Fréttablaðið - 14.01.2020, Page 2
Veður
Skafrenningur um allt land og
víða él en úrkomulítið á Suður- og
Vesturlandi. Heldur hægari eftir
hádegi í dag. Þurrt um landið suð-
vestanvert, rigning á Austfjörðum,
en slydda eða snjókoma norðan til.
Vægt frost, en hiti um og yfir frost-
marki. SJÁ SÍÐU 18
Life Drink var valin besta
varan í flokki náttúrulegra
bætiefna. 100% vegan og
hreint bætiefni.
Vegan
Vetur í Eyjafirði
M E N N I N G Tónsk á ld ið Hildu r
Guðnadóttir hlaut í gær tilnefningu
til Óskarsverðlaunanna fyrir tónlist
sína í kvikmyndinni Joker. Þegar
hefur Hildur unnið Golden Globe
verðlaun og fengið tilnefningu til
BAFTA-verðlauna fyrir tónlistina í
þeirri kvikmynd.
Aðrir sem fengu tilnefningu
í sama f lokki voru Alexandre
Desplat fyrir Little Women, Randy
Newman fyrir Marriage Story,
Thomas Newman fyrir 1917 og
John Williams fyrir nýjustu Star
Wars myndina. Samanlagt hafa
keppinautar Hildar hlotið 90 til-
nefningar til Óskarsverðlauna og
unnið níu sinnum.
Kvikmyndatónlistin er að þessu
sinni talinn einn jafnasti f lokkur-
inn og er Hildur talin næst sigur-
stranglegust. Gáfu sérfræðingar
henni 37 á móti 10 eða rúmlega 21
prósenta líkur. Sigurstranglegastur
var talinn Thomas Newman með
um prósenti meira. Er hinn 87 ára
Williams, talinn eiga minnstu
möguleikana.
Eftir að tilnefningarnar voru
birtar settu sumir veðbankar sama
stuðul á alla hina tilnefndu. En lík-
legt er að töluverð hreyfing verði á
stuðlunum á næstunni, sérstaklega
eftir veitingu BAFTA-verðlaunanna
þann 2. febrúar. Óskarsverðlauna-
af hendingin sjálf fer fram viku
síðar. – khg
Næstlíklegust
til að vinna
Óskarsverðlaun
Hildur Guðnadóttir. SAMSETT MYND
HEILBRIGÐISMÁL „Mér finnst að
það ætti að vera krafa að fólk sem
vinnur við sjúklingaumönnun eigi
að vera bólusett,“ segir Bryndís Sig-
urðardóttir, smitsjúkdómalæknir
á Landspítalanum, sem kveður
aðeins um 70 prósent starfsfólks
spítalans hafa verið bólusett gegn
inflúensu.
„Við erum að reyna að komast yfir
90 prósent. Mér finnst 70 prósent
vera nokkuð lágt meðal heilbrigðis-
starfsmanna. Það er alveg búið að
sýna fram á það að heilbrigðisstarfs-
fólk getur smitað sjúklinga áður en
það veikist og það á að vera bólusett
á hverju ári,“ segir Bryndís.
„Sumir bara neita,“ svarar Bryn-
dís um ástæðu þess að svo margir
úr starfsliði Landspítalans séu
óbólusettir. „Sumir segjast aldrei
fá f lensuna og sumir segjast verða
veikir af því að fá f lensubóluefni en
við vitum að flensubóluefni er dautt
efni – þú færð ekki inflúensuna af
því að fá bólusetningu.“
Að sögn Bryndísar verður þó
að hafa í huga að Landspítalinn
sé fimm þúsund manna vinnu-
staður. „Þarna er fólk sem er ekkert
endilega í tengslum við sjúklinga,“
bendir hún á.
Inf lúensan nær að jaf naði
hámarki hérlendis í lok janúar og í
byrjun febrúar. Jafnvel þótt einhver
vildi stökkva til núna og bjarga sér
fyrir horn með bólusetningu á ell-
eftu stundu þá er það ekki í boði því
bóluefni er á þrotum og ekki verður
pantað meira í vetur. Bryndís segir
Landspítalann eiga 500 skammta
eftir.
„Við erum með bóluefni fyrir
starfsfólkið okkar og þá einhverja
sjúklinga hérna á göngudeild en
almenningur úti í bæ sem er ekki
endilega tengdur göngudeildinni
eða kannski með undirliggjandi
sjúkdóm kemst ekki í bóluefni,“
segir Bryndís. Á síðustu árum hafi
bóluefnið ávallt klárast og það
finnist henni benda til þess að
panta þurfi f leiri en þá 75 þúsund
skammta sem hingað komi.
„Þannig að best er að fólk sem er
veikt með f lensu haldi sig heima,
haldi fyrir munn og nef þegar það
hnerrar og hóstar og noti hand-
spritt þegar f lensufaraldurinn
stendur sem hæst,“ segir smitsjúk-
dómalæknirinn. gar@frettabladid.is
Vill skylda spítalafólk
til að fá bólusetningu
Bóluefni gegn inflúensu er á þrotum á Íslandi og ekki á að panta meira. Aðal
inflúensutímabilið að hefjast. Aðeins 70 prósent af starfsfólki Landspítalans
eru bólusett. Smitsjúkdómalæknir segir að skylda ætti hópinn í bólusetningu.
Bryndís Sigurðardóttir segir of lítið pantað af bóluefni.FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Það er alveg búið að
sýna fram á það að
heilbrigðisstarfsfólk getur
smitað sjúklinga áður en
það veikist og það á að vera
bólusett á hverju ári.
Bryndís Sigurðardóttir, smitsjúk-
dómalæknir á Landspítalanum
Janúarsnjórinn setur nú svip sinn á höfuðstað Norðurlands jafnt og aðra staði víða um land. Upplýst Akureyrarkirkja og götuljósin vörpuðu ævin-
týralegum ljóma á umhverfi sitt og á þá sem fram hjá gengu þar síðdegis í gær. Áfram er búist við snjóatíð á landinu á næstunni. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
ÖRYGGISMÁL „Í gegn um tíðina hafa
verið brögð að því að bílum og jafn-
vel flutningabílum, hafi verið ekið
inn á skólalóð og upp að inngangi
íþróttamiðstöðvarinnar á skóla-
tíma. Það er undir engum kringum-
stæðum í boði,“ segir Þorbjörg Gísla-
dóttir, sveitarstjóri Mýrdalshrepps,
í tilkynningu á vef sveitarfélagsins.
„Á lóðinni eru börn að leik allt
niður í fimm ára gömul, öll börn
eiga að vera örugg fyrir bílaumferð á
lóð skólans sem og aðrir starfsmenn
hans,“ ítrekar Þorbjörg. Akstur á
skólalóðinni sé bannaður. – gar
Flutningabílar á
skólalóðinni
Vík í Mýrdal. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
1 4 . J A N Ú A R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð