Fréttablaðið - 02.01.2020, Blaðsíða 34
Einu sinni las ég fantasíubók sem hefst í helvíti. Þar kveljast sálir fordæmdra um alla eilífð, en illu andarnir passa upp á að logarnir brenni sem
heitast. Á meðan er spiluð tónlist.
Þetta er eingöngu tónlist eftir mis
heppnuð tónskáld, verk sem voru í
mesta lagi flutt einu sinni á jörðinni.
Sagan dæmdi þau úr leik, en í helvíti
eru þau spiluð endalaust, hinum for
dæmdu til enn meiri skapraunar.
Ég hugsa að Haf liði Hallgríms
son endi ekki á vonda staðnum. Ein
magnaðasta tónsmíðin sem leit fyrst
dagsins ljós á árinu var eftir hann og
bar nafnið Mysterium. Hún var flutt
á Kirkjulistahátíð í byrjun júní. Þetta
var tónlist sem unaður var að hlusta
á. Hún fjallaði um upprisu Krists,
mikinn leyndardóm sem dulúðugt
tónmálið gerði ljóslifandi fyrir
manni. Tónlistin var íhugul, hljóm
arnir voru framandi og útkoman var
annarleg, en einhvern veginn háleit
um leið. Hafliði hefur samið mjög
mörg tónverk, en honum virðist sér
staklega lagið að semja um trúarleg
málefni. Það geta svo sannarlega
ekki allir, eins og ótal tilgerðarleg
trúarverk bera vott um.
Ferskur andblær
Annar minnisstæður frumflutning
ur á árinu var flautukonsert eftir Jón
Ásgeirsson. Emilía Rós Sigfúsdóttir
lék hann með Sinfóníuhljómsveit
Íslands snemma á árinu. Hið óvenju
lega við konsertinn var að hljóm
arnir voru hefðbundnir og laglín
urnar í öndvegi. Við hliðina á öðrum
íslenskum einleiks konsertum, sem
oft eru dálítið spúkí og drungalegir,
var verk Jóns eins og ferskur andblær.
Þjóðin þekkir hann sennilega fyrst
og fremst fyrir lögin Maí stjörnuna
og Hjá lygnri móðu, en þau eru bæði
mjög grípandi. Jóni lætur einkar vel
að semja flottar laglínur, og það er
gáfa sem mörg tónskáld myndu gefa
útlim fyrir. Í flautukonsertinum var
sérstaklega ein melódía sem var svo
falleg að maður gat ekki fengið nóg
af henni. Jón hafði vit á að endurtaka
hana oft, í mismunandi útfærslum.
Gamalt en glænýtt
Annað skemmtilegt verk sem var
frumflutt á árinu var barnaóperan
Konan og selshamurinn, en tónlistin
var eftir Hróðmar I. Sigurbjörns
son og textinn eftir Ragnheiði Erlu
Björnsdóttur. Björk Níelsdóttir sópr
an var þar stjarna sýningarinnar og
tónlistin var lagræn og aðgengileg,
en samt hnyttin og spennandi. Lítið
þýðir að bjóða börnum upp á eitt
hvað ómstrítt og vírd, og hér var
tónlistin sérlega vel heppnuð.
Uppfærslan var hluti af verkaröð
inni „Gamalt en glænýtt“, þar sem
þjóðsögum er miðlað til barna með
hjálp tónskálda og textahöfunda.
Röðin er undir merkjum Töfrahurð
ar, félags um starfsemi sem er helguð
tónleikum og útgáfu. Það hefur að
markmiði að opna heim tónlistar
innar, bæði ný verk og gömul, fyrir
börnum, sem er óneitanlega göfugt.
Íslenska óperan gerði það gott
Talandi um óperur þá var Íslenska
óperan á miklu flugi á árinu. Tvær
uppfærslur, La Traviata eftir Verdi og
Brúðkaup Fígarós eftir Mozart, voru
vel heppnaðar, sérstaklega hin síð
ari. Hún fór fram í Þjóðleikhúsinu,
en langt er síðan ópera hefur verið
sett þar upp. Harpan er auðvitað
frábært tónleikahús, en sviðsupp
færslur þar eru samt takmarkaðar,
enda húsið ekki hannað fyrir slíkt.
Í Þjóðleikhúsinu er hringsviðið, og
það var notað afar hugvitsamlega í
Brúðkaupinu. Sjálfur tónlistarflutn
ingurinn var líka frábær.
Gítargoðsögn og píanóundur
Hér er nauðsynlegt að vekja athygli
á öðru merkilegu fyrirbæri í tón
listarlífinu, sem ekki hefur farið
mjög hátt. Salurinn í Kópavogi er
kannski ekki eins fyrirferðamikill
núna og áður en Harpan var opnuð,
en þar er samt athyglisverð tón
leikaröð sem er í algerum sérflokki.
Hún heitir Jazz í Salnum og byggist
á einleikstónleikum. Slíkt fyrir
komulag er fáheyrt í djassheiminum
á Íslandi, því venjulega spila menn
saman, oftast þrír eða fleiri. Í þess
ari röð fór undirritaður á tvenna
stórfenglega tónleika á árinu, með
gítargoðsögninni John Scofield og
píanóundrinu Gwilym Simcock.
Hvort tveggja var opinberun. Það
sem heyrðist var ekki bara röð af
einhverjum stand ördum með smá
útúrdúrum hér og þar. Nei, þarna
fór saman óaðfinnanleg tækni og
gríðarlegt ímyndunarafl, og fyrir
bragðið upplifði maður ferðlög um
alls konar undraheima.
Sjaldgæft andrúmsloft
Nokkrir f lottir einleikarar glöddu
áheyrendur á árinu. Víkingur Heiðar
Ólafsson, sem Deutsche Grammo
phon valdi listamann ársins, spilaði
einleikinn í tíu ára gömlum konsert
eftir Daníel Bjarnason á tónleikum
Sinfóníuhljómsveitar Íslands í haust.
Konsertinn var fallegur, en ekki síðra
var aukalagið eftir Bach. Víkingur
skapaði þar andrúmsloft sem er
sjaldgæft að upplifa á tónleikum og
skal ekki einu sinni reynt að lýsa því
hér. Tónlist er um eitthvað sem ekki
verður komið orðum að, en er um
leið ómögulegt að þegja yfir – eins
og Victor Hugo komst einu sinni svo
skemmtilega að orði.
Fiðlur og hörpur
Annar magnaður einleikari var
Joshua Bell, sem kom einnig fram í
haust, en hann er óþarfi að kynna.
Auður Hafsteinsdóttir fiðluleikari
hélt líka framúrskarandi tónleika
í vor ásamt Önnu Guðnýju Guð
mundsdóttur píanóleikara, og Elísa
bet Waage og Katie Buckley spiluðu á
sitthvora hörpuna á glæsilegum tón
leikum í mars. Ekki er oft sem tveir
hörpuleikarar troða upp saman, og
þar var m.a. flutt innblásin tónsmíð
eftir Kolbein Bjarnason. Útkoman
var eftirminnileg.
Hér er ekki pláss til að nefna allt
sem stóð upp úr á árinu, en af nógu
er að taka. Tónlistarlífið á Íslandi
er fjölbreytt og oftast skemmti
legt, mælikvarðinn er hár og hefur
hækkað mikið frá því fyrir tíu árum.
Engin ástæða er til að ætla annað en
að gaman verði líka á næsta ári, svo
óhætt er að hlakka til. Ég þakka les
endum mínum samfylgdina á árinu
og óska öllum gleðilegs árs.
Jónas Sen
Björk Níelsdóttir var stjarna í Konan og selshamurinn. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
Víkingur Heiðar skapaði sjaldgæft andrúmsloft á tónleikum. Deutsche Grammophon valdi hann sem listamann ársins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Flautukonsert Jóns Ásgeirssonar var fluttur í Hörpu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Ferðalög um undraheima
Jónas Sen gerir upp tónlistarárið 2019
2 . J A N Ú A R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R26 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING