Fréttablaðið - 31.01.2020, Page 16
Það á að bæta
einhverju við bæði í
opnunarhátíðina og við
lokakvöldið.
Hafþór Barði Birgisson,
íþrótta- og tómstundafulltrúi
Allar upplýsingar veita
Helga Pálsdóttir lögg. fasteignasali
Sími 822 2123 helga@fastlind.is
Þorsteinn Yngvason lögg. fasteignasali
Sími 696 0226 thorsteinn@fastlind.is
Bjarkardalur 4-6 Reykjanesbæ
NÝJAR, FULLBÚNAR vandaðar 3 herbergja íbúðir með bílskúr.
Tvær stærðir: 108,4m2 og 130,3m2. Verð frá 44,9 milljónum.
20 mínútna akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu.
Íbúðirnar eru einstaklega vandaðar og skilast með gólfefnum
á öllum rýmum, fallegum innréttingum, ísskáp m. frysti,
uppþvottavél og smekklegri lýsingu frá Lumex.
NÝTT Í SÖLU!
ÍÞRÓTTIR Íþrótta- og tómstundaráð
Reykjanesbæjar gat ekki veitt sund-
fólki úr bænum styrk upp á 300 þús-
und til að það gæti gert atlögu að því
að komast meðal annars á Ólympíu-
leikana í Tókýó. Ráðið veitti þó 500
þúsund króna styrk til að Nettó-
mótið í körfubolta gæti haldið veg-
legt lokakvöld en mótið er 30 ára í ár.
Tölvan sagði einfaldlega nei.
Már Gunnarsson, ein stærsta
íþróttastjarna landsins og handhafi
Kristalkúlunnar, er mjög líklegur til
árangurs á Ólympíuleikum fatlaðra.
Hann hefur verið í frábæru formi
að undanförnu, sló til að mynda tíu
Íslandsmet á heimsmeistaramóti
fatlaðra í sundi í september. Sund-
ráð Íþróttabandalags Reykjanesbæj-
ar vildi styrkja Má í undirbúningi
hans fyrir Evrópumeistaramótið í
50 metra laug og Ólympíuleikana
ásamt þeim Karen Mist Arngeirs-
dóttur og Evu Margréti Falsdóttur
en báðar stefna þær hátt og eru titl-
aðar afrekssundmenn innan ÍRB.
Reglur íþrótta- og tómstundaráðs
eru þó þannig að æfingaferðir falla
ekki undir reglur sjóðsins og fengu
þau því synjun.
Það voru þó til 500 þúsund krónur
til að styrkja 30 ára afmælismót eins
stærsta körfuboltamóts landsins á
sama fundi. Í bréfi til ráðsins segir
að mótið hafi gengið vel, það sé
haldið með góðum styrk frá Nettó
og Reykjanesbær hafi lánað út öll
íþróttamannvirki, sem og grunn-
skóla til gistingar fyrir iðkendur
en um 1.300 frá 25 liðum mættu á
síðasta mót.
Fjölmörg önnur fyrirtæki í
Reykjanesbæ komi einnig að mótinu
með beinum og óbeinum styrkjum.
Gríðarleg sjálf boðavinna fer fram
í kringum mótið við undirbúning,
dómgæslu, mótstjórn, aðstöðu- og
veitingamál og hefur allur ágóði
runnið beint í barna- og unglinga-
starf Keflavíkur og Njarðvíkur. Það
sé mikilvæg tekjulind fyrir starfið.
Til að gera mótinu hátt undir
höfði, sem glæsilegast og veglegast,
þarf mótið fjárstyrk og veitti ráðið
því 500 þúsund krónur og kallaði
það afmælisgjöf. „Það á að bæta ein-
hverju við bæði í opnunarhátíðina
og við lokakvöldið,“ segir Haf þór
Barði Birgisson, íþrótta- og tóm-
stundafulltrúi. Eva Stefánsdóttir,
formaður ráðsins, baðst undan
svörum í síma, vildi fá spurningar í
tölvupósti.
Ómar Jóhannsson, formaður
sundráðs ÍRB, segir synjunina vissu-
lega vonbrigði því það sé vilji til að
gera vel við afreksfólk á Ólympíuári.
„Þetta eru sterkir sundmenn og eru
að vinna til verðlauna og gera frá-
bæra hluti. Okkur langaði að fara
þessa ferð því árangur kostar sitt.“
Ómar ítrekar að hann sé ánægður
með að Nettómótið fái styrk enda
sé Reykjanesbær titlaður íþróttabær
og sundráðið eigi í góðu samstarfi
við bæjaryfirvöld.
benediktboas@frettabladid.is
Fá ekki styrk til að æfa sig fyrir ÓL
Þrír afrekssundmenn í Reykjanesbæ fengu ekki 300 þúsund króna styrk frá bænum því æfingaferðir falla ekki undir reglur styrkt-
arsjóðsins. Á sama fundi var hálf milljón veitt í afmælisgjöf til að bæta í opnunarhátíð og lokakvöld á Nettómótinu í körfubolta.
Már Gunnarsson er talinn líklegur til afreka í Tókýó. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Nettómótið fékk afmælisgjöf frá Reykjanesbæ upp á 500 þúsund til að halda glæsilegt lokakvöld.
Tímamót í bænum
Íþrótta- og afrekssjóður
Reykjanesbæjar samþykkti
undir lok síðasta árs að upp-
hæð fyrir hverja ferð sem farin
er til útlanda á vegum landsliðs
hækkaði úr 20 þúsund krónum í
40 þúsund en alls fengu 183 að-
ilar styrk úr sjóðnum á síðasta
ári. „Æfingaferðir falla ekki
undir reglur sjóðsins en ef þau
komast á Ólympíuleikana eða
NM eða mót sem eru styrkhæf
þá gengur það yfirleitt smurt,“
segir Hafþór.
Á þriðjudag var skrifað undir
samstarfssamning Reykjanes-
bæjar, Keflavíkur og Njarð-
víkur. Um er að ræða tímamóta-
samning en með honum verður
íþróttafélögunum gert kleift
að ráða íþróttastjóra til starfa.
„Heildarvirði samningsins er um
50 milljónir og það er frábært
að geta styrkt þessi góðu félög
enda er það dýrt að reka þau.
Við erum að stíga mikilvægt
skref í að aðstoða þau og léttir
vonandi undir,“ segir Hafþór og
bætir við að loksins sjái til lands
eftir erfiða tíð suður með sjó.
FÓTBOLTI Síðasti dagur enskra
félagsliða til að styrkja leikmanna-
hópinn fyrir átökin fram undan er
í dag. Janúarfélagaskiptaglugginn
lokast í kvöld og má búast við að lið
verði allt fram á síðustu stundu að
leita að liðsstyrk.
Stærstu liðin á Englandi hafa flest
haft hægt um sig á leikmannamark-
aðnum. Liverpool var búið að ganga
frá kaupunum á Takumi Minamino
í desember á meðan Pep Guardiola
virðist ekki ætla að styrkja leik-
mannahópinn fyrir baráttuna í
Meistaradeildinni. Hvorki Leicester
né Chelsea hafa bætt við leikmanni
en Chelsea leitar nú logandi ljósi
að framherja í von um að hann geti
komið í stað Olivier Giroud sem vill
fá að yfirgefa félagið.
Jose Mourinho slær ekki slöku
við og er búinn að fá tvo leikmenn
inn ásamt því að tryggja sér réttinn
á Giovani Lo Celso til frambúðar en
Tottenham þurfti að horfa á eftir
Christian Eriksen til Inter í vikunni.
Stærstu félagaskipti gluggans til
þessa áttu sér stað í gær þegar Man-
chester United tryggði sér loksins
þjónustu Bruno Fernandes eftir
langar viðræður. United greiðir
Sporting 55 milljónir evra fyrir
portúgalska landsliðsmanninn sem
verður um leið sjöundi dýrasti leik-
maður félagsins frá upphafi.
Arsenal sótti varnarmanninn
Pablo Mari sem félagið þurfti á að
halda á meðan Wolves tók inn fjóra
leikmenn í von um að gera atlögu að
sæti í Meistaradeildinni á næsta ári.
Þá hafa liðin í fallbaráttunni nýtt
tækifærið til að styrkja hópinn, þar
er Aston Villa fremst í f lokki með
fjóra nýja leikmenn í janúar.
Þegar komið er á lokadag félaga-
skiptagluggans þarf yfirleitt að
greiða hæsta verð og verður gaman
að sjá hvaða lið eru tilbúin að taka
þátt í dansleiknum í dag. – kpt
Lokadagur félagaskiptagluggans í dag
Bruno Fernandes var himinlifandi að skrifa undir í gær. NORDICPHOTOS/GETTY
3 1 . J A N Ú A R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R16 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT