Fréttablaðið - 31.01.2020, Side 10
Frá degi til dags
Halldór
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Jón Þórisson jon@frettabladid.is,
MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is
LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Hörður
Ægisson
hordur@frettabladid.is
Forystufólki
Eflingar
hefur tekist,
með snjöll-
um og vel
útfærðum
hætti, að
taka sér
dagskrár-
valdið.
Stjórnsýsla
sveitarfélaga
eflist,
tækifæri
skapast til
að bæta
þjónustu og
geta þeirra
að berjast
fyrir hags-
muna-
málum
íbúanna
eykst.
Gæði og glæsileiki
endalaust úrval af hágæða flísumFlísabúðin
Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is
Gæði og glæs
ileiki endalaust
úrval af hágæ
ða flísum
Finndu okkur
á facebook
Eru öll ljósin kveikt? Stundum mætti halda ekki. Óþarfi er að fjölyrða um kröfugerð Eflingar gagnvart Reykjavíkurborg. Þær kröfur, sem virðast óumsemjanlegar, fela í sér heildarlauna-hækkanir sem eru tvöfalt hærri – um 180 þúsund
á mánuði – en um hefur verið samið við nánast allt
starfandi fólk á almennum markaði á grunni Lífskjara-
samningsins. Það þýðir, eins og sýnt var fram á í úttekt
Markaðarins í vikunni, að launamunur á milli ófaglærðs
og háskólamenntaðs starfsfólks á leikskólum borgarinnar
mun minnka verulega og verða í sumum tilfellum nær
enginn og jafnvel snúast við. Þá verða dagvinnulaun leik-
skólaliða, sem eiga að baki um tveggja ára nám á fram-
haldsskólastigi, nánast þau hin sömu og hjúkrunarfræð-
inga og iðjuþjálfa. Dettur einhverjum í hug að það yrði
samfélagslega samþykkt að gera háskólamenntun þeirra
stétta – og annarra – í reynd verðlausa? Auðvitað ekki.
Viðbrögð Eflingar hafa verið fyrirsjáanleg. Félagið
hefur ekki gert minnstu tilraun til að leiðrétta meintar
rangfærslur heldur hefur farið þá leið, eins og oft áður, að
skjóta sendiboðann. Fullyrðingar um að kröfurnar séu
alls ekki til þess fallnar að valda höfrungahlaupi, þar sem
aðrar stéttir fylgja í kjölfarið og fara fram á sambærilegar
launahækkanir, eru með eindæmum ósvífnar í ljósi þess
sem sýnt hefur verið fram á hvað felist í reynd í kröfum
félagsins. Sú leið, að ætla að sækja mun meiri kjarabætur
til ákveðins hóps launafólks, án eftirmála er fullreynd.
Standi vilji til þess, eins og allir eru sammála um, að bæta
kjör þeirra lægst launuðu væri nærtækara að biðla til
Reykjavíkurborgar um markvissar aðgerðir á húsnæðis-
og leigumarkaði sem kæmu þeim hópi hvað best.
Forystufólki Eflingar hefur tekist, með snjöllum og
vel útfærðum hætti, að taka sér dagskrárvaldið. Flestir
fjölmiðlar spila með í meðvirkni sinni, mögulega af ótta
við viðbrögðin að öðrum kosti úr herbúðum stéttar-
félagsins. Það sama á við um háskólamenn sem veigra
sér margir við því að stíga fram og útskýra, sem þeir
ættu að gera þekkingar sinnar vegna og í raun skyldu,
afleiðingarnar fyrir vinnumarkaðinn ef orðið verður við
kröfum Eflingar. Á meðan spilar meirihluti stjórnmála-
manna á stundarvinsældir. Allir sem ekki bugta sig og
beygja gagnvart málflutningi Eflingar, sem sagan hefur
sýnt að er hættulegur og elur á sundrung í samfélaginu,
eru umsvifalaust skilgreindir sem hluti af einhverjum
efnahagslegum forréttindahópi og ómarktækir sem slíkir
– óvinir fólksins. Byltingarfólkið í Eflingu fær því sitt fram
og einokar umræðuna án mikillar mótspyrnu.
Það hefur enginn haldið því fram, ólíkt því sem Efling
fullyrðir í áróðursstríði sínu, að félagið hafi ekki sjálf-
stæðan samningsrétt og sé bundið af Lífskjarasamn-
ingnum. Efling, ásamt öllum helstu verkalýðsfélögum
landsins, stóð hins vegar að þeim samningi, sem það kaus
að túlka sem „tímabundið vopnahlé“, sem hefur í flestum
meginatriðum heppnast eins og lagt var upp með. Hann
tók meðal annars mið af versnandi efnahagsástandi,
og þá um leið litlu svigrúmi fyrirtækja til að taka á sig
mikinn launakostnað, og það skyti því skökku við ef hin
sömu stéttarfélög teldu sig nú vera í þeirri stöðu – þegar
niðursveiflan ætlar að reynast dýpri og langvinnari – að
sækja langtum meiri launahækkanir til hins opinbera.
Við vitum flest, fyrir utan kannski Eflingu, hvernig það
endar. Það er því til mikils að vinna fyrir hagsmuni alls
launafólks að koma í veg fyrir þá niðurstöðu.
Meðvirkni
Írónía
Gunnlaugur Ingvarsson, for-
maður Frelsisflokksins, upplýsti
á Útvarpi Sögu að hann og Har-
aldur Ólafsson, formaður Heims-
sýnar, ætluðu ásamt reytingi úr
félagatali samtakanna í Brexit-
gleðina í London undir leiðsögn
Halls Hallssonar, sem hann sagði
sérfræðing í ESB og breskum
stjórnmálum. Þessi sérþekking
endurspeglast til dæmis í Váfugli,
pólitískum spennutrylli hans um
útgöngu Íslands úr stórríki Evr-
óníu. Þegar bókin kom út í ensku
þýðingunni Vulture’s Lair kynnti
Hallur hana einmitt í húsa-
kynnum breska þingsins þangað
sem hann mun nú væntanlega
leiða íslensku farfuglana.
Váflug
Lítil hætta er á að Brexit muni
valda íslensku gleðilestinni
vandræðum í vegabréfaeftir-
litinu þar sem Bretar voru aldrei
aðilar að Schengen og Guðlaugur
Þór Þórðarson utanríkisráð-
herra hefur undirritað samning
sem heldur samskiptum
ríkjanna í sömu skorðum í bili.
Breytir því ekki að leyniþjón-
usta Breta er öflug og hefur góðar
gætur á hugsanlegum óvinum
ríkisins og gæti átt einhverjar
skýrslur um ljót orð sem sumir
ferðalanganna létu falla um
heimsveldið breska í Icesave-
deilunni en þar lét fararstjórinn
Hallur ekki sitt eftir liggja og
g ti James Bond því átt sitthvað
vantalað ið hann.
toti@frettabladid.is
Þau ánægjulegu tíðindi komu frá Alþingi í vikunni að búið væri að samþykkja tillögu ríkisstjórnar-innar að tillögu til þingsályktunar um stefnu-
mótun í málefnum sveitarfélaga. Stefnumótunin, sem
er hin fyrsta sinnar tegundar á Íslandi, hefur verið
lengi í undirbúningi og víðtækt samráð farið fram
um allt land. Á aukalandsþingi Sambands íslenskra
sveitarfélaga í haust var samþykkt með afgerandi
meirihluta að lýsa yfir stuðningi við tillöguna og þá
framtíðarsýn og áherslur sem í henni felast.
Vissulega eru skiptar skoðanir um einstakar aðgerð-
ir, ekki síst varðandi ákvæði um lágmarksfjölda íbúa,
sem verður 250 frá almennum sveitarstjórnarkosn-
ingum 2022 og 1.000 fjórum árum síðar. Sum minni
sveitarfélög hafa sett fyrirvara og lagt áherslu á að vilji
íbúa eigi að ráða för. Það kom t.d. mjög vel fram á fjöl-
mennum íbúafundi sem ég sótti á Grenivík í vikunni.
Þar hefur byggst upp blómlegt samfélag þar sem íbúar
njóta góðrar þjónustu og búa við atvinnu öryggi. Það
eru ýmsar leiðir til að tryggja að svo verði en umfram
allt er það að mestu í höndum íbúanna sjálfra.
Stefnumörkuninni er að sjálfsögðu ekki beint gegn
einstökum sveitarfélögum heldur felur hún í sér
heildarsýn fyrir allt landið um eflingu sveitarstjórnar-
stigsins með ýmsum aðgerðum. Það stendur ekki til að
sameina samfélög eða byggðarlög – þau verða áfram
til og vonandi blómleg og fjölbreytt. Sveitarfélög hafa
síðan góðan tíma til að ákveða á lýðræðislegan hátt
hvernig lágmarksviðmiðum verður náð og því fylgir
mikill fjárhagslegur stuðningur úr Jöfnunarsjóði
sveitarfélaga.
Ég tel þessa stefnumörkun vera eitt mesta umbóta-
verkefni í opinberri stjórnsýslu sem um getur. Stjórn-
sýsla sveitarfélaga eflist, tækifæri skapast til að bæta
þjónustu og geta þeirra til að berjast fyrir hagsmuna-
málum íbúanna eykst. Nýtt og öflugra sveitarstjórnar-
stig verður til. Nú þegar þessi ánægjulegu tíðindi liggja
fyrir hefst vinna í ráðuneytinu við að útfæra einstakar
aðgerðir stefnumótunarinnar, meðal annars varðandi
lágmarksíbúafjölda og í þeirri vinnu verður áfram haft
náið og gott samráð við sveitarstjórnarstigið.
Mikil tíðindi
Sigurður Ingi
Jóhannsson
samgöngu- og
sveitarstjórn-
arráðherra
3 1 . J A N Ú A R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R10 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN