrjátíu sekúndur eða fimm mínút-
ur.“ – bdj
Haraldur A. Bjarnason er fram-
kvæmdastjóri hjá Auðkenni.
Langflestir með
rafræn skilríki
VIÐSKIPTI Hinn kínverski Wei Li
f laug í síðustu viku til Íslands með
rúmlega 170 kílógrömm af íslenskri
mynt en andvirðið er um 1,6 millj-
ónir króna. Þetta er í þriðja sinn
sem Li fjármagnar Íslandsferð með
þessum hætti og hafa fyrri ferðir
gengið snurðulaust fyrir sig. Núna
er hins vegar komið babb í bátinn.
Í farangri Wei Li, sem býr í
nágrenni Hong Kong, er eingöngu
100 krónu mynt. „Það borgar sig
ekki að kaupa yfirvigt fyrir smærri
mynt,“ segir Li. Peningarnir eru í
misjöfnu ástandi, sumir alveg heilir
en aðrir talsvert skemmdir. Við
komuna til landsins fór Li í Seðla-
banka Íslands til þess að skipta pen-
ingunum í handhægari stærðir en
var vísað frá. Þaðan fór hann í útibú
Arion banka og hafði ekki verið þar
nema í nokkrar mínútur þegar átta
lögreglumenn komu á vettvang og
spurðu hann spjörunum úr.
Wei Li segist skilja vel að athæfi
hans veki furðu en hann fari að
lögum og reglum. Lögin séu skýr en
framganga yfirvalda sé það ekki.
„Ég fæ myntina frá myntbrask-
ara úti í Kína. Ég veit ekki hvaðan
allt kemur en hluti kemur frá
endurvinnslufyrirtæki sem kaupir
samanpressaða bíla frá Íslandi.
Þar leynist mikið af mynt,“ segir Li.
Fyrirkomulagið er þannig að hann
borgar ekki krónu fyrir myntina
nema ef honum tekst að skipta
henni hérlendis. Þá fær myntbrask-
arinn sanngjarnan hlut.
„Ég gaf allt upp við komuna til
landsins,“ segir Li og sýnir kvittun
þess efnis. Hann segist nota ágóð-
ann til að ferðast um Ísland enda
fallegasta land heims að hans mati.
Hann segist hafa komið tvisvar
í slíkar heimsóknir til Íslands á
síðasta ári og alltaf hafi viðskiptin
gengið snurðulaust fyrir sig. „Í síð-
asta skipti fékk ég upplýsingar um
að til stæði að breyta reglunum. Ég
hafði því samband fyrir þessa ferð
og sá að reglurnar væru óbreyttar.
Þess vegna skil ég ekki af hverju ég
fæ ekki að skipta myntinni,“ segir Li.
Hann hefur ferðast til annarra
landa í sama tilgangi, meðal ann-
ars Danmerkur, Noregs og Þýska-
lands. Þar séu reglurnar skýrar en
ekki handahófskenndar eins og hér.
„Ég get notað heilu myntina í
verslunum en vil það síður með
skemmdu myntina. Ég væri opinn
fyrir því að gefa skemmdu myntina
til góðgerðarmála hérlendis enda
er hún að óbreyttu gagnslaus fyrir
mig,“ segir Li. bjornth@frettabladid.is
Flutti 170 kíló af mynt
frá Kína til Keflavíkur
Kínverskur ferðamaður furðar sig á því að Seðlabankinn vilji ekki skipta um
1,6 milljónum króna af íslenskri mynt sem hann ferðaðist með til landsins frá
Kína. Þetta er þriðja ferð hans til landsins og áður hafa skiptin gengið í gegn.
Wei Li flaug til landsins með 170 kíló af 100 krónu mynt. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Ég veit ekki hvaðan
allt kemur en hluti
kemur frá endurvinnslu-
fyrirtæki sem kaupir saman-
pressaða bíla frá Íslandi.
Wei Li, kínverskur ferðamaður
SAMGÖNGUR At vik þar sem f lug-
vél Icelandair á leið frá Kef la vík
til Manchester var lent í Glas gow
vegna ó kyrrðar hefur verið til-
kynnt til f lug mála yfir valda í Bret-
landi. Þor kell Ágústs son hjá rann-
sóknar nefnd sam göngu slysa segir
að Icelandair hafi til kynnt at vikið
til rann sóknar nefndarinnar.
„Það var tilkynnt þetta símleiðis.
Til kynningin var síðan send til f lug-
mála yfir valda í Bret landi því að at-
vikið átti sér stað þar,“ segir Þorkell.
Spurður að því hvort að venja sé
að til kynna at vik sem verða vegna
ó kyrrðar líkt og þessarar segir Þor-
kell það fara eftir hverju til viki fyrir
sig. Í þessu til viki hafi f lugfé lagið
metið það svo að þurft hafi að til-
kynna það.
Frétta stofa RÚV greindi frá því að
mikil geðs hræring hefði gripið um
sig á meðal far þega þegar ó kyrrðin
hófst og fólk grátið. Flugvélinni
hefur verið flogið til Íslands. – gis
Flugið tilkynnt
til flugyfirvalda
1 0 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 M Á N U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð