Fréttablaðið - 31.01.2020, Síða 4
Sogavegi 3 • Höfðabakka 1 • Sími 555 2800
Whilst every effort is made to avoid mistakes errors can occur. Please check these
carefully. Proofs that are sent back without signature is considered approved and ok.
Approved and OK New proof please
DATE:
SIGNATURE:
/Ingenjörsgatan 7-9
Box 814, 251 08 Helsingborg
Tel. vx. 042-24 73 00
info@lindsflexo.se, www.lindsflexo.se
14
0
280
Linds Flexo, 1310144 Fiskikongurinn_KORR , 17-JAN-13 YTTER catarina
OPIÐLAUGARDAG
10-15
HUMARSÚPA
STÓR HUMAR
Patreksskóli er sagður vera vettvangur meints eineltis sveitarstjórnarfulltrúa í Vesturbyggð. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
VESTURBYGGÐ Tveir starfsmenn,
menntaður kennari og leiðbein-
andi, sögðu upp vegna meints ein-
eltis innan Patreksskóla í fyrra.
Kennarinn hóf störf haustið 2018
en sagði upp í apríl 2019. Leiðbein-
andinn lét af störfum í nóvember
í fyrra en þá hafði eineltið beinst
gegn honum eftir að hann steig
fram ásamt hópi samstarfsfólks
og mótmælti framkomu meints
geranda.
Hinn meinti gerandi er María
Ósk Óskarsdóttir, leiðbeinandi í
skólanum og sveitarstjórnarfull-
trúi í Vesturbyggð. Þar situr hún
í meirihluta sveitarstjórnar fyrir
hönd Nýrrar sýnar sem felldi meiri-
hluta Sjálfstæðisflokksins í síðustu
sveitarstjórnarkosningum.
Málið tengist erjum innan fjöl-
skyldu María Óskar og kennarans.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðs-
ins er María Ósk sökuð um að hafa
tekið deilurnar inn á vinnustaðinn
og gert starfsaðstæður kennarans
þannig óbærilegar.
Í samtali við Fréttablaðið vísar
María Ósk ásökununum á bug.
Kveðst hún ekki vilja tjá sig um
málið.
Ástandið varð svo slæmt að fimm
manna hópur annarra kennara og
leiðbeinenda fór á fund félagsmála-
stjóra Vesturbyggðar og kvartaði
undan framkomu Maríu Óskar í
garð kennarans. Áður höfðu fimm-
menningarnir kvartað við trúnað-
armann innan skólans.
Ekki var gripið til neinna aðgerða
og eftir að kennarinn sagði upp
taldi leiðbeinandi í hópi fimm-
menninganna að María Ósk hefði
beint spjótum sínum að sér. Fljót-
lega hefðu vinnuaðstæður við-
komandi orðið óboðlegar og sagði
viðkomandi upp störfum þegar
nokkrir mánuðir voru liðnir á
haust önn síðasta árs.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins eru starfsmennirnir ósátt-
ir við aðgerðaleysi skólastjórnenda
og sveitarfélagsins. Eftir langa bið
var kennarinn boðaður í viðtal hjá
eineltisteymi bæjarfélagsins og
sömuleiðis meintur gerandi, María
Ósk. Langan tíma tók að vinna úr
málinu en þegar skýrslan leit loks
ljós var niðurstaðan skýr.
„Niðurstaða skýrslunnar er sú
að skjólstæðingur minn hafi verið
beittur einelti á vinnustað,“ segir
Sigurður Freyr Sigurðsson, lög-
maður kennarans.
Sigðurður Freyr staðfestir enn
fremur að kennarinn hyggist leita
réttar síns gagnvart Vesturbyggð.
arib@frettabladid.is
Hyggst leita réttar síns vegna
eineltis sveitarstjórnarmanns
Kennari og leiðbeinandi hrökkluðust úr starfi vegna meints eineltis í Patreksskóla í Vesturbyggð. Málið
er afar viðkvæmt innan sveitarfélagsins. Meintur gerandi situr í meirihlutanum í sveitarstjórn. Lögfræð-
ingur kennarans segir niðurstöðu eineltisteymis Vesturbyggðar vera þá að um einelti hafi verið að ræða.
Niðurstaða skýrsl-
unnar er sú að skjól-
stæðingur minn hafi verið
beittur einelti á vinnustað.
Sigurður Freyr
Sigurðsson, lög-
maður kennara á
Patreksfirði
Fáðu Fréttablað dagsins í
tölvupósti kl. 3.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista blaðsins á
www.frettabladid.is#nyskraning
Það kostar ekkert.
UMHVERFISMÁL Guðmundur Ingi
Guðbrandsson, umhverfis- og auð-
lindaráðherra, undirritaði í gær frið-
lýsingu hluta Þjórsárdals sem lands-
lagsverndarsvæðis.
„Þetta er mjög gott dæmi um
hvernig megi beita friðlýsingum sem
aðferð við að stýra álagi ferðamanna
á náttúruperlur okkar,“ er haft eftir
Guðmundi Inga í tilkynningu frá
ráðuneyti hans.
Innan friðlýsta svæðisins eru þrír
staðir sem samhliða eru friðlýstir
sem náttúruvætti; Gjáin, Háifoss og
Granni og Hjálparfoss, að því er segir
í tilkynningunni. Þetta sé fyrsta frið-
lýsing í friðlýsingarflokki landslags-
verndarsvæða á Íslandi.
„Gjáin hefur verið vinsæll ferða-
mannastaður og er helsta aðdrátt-
araflið lítt röskuð náttúra og frið-
sæld. Háifoss, Granni og Stöng eru
einnig fjölsóttir ferðamannastaðir í
Þjórsárdal. Friðlýsingunni er ætlað
að varðveita sérkenni og einkenni
landslagsins, fagurfræðilegt og
menningarlegt gildi þess,“ segir í
tilkynningunni. Halda eigi hefð-
bundnum nytjum við því þær séu
forsenda þess að varðveita einkenni
landslagsins.
Þá kemur fram að friðlýsingin hafi
verið unnin í samstarfi við Skeiða-
og Gnúpverjahrepp og forsætisráðu-
neytið. Eftir að friðlýsingarferlið
hófst hafi verið lagður aukinn kraft-
ur í umönnun svæðisins og eftirlit.
„Og var landvarsla því í fyrsta skipti
á svæðinu frá sumarbyrjun til loka
nóvember í fyrra.“ – gar
Þrír staðir í Þjórsárdal friðlýstir í gær
Undirritun friðlýsingarinnar fór fram í Árnesi. MYND/UMHVERFISRÁÐUNEYTIÐ
REYKJAVÍK Helga Björk Laxdal, skrif-
stofustjóri borgarstjórnar, kannast
ekki við ósætti við Hollvinasamtök
Elliðaárdalsins um myndaval við
undirskriftasöfnun samtakanna.
Í skilaboðum sem Helga Björk
sendi í gengum almannatengil
borgarinnar segir hún að allt sam-
starf vegna undirskriftasöfnunar-
innar hafi gengið vel. Myndaval
samtakanna hafi ekki sýnt rétta
afstöðu reitsins. Hún hafi þá boðist
til að útbúa nýja mynd í réttum hlut-
föllum sem samtökin hafi þegið með
þökkum.
Halldór Páll Gíslason, formaður
Hollvinasamtakanna, segir hins
vegar að hann kannist ekki við að
vera sáttur.
Yfirlitsmyndir af Elliðaárdal víxl-
uðust á síðu 6 í blaðinu í gær. Myndin
til hægri átti að vera til vinstri og
öfugt. – ab
Kannast ekki
við ósætti
Maðurinn sem lenti í snjóf lóðinu
við Móskarðshnúka á miðvikudag
er látinn. Þetta kemur fram í til-
kynningu frá lögreglunni. Hann hét
Sigurður Darri Björnsson og var 23
ára, til heimilis í Hafnarfirði.
Sigurður Darri var f luttur með
þyrlu Landhelgisgæslunnar á Land-
spítala en var úrskurðaður látinn
við komuna þangað.
Lögreglan fékk tilkynningu um
að þrír menn hefðu lent í snjóflóði
við Móskarðshnúka um klukkan
hálf eitt í fyrradag og voru allir til-
tækir viðbragðsaðilar kallaðir út
til leitar. Sigurður Darri fannst um
tveimur tímum síðar.
Lést í snjóflóði
KJARAMÁL „Ef okkur miðar ekkert
áfram í kjarasamningunum þá er
alveg skýr krafa frá okkar fólki um
að það verði gripið til aðgerða, sem
eru verkföll og það skýrist á næstu
dögum hvað við höfum í hyggju,“
segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, for-
maður BSRB.
BSRB, Bandalag háskólamanna
og Félag íslenskra hjúkrunarfræð-
inga boðuðu til baráttufundar fyrir
félagsmenn sína í Háskólabíói í gær.
Fundinum var streymt víða um land
og var krafa fundarins að opinberir
launagreiðendur gangi þegar í stað
til kjarasamninga við starfsfólk sitt.
Kjarasamningar opinberra starfs-
manna hafa verið lausir í tíu mánuði,
eða frá 1. apríl 2019.
„Núna erum við að segja hingað
og ekki lengra. Við verðum að klára
þetta, okkar fólk getur ekki beðið
lengur eftir kjarabótum og ef það
kemur ekki þungi í kjaraviðræðurn-
ar þá verður gripið til aðgerða,“ segir
Sonja. „Skipulagið er klárt, það bara
tekur sinn tíma að boða til atkvæða-
greiðslna. Við erum að horfa á sam-
stilltar aðgerðir sem við viljum bera
undir okkar félagsmenn,“ bætir hún
við.
Sonja segir mikla samstöðu hafa
ríkt á fundinum og að félögin sem að
honum stóðu hafi verið ánægð með
hvernig til tókst. Um 800 manns
mættu á fundinn. „Það eru allir und-
irbúnir í þetta. Nú er bara spurning
um það hvort kröfum okkar verður
mætt af alvöru eða hvort það verði
áfram þessi seinagangur í viðræð-
unum líkt og við höfum upplifað
síðustu tíu mánuði.“ – bdj
Skýr krafa um aðgerðir ef ekkert miðar að sögn formanns BSRB
Sonja Þorbergsdóttir, formaður BSRB, í ræðustóli í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
3 1 . J A N Ú A R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð