Fréttablaðið - 02.01.2020, Síða 24

Fréttablaðið - 02.01.2020, Síða 24
Tískubylgjur næsta áratugar munu horfa til umhverfismála. Margir, mismunandi tísku-straumar hafa einkennt áratuginn sem er að líða. Oft hefur verið sagt að bæði allt og ekkert sé í tísku og því segir Andri Unnarsson fatahönnuður erfitt að spá fyrir um tísku næsta áratugar. Andri er í meistaranámi í fata- hönnun við Konunglega listahá- skólann í Kaupmannahöfn. „Tískan hefur verið í ákveðinni upplausn, það er allt í tísku og ekk- ert. Það er alveg jafn kúl að vera í öllu svörtu eða í einhverju með blómamunstri. Það verður gaman að sjá hvernig það mun þróast.“ Tískustraumar hafa því verið mjög óútreiknanlegir, sérstaklega eftir komu samfélagsmiðla. „Ég myndi segja það. Það er ekki hægt að gefa sér fyrir fram einhverja ákveðna litapallettu eða eitthvað ákveðið form fyrir næsta áratug, en hvernig við neytum fatnaðar mun vissu- lega móta útlitið á honum.“ Umhverfisvernd í höndum nýrra fatahönnuða Andri er viss um að tískufatn- aður verði sjálf bærari með meiri áherslu á umhverfisvernd. „Það mætti alveg gera ráð fyrir að fyrirtæki fari að vinna meira með hönnun á endurnýtanlegum efnum eða að endurvinna gamlar flíkur, í stað þess að kaupa alltaf inn nýtt. Þau munu reyna að finna lausnir í þeim dúr.“ Þó það væri jákvætt ef tískurisar myndu framleiða færri fatalínur á ári þá telur Andri ólíklegt að það muni gerast. „Það væri frábært en ég held að við sem neytendur séum ekki nógu meðvituð um eigin fata- neyslu til að hætta að kaupa svona mikið og stærstu tískurisarnir hafa ekkert talað um að minnka við sig. En vonandi gerist það samt.“ Fatahönnuðir framtíðar verða Tíska næsta áratugar Karen Briem og Andri Hrafn Unnarsson vöktu mikla athygli síðastliðinn vetur þegar þau hönn- uðu búninga fyrir Hatara sem tóku þátt í Eurovision. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON þó líklega meðvitaðri um ábyrga neyslu og framleiðslu. „Flestir skól- ar eru að hamra þetta í nemendur í fatahönnun. Þú getur hvort eð er eiginlega ekki stofnað tískufyrir- tæki og ætlað þér að fara í gamla viðskiptamódelið, það myndi ekki reka sig með sölu.“ Fatahönnuðir verða að leita annarra leiða til að framleiða föt og auglýsa sig. „Með því að til dæmis koma sér öðruvísi á framfæri en að vera með hefðbundnar tískusýningar sem er fáránlega dýrt. Mörg fyrirtæki eru að nota samfélagsmiðla sem aðalupplýsingamiðil sinn. Það er gaman að sjá að fólk er að nota önnur form af tískusýningum en „runway“ formið.“ Meiri rómantík í minni framleiðslu Smærri hönnuðir eru sjaldnar að opna verslanir í dag, til að minnka álagningu á föt og geta þá frekar lagt áherslu á umhverfisvæna og vandaða hönnun. Þó stóru búðirnar munu líklega ekki hverfa þá verður kannski minna af nýjum fataverslunum í vestrænum heimi. „Fólk er að kaupa meira af netinu hvort sem er þannig að það væri ekki beint að vinna með þér að reka verslun, allavega ekki í vest- ræna heiminum. Það er aðeins öðruvísi í Asíu skilst mér, þar sem er meiri gróska í kringum það að reka fataverslun.“ Það sem Andri væri helst til í að sjá er minni fjöldaframleiðsla í tískuheimi framtíðarinnar. „Það er meiri rómantík í fötum ef þau fá að vera búin til með aðeins flóknari hætti en að framhlið og bakhlið sé splæst saman á tíu mínútna fresti í verksmiðju. Frekar að það sé nostrað við þau, með smá arki- tektúr í sköpuninni.“ Sólrún Freyja Sen solrunfreyja@frettabladid.is Kjóllinn á myndinni er einnotaog innblásinn af neyslumenningu.  Andri Unnarsson fatahönnuður segir erfitt að spá fyrir um tísku næsta áratugar. Þú getur hvort eð er eiginlega ekki stofnað tískufyrirtæki og ætlað þér að fara í gamla viðskiptamódelið, það myndi ekki reka sig með sölu. Fatahönnuðir verða að leita annarra leiða til að framleiða föt og auglýsa sig. 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 . JA N ÚA R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.