Fréttablaðið - 14.01.2020, Page 6
40
35
30
25
20
15
10
5
2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019
✿ Fjöldi dóma sem fyrnst hafa á ári frá 2008 til 2019
Helmingi færri dómar
fyrndir í fyrra en 2017
Nýtt fangelsi á Hólmsheiði var formlega tekið í notkun 10. júní 2016. Þar er
pláss fyrir 56 afplánunarfanga og gæsluvarðhaldsfanga. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FANGELSISMÁL Refsidómum sem
fyrnast árlega hefur fækkað eftir
mikla fjölgun á eftirhrunsárunum.
Í fyrra fyrndust 16 dómar meðan
dómþoli beið afplánunar en rúm
lega helmingi fleiri dómar fyrndust
árið á undan.
„Refsingar dómstóla þyngdust
verulega á árunum í kringum
hrunið sem jók þörf á fangarýmum.
Þá var ráðist í brýna framþróun
fullnustuúrræða með breytingum
á lögum um fullnustu refsinga auk
þess sem fangarýmum hefur verið
fjölgað. Sú vinna er að skila sér í
færri fyrndum refsingum,“ segir
Páll Winkel, forstjóri Fangelsis
málastofnunar.
Páll nefnir aukna nýtingu sam
félagsþjónustu og upptöku rafræns
eftirlits sem mikilvæga viðbót við
fullnustu refsinga auk möguleika
á afplánun utan fangelsa. „Þessar
breytingar auka einnig líkurnar á
að dómþolar geti markvisst aðlagast
samfélaginu eftir afplánun sem
aftur dregur úr líkum á að viðkom
andi brjóti af sér aftur,“ segir hann.
Lítil breyting hefur orðið á fjölda
dómþola á boðunarlista fangels
anna en um nýliðin áramót biðu
552 dómþolar afplánunar en þeir
Tilnefningarnefnd Regins hf. auglýsir eftir framboðum og
tilnefningum til stjórnar Regins fyrir aðalfund félagsins sem
haldinn verður miðvikudaginn 11. mars 2020.
Nefndin starfar í umboði hluthafa og er hlutverk hennar að vera
ráðgefandi við val á stjórnarmönnum í stjórn félagsins. Við mat á
stjórnarmönnum leggur nefndin mat á hæfni hvers og eins ásamt
því að huga að samsetningu stjórnarinnar með það að leiðarljósi
að stjórnin í heild sinni búi yfir nægilegri hæfni, þekkingu og
reynslu.
Vakin er athygli á því að frestur til að skila inn framboðum til
nefndarinnar er til mánudagsins 27. janúar 2020 og skal senda
þau á netfangið tilnefningarnefnd@reginn.is
Frekari upplýsingar má finna á vefsíðu félagsins www.reginn.is/
fjarfestavefur
Tilnefningarnefnd Regins hf.
Reginn hf. / 512 8900 / reginn@reginn.is / reginn.is
AÐALFUNDUR
11. MARS 2020
voru 536 í árslok 2018 og 570 árið
þar á undan. Í svari Fangelsismála
stofnunar kemur fram að töluverður
hluti þeirra sem nú bíða afplánunar
munu geta afplánað sína refsingu
með samfélagsþjónustu. Tæplega 29
þúsund klukkustundir voru unnar í
samfélagsþjónustu í fyrra. Það jafn
gildir 3.600 vinnudögum.
Fjöldi fanga í afplánun óskilorðs
bundinna refsinga og vararefsinga
var að meðaltali 128 á síðasta ári.
Um 28 prósent þeirra voru erlendir
ríkisborgarar en þeir voru 35 að
meðaltali á dag.
adalheidur@frettabladid.is
Í fyrra fyrndust 16 refsi-
dómar meðan dómþoli
beið eftir að komast í
afplánun. Slíkum til-
vikum fer nú fækkandi
eftir gríðarlega fjölgun
á árunum eftir hrun.
Þeim sem bíða afplán-
unnar fjölgar lítillega.
Réttarhöld halda áfram í New York
Réttarhöld í máli gegn Harvey Weinstein héldu áfram fyrir sakadómi í New York í gær. Honum er gefið að sök að hafa brotið gegn fjölda kvenna á
þeim tíma sem hann var valda- og umsvifamikill kvikmyndaframleiðandi. Weinstein kvaðst saklaus af fimm ásökununum um nauðgun og kyn-
ferðisbrot í dómsal í gær. Verði hann fundinn sekur í málunum, á hann yfir höfði sér lífstíðarfangelsisdóm. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
HEILBRIGÐISMÁL „Staðan á Land
spítalanum er með öllu ólíðandi
fyrir sjúklinga, aðstandendur og
starfsfólk. Landspítalinn og heil
brigðiskerfið allt býr við langvar
andi álag, undirmönnun og fjár
svelti.“
Þetta segir í ályktun sem þing
f lokkur Samfylkingarinnar sendi
frá sér í gær. Ástandið á bráðamót
töku og öðrum deildum sé ekki vel
ferðarsamfélagi sæmandi.
Íslendingar séu eftirbátar hinna
norrænu ríkjanna þegar kemur
að fjármögnun heilbrigðiskerfis
ins og aðstöðu fyrir starfsfólk og
sjúklinga. Stjórnarflokkarnir hafi
ítrekað fellt breytingartillögur Sam
fylkingarinnar um aukin framlög til
heilbrigðismála.
Í Facebookfærslu Svandísar
Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra
er hins vegar bent á að í tíð ríkis
stjórnarinnar hafi framlög til Land
spítalans aukist ár frá ári. Alls hafi
þau aukist um 12 prósent á föstu
verðlagi og um 4,8 prósent á þessu
ári.
Staðan í heilbrigðiskerfinu verð
ur rædd á fundi velferðarnefndar
Alþingis í dag. – sar
Samfylkingin
segir fjársvelti
spítala ólíðandi
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
1 4 . J A N Ú A R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð