Fréttablaðið - 31.01.2020, Page 20
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Kennarastarfið er gefandi en jafnfram krefjandi, segir á norska miðlinum forskn
ing.no. Rannsókn var gerð við níu
grunnskóla í miðvesturríkjum
Bandaríkjanna um streitu hjá
kennurum og hvaða áhrif hún
hefur á bekkinn. Eitt hundrað
kennarar svöruðu spurningum,
meðal annars um hvort starfið
væri streituvaldandi og hvort þeir
upplifðu streitu. Næstum allir
svarenda sögðust upplifa streitu
í starfinu. Yfir 90 prósent upp
lifðu mjög mikið álag en f lestir
kennararnir töldu sig geta tekist
á við það. Þó voru 28 prósent sem
töldu sig vera í erfiðleikum með
að vinna sig frá streitunni. Í þeim
hópi sáu vísindamenn kulnun í
starfi og minni væntingar til þess
að ná árangri. Þá var hærra hlut
fall þunglyndis hjá nemendum
kennara í þessum hópi.
Árangur og streita
Greinilegt samhengi var á milli
mikillar streitu hjá kennara og
minni árangurs hjá nemendum
þeirra. Rannsóknin var birt í
Journal of School Psychology.
Eftir nokkurn tíma á meðan rann
sóknin stóð gátu vísindamenn
tengt hegðunar og einbeitingar
vandamál meðal nemenda þeirra
kennara sem töldu sig mjög stress
aða í vinnunni. Hinn hópurinn
þar sem kennarar gátu ráðið við
streituna stóð sig betur í námi og
hafði meiri félagslega færni.
Mikil vinna
Samkvæmt greininni á forskning
er streita algengt vandamál meðal
kennara í Noregi eins og í Banda
ríkjunum. Gerð hefur verið rann
sókn á því hvers vegna kennarar
endast illa í starfi. Í Noregi var
spurt um þreytu, áhyggjur og þung
lyndi frekar en streituvandamál.
Næstum allir norskir kennarar
finna fyrir tímapressu en hún getur
orsakað mikla þreytu. Þá eru aga
vandamál í skólastofunni og átök
við foreldra einnig áhrifavaldar
hjá kennurum. Talað er um að það
vanti tilfinnanlega betri rann
sóknir á áhrif kennara á nemendur.
Flestir kennarar vinna mikið.
Þeir vilja vera vel undirbúnir fyrir
tímana og utan skólastofunnar þarf
að vinna pappírsvinnu.
Stressaðir kennarar smita nemendur
Ný amerísk rannsókn sýnir að ef kennari er undir miklu álagi eða er stressaður sendir hann nei-
kvæða strauma yfir nemendur og þeim líður verr. Einn af hverjum tíu kennurum íhugar að hætta.
Skólastarfið gengur betur og börnin ná meiri árangri ef kennarinn er í góðu jafnvægi. Minni árangur er hjá nemendum þar sem er streita. MYND/GETTY
Greinilegt sam-
hengi var á milli
mikillar streitu hjá
kennara og minni
árangurs hjá nemendum
þeirra.
Stundum er fólk að velta því fyrir sér hvað eigi að vera í matinn. Hér eru tvær upp
skriftir að einföldum réttum sem
auðvelt er að gera.
Sterk súpa með kalkún
Mjög góð súpa sem hentar vel
í vetrarkulda. Hægt er að nota
hvort sem er afgang af kalkún
eða kjúklingi. Súpan er skreytt
með steiktum tortillakökum og
lárperu. Uppskriftin miðast við
fjóra.
400 g afgangur af kalkún eða
kjúklingi
2 hvítlauksrif
1 laukur
1 tsk. cumin
½ tsk. chili-duft
½ tsk. reykt paprikuduft
5 dl kjúklingasoð (vatn og einn
teningur eða soð)
4 dl kókosmjólk
4 dl niðursoðnir tómatar
Meðlæti
2 hveiti tortillur
1 lárpera
1 smátt skorinn vorlaukur
1 jalapeno, smátt skorinn
Hreinsið kalkúninn frá beinum og
skerið niður. Skerið lauk og hvít
lauk smátt og steikið í potti með
olíu og kryddi.
Bætið kókosmjólk og tómötum
saman við. Látið sjóða og malla
síðan í 56 mínútur.
Skerið tortillakökurnar í
strimla og steikið þá í olíu á pönnu
þar til þær fá gylltan blæ.
Maukið súpuna með töfra
sprota. Bætið síðan kalkún eða
kjúklingi út í hana. Bragðbætið
með salti, pipar og chilipipar.
Ausið súpunni á disk og skreyt
ið hana með tortilla, lárperusneið,
vorlauk og jalapeno.
Saltbakaður silungur
Hér er góður réttur sem gaman
er að prófa að elda. Þegar fiskur
er bakaður í salti verður hann
sérstaklega ljúffengur og safa
ríkur. Silungur eða bleikja henta
vel í þannig bakstur. Uppskriftin
miðast við fjóra.
800 g silungur eða bleikja
200 g gróft salt
1 sítróna
1 poki blandað salat
Skerið fiskinn í mátuleg stykki og
hafið roðið á. Setjið saltið í eldfast
mót og leggið fiskinn yfir, roðið
snýr niður. Bragðbætið með salti,
pipar og sítrónusafa. Bakið við
180°C í tólf til fimmtán mínútur
eftir þykkt bitanna.
Berið fram með soðnum kart
öflum og góðu salati.
Það er hægt að baka allan fisk
með þessum hætti. Mjög sniðugt er
að leggja fiskinn heilan á saltið og
krydda með ferskum kryddjurtum.
Hvað á að vera í matinn?
Saltbakaður silungur eða bleikja er mikill herramannsmatur.
Rafmagnsgítar Rafmagnsbassi Klassískur gítar KassabassiKassagítar Gítarbanjó
Fiðla
26.900
Rafmagnsfiðla
42.900
Heyrnartól
Míkrafónar
í úrvali
Þráðlaus míkrafónn
Gítarinn ehf
Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • S. 552 2125 • gitarinn@gitarinn.is • gitarinn.is
Sömgkerfi
UkuleleKajun tromma
í úrvali
Hljóðfæri
Gítarmagnari
fyrir rafmagnsgítara
12.900
Magnari fyrir kassagítar
og míkrafón
24.900
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 1 . JA N ÚA R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U R