Fréttablaðið - 02.01.2020, Síða 42

Fréttablaðið - 02.01.2020, Síða 42
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 550 5000 Ritstjórn 550 5070 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 550 5050 auglysingar@frettabladid.is Prentun Torg. ehf mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. FERSKT Á FERÐINNI * FRESH TO GO *FERSKAR NÝJUNGAR* / ÞAÐ ER BARA ÞANNIG SEM VIÐ RÚLLUM / SómaVefjur Flatbrauð, kebab kjúklingur, sósa, tómatar, kál, laukur. KJÚKLINGA *KEBAB* Flatbrauð, falafel, tómatar, jalapeno, rauðlaukur, klettasalat, tzatziki. *FALAFEL* og TZATZIKI BEST GRILLAÐ VEGAN Njóttu Þorbjargar Gunnlaugsdóttur BAKÞANKAR Til að hefja nýjan kafla þarf að ljúka öðrum. Fréttaannaálar og uppgjör álitsgjafa um þá atburði sem mörkuðu tímamót eru þess vegna mikilvægur liður í því að gera upp árið og hvað það var sem einkenndi árið sem við kvöddum, perlur ársins sem og sorgir. Klass- ískur samkvæmisleikur í nýárs- boðum er sömuleiðis að nefna stærstu atburði ársins, hvað það var sem þótti best og verst. Þar trompar dramatíkin yfirleitt hversdaginn þó hversdagurinn segi okkur kannski einmitt hina sönnu sögu af því hvar við erum stödd í lífinu og hvernig okkur vegnar og líður. Hin raun- verulega saga felst nefnilega frekar í því hvernig okkur líður þá daga sem ekki munu rata í annála ársins og við munum jafnvel ekki einu sinni sérstaklega eftir. Því fyrir þá sem ekki hafa mátt þola sára sorg á árinu eða fangað hamingjuna þá snýst tilfinningin um liðið ár mun frekar um allar litlu perlurnar og minningarnar sem voru þræddar upp á perluband ársins. Á perlu- bandið þræðum við nefnilega mun fleiri minningar en af ferðalögum, útskriftum, jólum og veisluhöldum. Ég hef hugsað til orða góðrar konu sem hefur tala um fegurð litlu perlunnar. Um hamingjuna í góðum kaffibolla að morgni, fegurðina í kyrrð bókasafnsins og gleði sam- verunnar við kæra vini sem og fjölskyldu. Og um að sjá sjarmann í heitum graut með rjómablandi. Í upphafi árs er ég með hugann við þennan sjarma og stemningu hversdagsins og litlu minninganna sem ekki munu endilega rata í annál nýja ársins. Ég deili þeirri skoðun að hamingjuna megi finna í góðum kaffibolla að morgni. Og að þegar sú perla verður þrædd á perlu- bandið muni hún með öllum hinum litlu minningunum mynda fínasta perluband gleðinnar. Perluband ársins

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.