Fréttablaðið - 02.01.2020, Blaðsíða 2
Veður
SV 8-13 og él í kvöld, en bjart veður
NA-lands. Gengur í hvassa norð-
austanátt með snjókomu á Vest-
fjörðum í nótt. Snýst í N- og NV á
morgun, víða 10-15 m/s en 13-20
A-til síðdegis. SJÁ SÍÐU 20
10-60%
AFSLÁTTUR
ÚTSALAN
ER HAFIN
SMÁRATORGI | KRINGLAN | GLERÁRTORGI | LINDESIGN.IS
Fjórtán fengu fálkaorðu
NÁTTÚRA „Það var alveg magnað að
sjá þetta,“ segir Jón Viðar Sigurðs-
son jarðfræðingur í Hafnarfirði sem
var ásamt eiginkonu sinni að aka
vestur Skeiðarársand um klukkan
hálfellefu á nýársmorgun er þau
urðu vitni að miklu sjónarspili á
himni.
„Maður sér nú oft glitský en þetta
var einu stigi hærra,“ segir Jón Viðar
sem kveðst ekki vita hvers vegna
skýin voru eins litsterk og raun bar
vitni og sjá má af meðfylgjandi
mynd sem hann tók og gaf Frétta-
blaðinu leyfi til að birta. Glitský
myndast í heiðhvolfinu í um fimm-
tán til þrjátíu kílómetra hæð.
„Þetta sést eingöngu við sólar-
upprás og við sólsetur um miðjan
vetur og yfirleitt sér maður eitt og
eitt glitský á stangli en þetta var afar
stórt og mikið,“ lýsir Jón Viðar. Um
sé að ræða ský í mjög mikilli hæð
sem endurspegli ljósið og brjóti það
upp. Væntanlega sé það vegna þess
að þessi ský voru óvenju stór ský og
í mikilli hæð sem þau urðu svona
glæsileg.
„Oftast eru þetta frekar daufir
litir en þetta voru æpandi skærir og
sterkir litir í þetta skipti,“ segir Jón
Viðar sem kveður glitskýin hafa
verið sýnileg í um það bil fimmtán
mínútur eða þangað til sólin var
komin svo hátt á loft að fyrirbrigðið
hvarf.
Að sögn Jóns Viðars urðu ekki
mörg vitni að glitskýjunum í gær.
„Það var nýársmorgunn og fáir á
ferli þannig að ég stoppaði snarlega.
Aðrir virtust bara ekki vera að horfa
í himininn. Hugsanlega hafa menn
frekar bara haft augun á veginum,“
útskýrir hann. Í raun hafi þó verið
afar erfitt að koma ekki auga á skýin.
„Þetta var bæði fyrir sunnan
okkur og norðan, þetta fyllti hálfan
himininn. Þessi ský eru í of boðs-
legri hæð og eru tjásukennd þannig
að það lítur út eins og myndirnar séu
ekki í fullkomnum fókus en þær eru
það samt,“ segir Jón Viðar.
Aðspurður hvort hann lesi ein-
hverja framtíðarspá út úr glitskýj-
unum þennan nýársmorgun segir
Jón Viðar að skýin boði engan spá-
dóm. „Þetta er bara náttúran að
bjóða gleðilegt ár á litskrúðugan
hátt,“ segir jarðfræðingurinn.
gar@frettabladid.is
Nýárskveðja í glitskýi
barst á Skeiðarársand
Jarðfræðingurinn Jón Viðar Sigurðsson upplifði mikla sýningu á Skeiðarár-
sandi í gærmorgun. „Þetta fyllti hálfan himininn,“ segir Jón Viðar um skær og
litsterk glitský á lofti. „Maður sér nú oft glitský en þetta var einu stigi hærra.“
„Það lítur út eins og myndirnar séu ekki í fullkomnum fókus en þær eru það samt,“ segir Jón Viðar Sigðurðsson.
Þeir sem fálkaorðu fengu í gær eru Árni Oddur Þórðarson, Daníel Bjarnason, Gestur Pálsson, Guðni Kjartansson, Guðrún Hildur Bjarnadóttir,
Guðríður Helgadóttir, Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Margrét Bjarnadóttir, Ólafur Haukur Símonarson, Ólöf Hallgrímsdóttir, Sigurborg Daðadóttir,
Sigurður Hannesson, Sigurður Reynir Gíslason og Valgerður Stefánsdóttir. Hér eru þau samankomin ásamt forsetahjónunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
SAMFÉLAG Á fjórða hundrað manns
á öllum aldri mætti hið árlega nýárs-
sund Sjósunds- og sjóbaðsfélags
Reykjavíkur í Nauthólsvík í gær.
Elsti var áttræður, yngsti tveggja.
„Sífellt f leiri velja að byrja nýtt
ár á svellköldu sjósundi. Við bjugg-
umst ekki við svona mörgum. Það
var mikil stemning.“ Sú hefð hefur
skapast að fólk mætir í alls konar
búningum til sundsins. „Þetta er
besta leiðin til að byrja árið ferskur,“
segir Ragnheiður hlæjandi.
Ragnheiður segir sjóbaðsfélagið
hafa fagnað í gær 10 ára afmæli.
Það var fámennur hópur sem mætti
saman í sjósund í ársbyrjun 2010.
Síðan þá hafi þetta vaxið ótrú-
lega og hefur í raun og veru orðið
sprenging.
Sjórinn sem er venjulega 0 gráður
var um tvær gráður í gær. – ds
Í furðufötum í nýárssundi
Kátína hjá sjósundsfólki. MYND/RAGNHEIÐUR VALGARÐSDÓTTIR
+PLÚS
SAMFÉLAG Flugeldasala á vegum
Landsbjargar gekk mjög vel í ár
þrátt fyrir aukna umræðu um loft-
mengun af völdum flugelda.
Þór Þorsteinsson, formaður
Landsbjargar, telur að salan sé
svipuð í ár en segir endanlegar sölu-
tölur ekki liggja fyrir. Hann segir
að umræðan undanfarið hafi ekki
beinlínis verið hliðholl f lugelda-
sölu og því hafi björgunarsveitirnar
búist við minni eftirspurn. Sú varð
ekki raunin.
Flugeldasalan er langstærsti
tekjugrundvöllur björgunarsveit-
anna. „Skiptir algjörum sköpum
fyrir okkur og almannavarnir í
landinu. Á heildina litið erum við
gríðarlega ánægð með söluna í ár,“
segir formaðurinn. – ds
Flugeldasalan
vonum framar
2 . J A N Ú A R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð