Fréttablaðið - 31.01.2020, Qupperneq 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 6 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 3 1 . J A N Ú A R 2 0 2 0
Rauði þráðurinn
+ www.audi.is
DÓMSMÁL Markaðsmisnotkunar
mál lykilstarfsmanna Landsbank
ans fær efnismeðferð hjá Mann
réttindadómstól Evrópu (MDE)
samkvæmt ákvörðun dómsins fyrr
í mánuðinum.
Sigurjón Árnason, fyrr ver andi
banka stjóri Lands bank ans, Ívar
Guðjóns son, f y r r verandi for
stöðumaður eig in f jár fest inga
bank ans, og Sindri Sveins son, fyrr
verandi starfsmaður eig in fjár fest
inga bankans, voru allir dæmdir til
fangelsisrefsingar fyrir markaðs
misnotkun með dómi Hæstaréttar
í febrúar 2016.
Þeir vísuðu málinu til Mannrétt
indadómstóls Evrópu sem hefur
úrskurðað um meðferðarhæfi mál
anna. Líkt og nokkur fjöldi annarra
svokallaðra hrunmála komst málið
í gegnum nálaraugað í Strassborg
en mjög lítill hluti kæra fær efnis
meðferð hjá dóminum.
Hefur dómurinn beint spurn
ingum til íslenska ríkisins um mál
kærendanna þriggja sem byggja
á því að brotið hafi verið á rétti
þeirra til réttlátrar málsmeðferðar
og að mál þeirra hafi ekki verið
dæmd af óvilhöllum dómstól vegna
f járhagslegs taps sem tilteknir
dómarar við Hæstarétt urðu fyrir
við fall bankanna.
Er meðal annars á því byggt að
þeir dómarar við Hæstarétt, sem
áttu hlutabréf í Landsbankanum
og urðu fyrir tjóni við fall bankans,
hefðu átt að víkja sæti í málinu
vegna vanhæfis.
Óskar dómurinn eftir svörum frá
ríkinu um fjárhagslega hagsmuni
dómaranna Eiríks Tómassonar,
Markúsar Sigurbjörnssonar og
Viðars Más Matthíassonar í ein
hverjum hinna föllnu banka þegar
þeir atburðir gerðust sem leiddu
til málaferla og að lokum sakfell
ingar Sigurjóns, Ívars og Sindra.
Umræddir dómarar eru allir komn
ir á eftirlaun.
Eins og Fréttablaðið hefur áður
greint frá eru mál um meint van
hæf i dómara við Hæstarétt í
málum fyrrverandi eigenda og
lykilstarfsmanna úr öllum föllnu
bönkunum þremur komin til efnis
meðferðar hjá MDE.
Málin eru nú orðin fjögur og
varða meint vanhæfi sex hæsta
réttardómara sem dæmdu umrædd
mál hér heima. Einn þeirra, Markús
Sigurbjörnsson þá forseti Hæsta
réttar, sat í dómi í þeim öllum. – aá
MDE tekur mál Sigurjóns fyrir
Mannréttindadómstóll Evrópu tekur markaðsmisnotkunarmál þriggja stjórnenda Landsbankans til
efnismeðferðar. Spurningum beint til íslenska ríkisins um hlutabréfaeign þriggja dómara við Hæstarétt.
Dómstóllinn skoðar nú
fjögur mál sem varða meint
vanhæfi sex dómara við
Hæstarétt.
Um átta hundruð manns mættu á baráttufund BSRB, Bandalags háskólamanna og Félags hjúkrunarfræðinga sem haldinn var í Háskólabíói í gær. Opinberir starfsmenn hafa verið með lausa
kjarasamninga í tíu mánuði og virtust fundarmenn sammála um að þolinmæðin væri á þrotum. Formaður BSRB segir skilaboð félagsmanna um aðgerðir skýr. Sjá síðu 4 FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HEILBRIGÐISMÁL Alþjóðaheilbrigð
ismálastofnun lýsti í gærkvöld yfir
neyðarástandi á heimsvísu vegna
kórónaveirunnar. Um átta þúsund
manns hafa smitast af veirunni sem
á upphaf sitt að rekja til Wuhan í
Kína. Um 170 manns hafa látist.
Áhrif veirunnar eru margvísleg.
Hefur Rússland lokað landamær
unum að Kína og nokkur flugfélög
hafa fellt niður flug til þangað. Hætt
hefur verið við ýmsar fjöldasam
komur í Kína. – ab, bdj / sjá síðu 8
Neyðarástand á
heimsvísu
Í Wuhan-borg. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP