Fréttablaðið - 31.01.2020, Qupperneq 2
Gert er ráð fyrir að
viðbótarframkvæmdirnar
kosti 50 milljónir.
Veður
Norðlæg átt 5-13 m/s. Snjókoma
með köflum um landið norðan-
vert, en léttskýjað að mestu
syðra. Norðan 8-15 og bætir í
ofankomu norðanlands síðdegis.
SJÁ SÍÐU 20
Spilað í Hörpu
Adólf Sigurgeirsson missti hús í gosinu í Heimaey. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
SAMFÉLAG Eftir eldgosið í Vest-
mannaeyjum árið 1973 f lutti all-
nokkur hópur Eyjamanna til
Grindavíkur og hóf þar nýtt líf. Einn
af þessum brottfluttu Eyjamönnum
er Adólf Sigurgeirsson sem nú er 89
ára gamall. Hann missti húsið sitt
í Vestmannaeyjum í hamförunum
á sínum tíma en fjölskyldunni var
tekið opnum örmum í sjávarplássi
suður með sjó, Grindavík.
„Okkur var fyrst tjáð að það væri
ekkert húsnæði laust í Grindavík.
Síðan fréttist að ég væri járnsmiður
og þá var fjölskyldunni þegar útveg-
uð íbúð og mér var tjáð að ég fengi
aldrei að yfirgefa Grindavík,“ segir
Adólf kíminn. Sú ráðstöfun stóð
stutt yfir og skömmu síðar var fjöl-
skyldunni úthlutað húsi í bænum.
Þar hefur Adólf búið síðan og unir
hag sínum vel.
„Mér hefur alltaf liðið vel í
Grindavík. Kannski er það vegna
þess að Grindavík er sama rokrass-
gatið og Vestmannaeyjar. Ég kann
vel að meta rokið,“ segir Adólf.
Hann rifjar upp að fjölskyldan
hafi ekki fyrr komið sér fyrir í
Grindavík en að miklar jarðhrær-
ingar urðu á svipuðum slóðum og
nú. „Okkur brá illilega enda var
skammt liðið frá hamförunum sem
við upplifðum í Eyjum,“ segir Adólf.
Hann segist hafa rokið til og klætt
sig í sparifötin sem hafði vakið
furðu eiginkonu hans og þá hafi
hann tjáð henni að í þetta skiptið
ætlaði hann að flýja með reisn.
Adólf segir að jarðhræringarnar
nú séu sannarlega óþægilegar en að
hann óttist þó ekkert.
„Ég verð ekki hræddur en ég upp-
lifi helst einmanaleika. Ég missti
konuna mína fyrir tveimur árum
og það er skrítið að vera einn og
hafa engan til að ræða við um þessa
atburði,“ segir Adólf.
Hann segir að pólskir nágrann-
ar hans bjargi þó miklu. „Þetta eru
vinir mínir og úrvalsfólk í alla staði.
Þau vilja allt fyrir mig gera,“ segir
Adólf.
Ef eldgos hefst við Grindavík er
Adólf með áætlun á reiðum hönd-
um. „Þá bruna ég til Þorlákshafnar
og sigli aftur til Vestmannaeyja.
Loka hringnum,“ segir hann og
hlær. bjornth@frettabladid.is
Hyggst flýja með reisn
úr Grindavík til Eyja
Adólf Sigurgeirsson flúði Vestmannaeyjar í eldgosinu 1973 og settist að í
Grindavík. Jarðhræringarnar nú vekja ljúfsárar minningar en skjóta Adólf
ekki skelk í bringu. Ef gýs hyggst hann loka hringnum og flýja aftur til Eyja.
Ég missti konuna
mína fyrir tveimur
árum og það er skrítið að
vera einn og hafa engan til
að ræða við um þessa
atburði.
Adólf Sigurgeirsson í Grindavík
REYKJAVÍK Smíða á nýjan þakglugga
á Fossvogsskóla og ósonhreinsa
heimilisfræðistofuna. Þetta kemur
fram í tilkynningu frá Ingibjörgu
Ýri Pálmadóttur skólastjóra til for-
eldra.
Líkt og Fréttablaðið greindi frá
um helgina hefur borið á leka og
myglu þrátt fyrir að farið hafi verið
í framkvæmdir í fyrra til að upp-
ræta myglu. Alls kostuðu þær fram-
kvæmdir 420 milljónir króna.
Þakglugginn í miðrými vestur-
byggingar skólans lekur, verður
byggt yfir gluggann þangað til
nýjum verður komið fyrir í vor.
Búið er að tæma geymslu í kjallara
byggingarinnar sem ekki var tæmd
í framkvæmdunum í fyrra. Þar er
búið að slípa af málningu og þrífa
með þar til gerðum hreinsiefnum.
Allt rýmið í heimilisfræðistof-
unni hefur verið endurnýjað nema
eldhúsinnréttingin. Segir Ingibjörg
að þar séu engin merki um leka eða
rakavandamál. Þrátt fyrir það var
ákveðið að ósonhreinsa allt rýmið.
Er um að ræða hreinsun sem
tekur tvo til þrjá daga. Að því loknu
verður metið hvort það hafi skilað
tilætluðum árangri.
Í svari Reykjavíkurborgar segir
að gert sé ráð fyrir að viðbótarfram-
kvæmdirnar komi til með að kosta
50 milljónir króna. – ab
Ósonhreinsun
í Fossvogsskóla
Skólinn var rýmdur að hluta í fyrra.
VERÐ FRÁ 119.900 KR.
Á MANN M.V. TVO FULLORÐNA & TVÖ BÖRN
ALMERÍA 29. MAÍ - 5. JÚNÍ
NÁNAR Í SÍMA 585 4000 EÐA Á UU.IS
VIÐSKIPTI Íslandspóstur stundar
undirverðlagningu á pakkaf lutn-
ingum og sendibílaþjónustu innan-
lands að sögn Ólafs Stephensen,
framkvæmdastjóra Félags atvinnu-
rekenda. Í grein á frettabladid.is í dag
gerir Ólafur ítarlegan samanburð á
gjaldskrá Íslandspósts og landflutn-
ingafyrirtækja.
Þá hafi gjaldskrá pakkasendinga
hjá Póstinum lækkað um áramótin.
„Vaknar sú spurning hvort hjá
ríkisfyrirtækinu sé einhver rekstrar-
snilld í gangi sem gerir því kleift að
bjóða svona hagstætt verð, byggt á
raunkostnaði við þjónustuna,“ segir
Ólafur. Líklega lendi tapið á skatt-
greiðendum. – ab / sjá frettabladid.is
Rekstrarsnilld
hjá Póstinum
Ólafur Stephen-
sen, fram-
kvæmdastjóri
Félags atvinnu-
rekenda.
Reykjavík Bridge Festival hófst í Hörpunni í gærkvöldi. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, sagði fyrstu sögnina við opnun-
arathöfn hátíðarinnar sem stendur fram á sunnudag. Jafet Ólafsson, forseti Bridgesambands Íslands, fylgdist grannt með. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
3 1 . J A N Ú A R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð